11/09/2026
Það er virkilega gefandi að styðja við börnin, við erum stolt af því að hafa skrifað undir 3ja ára styrktarsamning við barna- og unglingaráð Keflavíkur í körfubolta.
Á myndinni má sjá Garðar Örn formann barna- og unglingaráðs og Viktoría Hrund fyrir hönd Reykjanes Investment.
🤝 Nýtt og öflugt samstarf
Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að Reykjanes Investment hefur skrifað undir þriggja ára samstarfssamning við Barna- og unglingaráð körfunnar í Keflavík.
Öflugt barna- og unglingastarf verður ekki til af sjálfu sér. Það byggir á metnaði, samstöðu og stuðningi fólks og fyrirtækja sem vilja leggja sitt af mörkum til samfélagsins.
Með stuðningi samstarfsaðila okkar getum við haldið áfram að skapa góðar aðstæður fyrir börn og ungmenni til að æfa, þroskast, eignast félaga og njóta sín í körfuboltanum. 💙🏀
Við bjóðum Reykjanes Investment hjartanlega velkomið í hóp samstarfsaðila okkar og þökkum kærlega fyrir traustið og stuðninginn við barna- og unglingastarfið.
Það þarf fólk eins og þig. 💙
💙🏀 SAMAN EFLUM VIÐ BARNA- OG UNGLINGASTARFIÐ