HD Iðn- og tækniþjónusta

HD Iðn- og tækniþjónusta HD er eitt öflugasta Iðn- & tækniþjónustufyrirtæki á Íslandi. HD þjónustar meðal annars orku- og veitufyrirtæki, stóriðju, sjávarútveg og fiskeldi.

Hjá HD starfa rúmlega 200 manns og hlutverk okkar er að veita viðskiptavinum HD trausta og góða þjónustu.

05/06/2026

Við stöndum vörð um rekstraröryggi orkuinnviða!

Stolt stund hjá HD 💛Í dag hlaut HD Þekkingarviðurkenningu FVH fyrir vegferð félagsins í uppbyggingu þekkingardrifinnar i...
19/05/2026

Stolt stund hjá HD 💛
Í dag hlaut HD Þekkingarviðurkenningu FVH fyrir vegferð félagsins í uppbyggingu þekkingardrifinnar iðn- og tækniþjónustu.

Þessi viðurkenning tilheyrir fyrst og fremst starfsfólkinu okkar! Öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum við að byggja upp öflugra, sérhæfðara og framsæknara fyrirtæki á síðustu árum.

Takk fyrir traustið og til hamingju með okkur öll.

https://hd.is/hd-hlytur-thekkingarvidurkenningu/

07/05/2026

Hlökkum til að hitta ykkur á Fagþingi hita- vatns og fráveitna !

REKSTRARÖRYGGI ER STJÓRNUNARÁKVÖRÐUN!Þegar rekstraröryggi skiptir öllu geta bilanir í lykilbúnaði haft verulegar afleiði...
07/05/2026

REKSTRARÖRYGGI ER STJÓRNUNARÁKVÖRÐUN!

Þegar rekstraröryggi skiptir öllu geta bilanir í lykilbúnaði haft verulegar afleiðingar. Bilun í heitavatnsdælu getur valdið því að það frjósi í lögnum, með heitavatnsleysi og verulegu samfélagslegu og fjárhagslegu tjóni.

Á Fagþingi hita/vatns- og fráveitna í Hljómahöll, ætlum við að vera með áherslu á ástandsgreiningu sem stjórntæki í rekstri.

Með gagnadrifinni greiningu, mælingum og gervigreind er hægt að greina frávik tímanlega og færa viðhald úr viðbragðsdrifnu formi yfir í ástandsdrifið.

-> Minni áhætta
-> Meiri fyrirsjáanleiki
-> Færri óvænt stopp

Á fagþinginu fjallar HD um helstu kosti og galla öxuldæla og sambyggðra djúpdæla með áherslu á íslenskar aðstæður og langtíma rekstraröryggi.

HD Iðn- og tækniþjónusta verður á Fagþingi hita/vatns- og fráveitna!Við ætlum að leggja áherslu á rekstraröryggi, ástand...
06/05/2026

HD Iðn- og tækniþjónusta verður á Fagþingi hita/vatns- og fráveitna!

Við ætlum að leggja áherslu á rekstraröryggi, ástandsgreiningu og ástandsdrifið viðhald – og sýna hvernig hægt er að greina frávik áður en þau verða að bilunum.

Á básnum kynnum við lausnir fyrir djúpdælur, mælingar og eftirlit í rekstri ásamt hermi sem sýnir hvernig ástandsgreining getur greint frávik tímanlega.

Í aðaldagskrá fagþingsins verður einnig Símon Þór Hansen tænilegur ráðgjafi á búnaðarsviði HD, með erindi þar sem hann ber saman öxuldælur og sambyggðar djúpdælur og fer yfir helstu kosti og galla lausnanna.

Sjáumst í Hljómahöllinni!

Á fagþinginu fjallar HD um helstu kosti og galla öxuldæla og sambyggðra djúpdæla með áherslu á íslenskar aðstæður og langtíma rekstraröryggi.

30 ára reynsla í djúpdælukerfumÁrið 2025 markaði 30 ár frá niðursetningu fyrstu djúpdælu HD. Í dag eru yfir 130 djúpdælu...
30/04/2026

30 ára reynsla í djúpdælukerfum

Árið 2025 markaði 30 ár frá niðursetningu fyrstu djúpdælu HD. Í dag eru yfir 130 djúpdælur í rekstri á Íslandi sem fyrirtækið hefur komið að.
Þessi reynsla, byggð á raunverulegum rekstri við krefjandi aðstæður, er grunnur að áframhaldandi þróun í djúpdælukerfum og jarðhitalausnum.



HD ehf. fagnar 30 ára reynslu í hönnun, smíði, niðursetningu og viðhaldi djúpdæla fyrir jarðhitakerfi á Íslandi og erlendis.

30 ár. 130 djúpdælur. Ómetanleg reynsla.HD hefur í þrjá áratugi byggt upp sérþekkingu í djúpdælum fyrir jarðhitakerfi – ...
29/04/2026

30 ár. 130 djúpdælur. Ómetanleg reynsla.

HD hefur í þrjá áratugi byggt upp sérþekkingu í djúpdælum fyrir jarðhitakerfi – á Íslandi og erlendis.

Sjá frétt:

HD ehf. fagnar 30 ára reynslu í hönnun, smíði, niðursetningu og viðhaldi djúpdæla fyrir jarðhitakerfi á Íslandi og erlendis.

Tjakkur bilaður? Ekkert mál - við reddum því!HD sér um viðgerðir, nýsmíði og prófanir á vökva- og lofttjökkum – með það ...
28/04/2026

Tjakkur bilaður? Ekkert mál - við reddum því!

HD sér um viðgerðir, nýsmíði og prófanir á vökva- og lofttjökkum – með það að markmiði að stytta niðritíma og halda búnaði í rekstri.

Ommi verkstjóri á tjakkaverkstæði HD tekur öllum nýjum verkefnum fagnandi.

Hafðu samband við okkur í dag!

Grein um dælulausnir HD í fiskeldi fjallar um mikilvægi dælulausna og ástandsdrifins viðhalds fyrir rekstraröryggi og stöðugleika í eldisstöðvum.

Seafood Expo Global á lokametrunum!Sýningunni lýkur í dag og það er ljóst að þátttaka HD í Barcelona hefur skilað sterku...
23/04/2026

Seafood Expo Global á lokametrunum!

Sýningunni lýkur í dag og það er ljóst að þátttaka HD í Barcelona hefur skilað sterkum árangri. Við tókum á móti góðum gestum og áttum afar góð samtöl og styrktum tengsl okkar enn frekar við lykilaðila í greininni.

HD hefur stimplað sig sterkt inn – og við erum rétt að byrja.

Ert þú að leita að öflugum og áreiðanlegum þjónustuaðila í sjávarútvegi? Við erum klár í samtalið.

Grein um lausnir HD í fiskeldi birtist nýverið í timaritinu Cool Atlantic. Þar er fjallað um mikilvægi dælulausna og ást...
23/04/2026

Grein um lausnir HD í fiskeldi birtist nýverið í timaritinu Cool Atlantic. Þar er fjallað um mikilvægi dælulausna og ástandsdrifins viðhalds fyrir öruggan og stöðugan rekstur.

Ef þú vilt ræða þínar þarfir eða áskoranir, erum við hjá HD til staðar!

Grein um dælulausnir HD í fiskeldi fjallar um mikilvægi dælulausna og ástandsdrifins viðhalds fyrir rekstraröryggi og stöðugleika í eldisstöðvum.

Address

Vesturvör 36
Kópavogur
200

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 15:15

Telephone

+3545603600

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when HD Iðn- og tækniþjónusta posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to HD Iðn- og tækniþjónusta:

Share