N.Hansen

N.Hansen Sérhæfum okkur í nýsmíði, viðhaldi og vélaviðgerðum í sjávarútvegi. Þrívíddarprentum úr plasti og stáli. Við gerum allskonar annað líka!

07/11/2025

Laufabrauðshjólin okkar eru komin aftur!

Fást hjá okkur, í Jólagarðinum og í 3D Verk

Við erum að græja nýtt upplag af laufabrauðshjólunum okkar, sem fengu svo góðar viðtökur í fyrra.Þau verða til sölu hjá ...
06/11/2025

Við erum að græja nýtt upplag af laufabrauðshjólunum okkar, sem fengu svo góðar viðtökur í fyrra.
Þau verða til sölu hjá okkur á verkstæðinu, í Jólagarðinum í Eyjafjarðarsveit og hjá vinum okkar í 3D Verk fyrir sunnan.
Að þessu sinni koma þau í sérsniðnum kassa, sem við að sjálfsögðu prentum.
Við viljum bjóða þeim sem keyptu hjól hjá okkur í fyrra að nálgast kassa undir sitt hjól, sér að kostnaðarlausu.

Helstu upplýsingar um laufabrauðshjólin okkar:
• Þau eru úr endingargóðu plasti og ryðfríu stáli, sem gerir þau bæði létt og sterk.
• Mynstrið er 19 mm breitt og hjólið hefur tólf tennur
Við eigum nokkur eintök til sölu, verð 24.500 kr

🔩N.Hansen leitað eftir framtíðarstarfsmanni🔧🧰Áhugasamir hafi samband við Inga Hansen⚙️
23/10/2025

🔩N.Hansen leitað eftir framtíðarstarfsmanni🔧
🧰Áhugasamir hafi samband við Inga Hansen⚙️

03/10/2025
Í sumar útbjuggum við sérsmíðað handrið og handlista úr ryðfríu stáli. Glæsilegt, endingargott og tilbúið að standast ve...
03/10/2025

Í sumar útbjuggum við sérsmíðað handrið og handlista úr ryðfríu stáli. Glæsilegt, endingargott og tilbúið að standast veður og vind.

Lukum nýverið við skemmtilegt verkefni í heimahúsi. Sérsmíðaðar skóhillur, fatahengi, handrið við stiga og handlisti. Sm...
25/09/2025

Lukum nýverið við skemmtilegt verkefni í heimahúsi. Sérsmíðaðar skóhillur, fatahengi, handrið við stiga og handlisti.
Smellpassaði í rýmið og kom mjög vel út!

Nýlega komu til okkar í heimsókn nemendur í tæknifræðinámi frá Háskólinn á Akureyri sem kennt er í samstarfi við HR. Við...
17/09/2025

Nýlega komu til okkar í heimsókn nemendur í tæknifræðinámi frá Háskólinn á Akureyri sem kennt er í samstarfi við HR. Við kynntum fyrir þeim verkstæðið okkar þar sem við bjóðum m.a. upp á þrívíddarprentun.

Við þökkum þeim skemmtilega heimsókn og vonumst til að eiga gott samstarf í framtíðinni.

Leitum enn að öflugum framtíðarstarfsmanni,Áhugasamir hafi samband við Inga Hansen.
19/04/2025

Leitum enn að öflugum framtíðarstarfsmanni,

Áhugasamir hafi samband við Inga Hansen.

N.Hansen á Akureyri sérhæfir sig í stálsmíði; nýsmíði, viðhaldi og vélaviðgerðum í sjávarútvegi og matvælaiðnaði. Við 3D prentum nánast hvað sem er úr ýmsum plasttegundum eða stáli.

Okkur vantar liðsauka! Leitum að vélvirkja eða stálsmið í framtíðarstarf.
20/02/2025

Okkur vantar liðsauka!
Leitum að vélvirkja eða stálsmið í framtíðarstarf.

Nýverið þurftum við að saga nokkrar rörabeygjur, við handriðasmíði á vinnupalla. Nákvæmnisverk og fleiri en ein af hverj...
16/01/2025

Nýverið þurftum við að saga nokkrar rörabeygjur, við handriðasmíði á vinnupalla. Nákvæmnisverk og fleiri en ein af hverju tagi.

Teiknuðum og prentuðum sagmáta fyrir þessar tilteknu 40mm beygjur frá FerroZink þar sem hægt er að stilla beygjuna í rétta gráðu á meðan sagað er.

Einfaldaði okkur vinnuna við þetta verk og mun án efa nýtast okkur aftur.

06/12/2024

Vegna fyrirspurna um gerð 3D prentuðu laufabrauðshjólanna okkar langaði okkur að sýna ykkur hvernig þetta virkar. Við útbjuggum stutt myndband sem fer í gegnum ferlið.

Við hönnun hjólanna lögðum við áherslu á að hjólið skæri gott mynstur og að handfangið væri gott í hendi. Hjólið sjálft er byggt á gamla hjólinu hennar ömmu, sem afi smíðaði um miðja síðustu öld.

Hjólin og armarnir eru prentuð hér hjá okkur úr 316L ryðfríu stáli, í Raise3D Forge1 málmprenturunum okkar. Svo fara þau í gegnum tveggja skrefa eftirvinnsluferli og eru að lokum sandblásin.

Handföngin og fóðringarnar prentum við líka í hefðbundnum plastþrívíddarprentara, úr matvælavottuðu, endingargóðu plasti.

Hjólin okkar þola ferð gegnum uppþvottavélina, en við mælum ekki með því.

Þegar allir íhlutir hafa verið yfirfarnir setjum við hjólin saman og vonum að þau eignist góð heimili.

Fyrir áhugasama um málmprentarkerfið er hér hlekkur á framleiðanda: https://www.raise3d.com/metalfuse/

Við kynnum laufabrauðshjólin okkar, hönnuð, þrívíddarprentuð og samsett hér á verkstæðinu okkar á Akureyri.• Þau eru úr ...
27/11/2024

Við kynnum laufabrauðshjólin okkar, hönnuð, þrívíddarprentuð og samsett hér á verkstæðinu okkar á Akureyri.

• Þau eru úr endingargóðu plasti og ryðfríu stáli, sem gerir þau bæði létt og sterk.
• Nákvæm og vönduð framleiðsla fyrir skýr og falleg mynstur.
• Tilvalin til að gera laufabrauðsgerðina skemmtilegri og auðveldari.
• Mynstrið er 19 mm breitt og hjólið hefur tólf tennur

Við eigum nokkur eintök til sölu, verð 24.500 kr

Ef þú hefur áhuga, hafðu samband eða komdu við hjá okkur til að tryggja þér eintak fyrir hátíðarnar.

Address

Laufásgata
Akureyri
600

Opening Hours

Monday 07:45 - 15:45
Tuesday 07:45 - 15:45
Wednesday 07:45 - 15:45
Thursday 07:45 - 15:45
Friday 07:45 - 15:00

Telephone

+3548625803

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when N.Hansen posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to N.Hansen:

Share