08/12/2025
Hampiðjan hefur sameinað alla starfsemi sína sem tengist sölu og þjónustu við fiskeldisfyrirtæki undir einu alþjóðlegu vörumerki – ELDI. Með stofnun félagsins hefst nýr kafli í uppbyggingu fiskeldisþjónustu samstæðunnar, sem hefur vaxið hratt undanfarin ár og nam nær þriðjungi heildartekna á síðasta ári. ELDI mun starfa í tíu löndum, með höfuðstöðvar í Noregi og öflugt alþjóðlegt net sölu- og þjónustustöðva sem styður við alla helstu þætti fiskeldisreksturs.
Sameiningin skapar skýra umgjörð um áframhaldandi vöruþróun, framleiðslu og þjónustu, styrkir samkeppnisstöðu og eykur nálægð við viðskiptavini víða um heim. Framkvæmdastjóri ELDI verður Thomas Berg Myrvold og stjórnarformaður Hjörtur Erlendsson. Starfsemi ELDI hefst formlega 1. janúar 2026 og mun félagið þá vera eitt stærsta fyrirtæki heims í þjónustu við fiskeldi.