23/04/2025
Þar sem að ekki allir náðu að mæta á fundinn þá setjum við skjalið sem þarf að fylla út og senda til okkar hérna á síðun. Það er enn opið fyrir að taka þátt í þessu og fá tilboð. Það er ekkert bindandi að fá tilboð.
Á fundið með aðilum frá Sveitafélaginu kom ábending um að sumir hefðu spurt af hverju bara Bíldudalur en ekki aðrir. Samsung voru fljótir til að svara því og að sjálfsögðu gildir þetta tilboð fyrir alla Vesturbyggð. Við erum að byrja á því að kynna þetta fyrir Bíldudal og hugmyndin um Bíldudal er sú að þetta geti verið góð kynning bæði fyrir Samsung og Bíldudal sem mun einnig kynna Vesturbyggð í heild með því.
Þannig að allir sem eru í Vesturbyggð er velkomið að fylla út þetta blað og senda inn til okkar. [email protected]
Vinna er byrjuð á þeim umsóknum sem komnar eru og verið að vinna í þeim og í framhaldi af því munum við senda út tilboð ásamt nánari upplýsingum um mögulegan orkusparnað.
Enn og aftur viljum þakka frábærar viðtökur og hlakkar okkur mikið til að geta unnið að því að spara raforku með ykkur.