Þröstur Marzellíusson ehf

Þröstur Marzellíusson ehf Öll alhliða málmsmíði, varmadælur uppsetning, hattar á varmadælur. Hafþór Ingi [email protected]
Heiðar Smári [email protected]
þórunn [email protected]

Umboð: Linde Gas

Góðan daginn kæru vinir Þrastar Marzellíussonar ehf☀️Nú langar mig að biðja ykkur að deila fyrir mig smá pistli. Venjule...
21/05/2026

Góðan daginn kæru vinir Þrastar Marzellíussonar ehf☀️

Nú langar mig að biðja ykkur að deila fyrir mig smá pistli. Venjulega hefur þessi vorpistill verið á ljúfum og kurteisum nótum, en ég verð að segja að það erfitt þetta vorið að halda aftur af pirringnum. Veit að fæst ykkar eiga pistilinn skilið en þætti vænt um ef þið kæmuð honum áfram .

Hér hefur hraði aukist mjög og mikill minnihluti sem virðir hámarkshraða hér.....sem er að mínu mati of hár.

Hér er algengur ofsaakstur, framúrakstur og kappakstur ( ég heyri þau byrja að gefa í í Fjarðarstrætinu). Dag og nótt.

En það er ekki bara unga fólkið sem keyrir of hratt þó þeir hröðustu séu nú flestir í yngri kanntinum. Bara almennt er keyrt of hratt, kallar og miðaldra stelpur eins og ég líka.

Ég skil þetta bara alls ekki, það er ekki eins og þetta hús og aðstæðurnar hérna geti mögulega farið framhjá fólki. Hvar er almenn skinsemi og tilitsemi. Fylgdu radarvarar með slush/ísvélunum hjá Elko þetta árið???

Ég ætla að reyna að höfða til ykkar vegfarendur góðir, Vegagerðarinnar og ísafjarðarbæjar.

Hér þarf fólk að keyra eftir aðstæðum í það minnsta á löglegum hraða, hér þarf að lækka hraða , laga vegmerkinar fyrir akandi, hjólandi og gangandi.

Með vinsemd og virðingu, f.h okkar í húsinu og viðskiptavina.
Tóta

p.s. get hvorki merkt Ísafjarðarbæ né lögregluna á vestfjörðum. En þetta vonandi skilar sér.

Kæru vinir og viðskiptavinir❤️Meistarinn  hefur verið kallaður til annara verka og skilur eftir sig mikla þekkingu sem h...
03/05/2026

Kæru vinir og viðskiptavinir❤️

Meistarinn hefur verið kallaður til annara verka og skilur eftir sig mikla þekkingu sem hann gaf áfram til sona sinna og samstarfsmanna. Hér er mikil sorg en líka þakklæti fyrir allt sem hann gaf okkur. Við þökkum hlýhug og það umburðarlyndi sem viðskiptamenn hafa sýnt okkur á þessum erfiðu tímum. Minning góðs manns og besta járnsmiðsins lifir ❤️

https://www.facebook.com/share/p/1EJFJkz9fS/

22/04/2026

Kæru vinir og viðskiptamenn ❤️

Vegna aðstæðna þurfum við að skerða þjónustu okkar í bili. Það er auðvitað opið og hann Sigurjón okkar tekur vel á móti ykkur, en síminn hans er 867-0503 og tekur hann skilaboð og aðstoðar ykkur eftir bestu getu.

Þökkum tillitsemina og sendum við Halli okkar bestu kveðjur til ykkar. Eigið fallegan dag❤️

Þá er róbótinn byrjaður að vinna og það er alls ekkert að þessu 👌
20/02/2026

Þá er róbótinn byrjaður að vinna og það er alls ekkert að þessu 👌

Nýjasta skóflan fór úr húsi á dögunum......nú má snjórinn koma🌨❄️😊
16/02/2026

Nýjasta skóflan fór úr húsi á dögunum......nú má snjórinn koma🌨❄️😊

31/01/2026

Þessi á eftir að létta mönnum verkin...til lukku strákar mínir 😊

Kæru vinir/viðskiptavinir :-)Eins og einhver ykkar hafa tekið eftir þá hefur fækkað um einn mikilvægann mann hjá ÞM ehf ...
25/01/2026

Kæru vinir/viðskiptavinir :-)

Eins og einhver ykkar hafa tekið eftir þá hefur fækkað um einn mikilvægann mann hjá ÞM ehf í óákveðin tíma.

Okkur langar því að þakka fyrir hlýhug, skilning og þolinmæði sem strákarnir okkar og við höfum mætt. Það munar um okkar mann og ansi mörg verkefni sem hann létti af strákunum sem þeir fá í fangið núna. Svo það tekur smá tíma að endurskipuleggja allt saman og er alveg magnað hvað allir hafa sýnt því mikinn skilning.

En fyrirtækið gæti ekki verið í betri höndum enda lærðu þeir nánast að labba hér niðri á smiðjugólfi bræðurnir og starfsmennirnir algerlega af betri gerðinni.

Svo engar áhyggjur, allt verður áfram í góðum höndum og fyritækið jafn öflugt og áður.

Svo verður "kallinn" vonandi farin að kíkja í kjallarann til skrafs og ráðagerða sem allra fyrst.

Við sendum knús og þakklæti til ykkar og starfsmannana okkar úr höfuðborginni. Kær kveðja.Tóta og Halli.

13/11/2025

Starfsmenn óskast!

Vegna mikilla anna vantar okkur hjá Þresti Marzellíussyni ehf mannskap.
Reynsla af stálsmíði og TIG suðu er nauðsynleg ásamt vönduðum og sjálfstæðum vinnubrögðum.
Ef áhugi er fyrir hendi, endilega hafðu samband fyrir nánari upplýsingar.

Hafþór: 862-0501

Góðan og blessaðan daginn. Ef þið eruð í grill, ferða eða partý hugleiðingum eigum við hitt og þetta fyrir ykkur. T.dHel...
30/06/2025

Góðan og blessaðan daginn. Ef þið eruð í grill, ferða eða partý hugleiðingum eigum við hitt og þetta fyrir ykkur. T.d

Helíum 50 blöðru kútur á kr. 13.750

Sodastream hylki skrúfuð og smellt. kr. 2.500 innihald/ 4.000 innihald + hylki.

Þrýstijafnari smelltur kr. 0

Þrýstijafnari skrúfaður. kr.5.800

Gasslöngur 8.mm kr. 1.124 og 9mm kr. 1.394 meterinn

Gas skynjari kr. 10.232

Camper gaskútur kr. 1.048

Propan gas (grill)

10 kg áfylling kr. 8.200 smellu og skrúfað.

5 kg áfylling kr. 4.300 smellu og skrúfað

11.kg áfylling kr. 9.400 gulur járnkútur.

p.s við eigum líka höfuðljós, heyrnahlífar og allskonar kalla og kjellingadót í afmælis og tækifærisgjafir :-)

Ferðist fallega og njótið sumarsins.

Þessi flotta mynd og fallegur hugur gladdi okkur mikið 🫶 Í gær komu hér við Frakkar og færðu Halla þessa mynd. Þau höfðu...
10/06/2025

Þessi flotta mynd og fallegur hugur gladdi okkur mikið 🫶

Í gær komu hér við Frakkar og færðu Halla þessa mynd. Þau höfðu hitt landa sína í norrænu sem báðu þau að koma þessari mynd til okkar ef þau kæmu við á Ísafirði með þökk fyrir góða þjónustu.

Strákarnir muna vel eftir þessu góða fólki, það kom hingað í fyrra til að fá áfyllingu á gaskút og var maðurinn alveg heillaður af smiðjunni okkar.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við fáum svona fallegan hug til okkar fyrir eitthvað sem okkur þykir sjálfsögð þjónusta 🥰

Þess má líka geta að Frakkar á ferð með litla gaskúta vita greinilega af okkur. Því einn þeirra sem var hér á skútu gaf okkur stykki til að fylla á þessa kúta og það hefur spurst út hjá þeim sem eru á skútum og húsbílum 😊

Address

Hnífsdalsvegur 27
Ísafjörður
400

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Þröstur Marzellíusson ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Þröstur Marzellíusson ehf:

Share