28/12/2023
Geymslur (Iðnaðarbil) til sölu á Dalvík
Sæfrakt ehf í samstarfi við EGO hús ehf kynnir geymsluhúsnæði til sölu við Gunnarsbraut 10B.
Geymslurnar eru frá 49,3 - 51,8m2 að stærð auk þess er um 25m2 geymsluhilla (milliloft). Þar er góð lofthæð.
Gólf verða vélslípuð með gólfhita og rafdrifinni aksturshurð. Inntak fyrir heitt og kalt vatn verður komið inn í hvert bil.
Gert er ráð fyrir snyrtingu innst í hverju bili.
Hæð innkeyrsluhurðar í hverju bili er 3,8m, breidd 3m og verða þær rafdrifnar og einnig verður ein gönguhurð.
Húsið stendur á steinsteyptum sökkli. Burðarvirki er úr límtré eða stáli. Útveggir eru úr yleiningum, kjarni er polyurithane PIR. Innveggir er úr samloku eignar með steinull á milli.
Í sameign er sameiginlegt rými fyrir öll inntök. Lóð verður malbikuð og snjóbræðsla í lokuðu kerfi 3 metra útfrá húsinu, allan hringinn.
Verð 18,9mkr
Afhending júlí/ágúst 2024
Frekari upplýsingar veitir
EGO hús ehf
857 6002
[email protected]