Akur Organic ehf.

  • Home
  • Akur Organic ehf.

Akur Organic ehf. Akur Organic ehf. er fyrirtæki sem sérhæfir sig í lífrænni ræktun á gulrótum og öðru rótargrænmeti.

Fyrirtækið er staðsett í Þistilfirði og eru akrarnir í Flögu í Þistilfirði.

12/05/2026

Heil og sæl 🧡
Nú styttist í vorverkin svona þegar þessu kuldakasti lýkur.
Allt klárt til jarðvinnslu og sáningar og okkar maður hjá Ísfélaginu Kristinn Lárusson er að græja áburðinn. En það er gaman að segja frá því að áburðurinn er framleiddur á Þórshöfn og við sækjum hann sjálf og keyrum á akrana, einungis rúmlega 20 km leið.
Að sjálfsögðu lífrænt vottaður og þar af leiðandi án allra íblöndunarefna.
Gerist ekki betra 🥕🧡

Lífrænar rófur fyrir blótið 🥂Verið velkomin upp í Stórholt 1 í dag fimmtudaginn 29. janúar kl. 15:30 - 17.
29/01/2026

Lífrænar rófur fyrir blótið 🥂
Verið velkomin upp í Stórholt 1 í dag fimmtudaginn 29. janúar kl. 15:30 - 17.

15/01/2026

Velkomin upp í Stórholt ef þið viljið ná ykkur í grænmeti 🥕🧡

Góðan dag 🥕🧡Nú er lagerinn af lífræna grænmetinu að klárast.Opið í Stórholti 1 á fimmtudaginn 15. janúar næstkomandi kl....
13/01/2026

Góðan dag 🥕🧡
Nú er lagerinn af lífræna grænmetinu að klárast.
Opið í Stórholti 1 á fimmtudaginn 15. janúar næstkomandi kl. 16-17 ef íbúar og nærsveitungar vilja ná sér í lífrænar gulrætur og rófur.
Endilega setjið pantanir í komment svo sé hægt að áætla magn.
Þeir sem eiga ekki heimangengt geta heyrt í Línu með betri tíma eða fengið heimsent.
s. 867-1870

Kæru íbúar Langanesbyggðar.Opið kl. 15 - 16 uppí Stórholti 1 í dag 19. desember ef þið viljið ná ykkur í grænmeti fyrir ...
19/12/2025

Kæru íbúar Langanesbyggðar.
Opið kl. 15 - 16 uppí Stórholti 1 í dag 19. desember ef þið viljið ná ykkur í grænmeti fyrir hátíðirnar og þá ekki síst skötuna.
Velkomið að fá heimsendingu á Þórshafnarsvæðinu ef þið eigið ekki heimangengt. Skellið þá bara pöntun í komment.
Hátíðarkveðjur 🎄

🧡🥕
08/10/2025

🧡🥕

Bændur hafa í nógu að snúast á þessum tíma árs, hvort sem þeir eru að smala fé af fjöllum eða huga að uppskeru sumarsins.

Verið velkomin öll í nýtt húsnæði okkar kl. 13-15 á morgun Stórholti 1 á Þórshöfn.
19/09/2025

Verið velkomin öll í nýtt húsnæði okkar kl. 13-15 á morgun Stórholti 1 á Þórshöfn.

🥕🧡
09/09/2025

🥕🧡

Smá fréttir af okkur 🥕🧡Jarðvinnsla og sáning gekk vel í blíðunni í maí. Júní var ekki eins góður veðurfarslega séð og le...
30/08/2025

Smá fréttir af okkur 🥕🧡
Jarðvinnsla og sáning gekk vel í blíðunni í maí.
Júní var ekki eins góður veðurfarslega séð og lentum við í tjóni í veðurofsa í byrjun mánaðarins. Dúkarnir yfir gulrótunum rifnuðu og þurfti að endurnýja þá og var það mikið vatnsveður með rokinu að einnig urðu skemmdir á nokkrum stöðum á beðunum.
Við tók dásamleg veðurblíða allan júlí og ágúst og var þá farið í arfatínslu en við handtínum allan arfa a.m.k. tvisvar sinnum yfir sumarið.
VOR - Verndun og ræktun samtök lífrænna framleiðenda á Íslandi fjárfesti í arfatæki sem við ætlum að prófa á næsta ári og verður spennandi að sjá hvort virki vel.
En mál málanna! Upptakan hófst í gær og gekk vel. Uppskeran lítur mjög vel út.
Á mánudaginn verður því vinnslan komin í gang og lífrænu gulræturnar komnar á markaðinn í lok vikunnar 🧡🥕
Íslenskt.is byrjar dreifingu á höfuðborgarsvæðinu á miðvikudaginn.
Lífrænu gulrófurnar þurfa lengri tíma og fáið þið fréttir af því síðar.
Lífræni dagurinn verður haldinn laugardaginn 20. september næstkomandi og verðum við með opið hús í nýju vinnslunni okkar á Þórshöfn.
Lífrænt Ísland skipuleggur viðburð í Norræna húsinu og verðum við einnig þar ásamt öðrum lífrænum framleiðendum á Íslandi.
Hlökkum til að sjá ykkur á lífræna daginn 🧡🥕
Meira síðar.

Takk fyrir okkur 🥕🧡
01/11/2024

Takk fyrir okkur 🥕🧡

Matarsóun er tíðrætt hugtak. Eins og margir vita er grænmeti "flokkað" og annars flokks varan talin síðri söluvara út af...
01/11/2024

Matarsóun er tíðrætt hugtak.
Eins og margir vita er grænmeti "flokkað" og annars flokks varan talin síðri söluvara út af útliti hennar.
Við erum að gera okkar besta til að sporna við þessu, enda alveg galið að okkar mati að henda grænmeti á síðasta stiginu í framleiðsluferlinu vegna útlits.
Á síðasta ári hófum við sölu á Safagulrótum í 1 kg pakkningum og höldum því áfram á þessu ári.
Einnig seljum við 2. flokk í vinnslu, stóreldhús og síðast en ekki síst í fjáraflanir íþróttafélaga.
En gulrætur seldar í fjáröflunarskyni hafa vakið mikla lukku og þykir góð tilbreyting frá hinum "hefðbundnu" fjáröflunarvörum.
Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga á gulrótum í fjáröflunarskyni 🥕🧡
[email protected]
Ólína s. 867-1870

Address

Langanesvegur 2

680

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Akur Organic ehf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Akur Organic ehf.:

  • Want your business to be the top-listed Engineering Company?

Share