31/03/2026
Stóriðjuskóli Fjarðaáls í HR 🎓🛠️
Í útskriftarferð 20 framhaldsnema stóriðjuskóla Alcoa Fjarðaáls heimsótti hópurinn m.a. Háskólann í Reykjavík.
Í viðtali við vef háskólans sagði Ingibjörg fræðslustjóri: "Alcoa Fjarðaál leggur ríka áherslu á að styðja starfsfólk í að vaxa og þróast í starfi, til að mynda með styrkjum til náms. Þannig má segja að hönd í hönd sé fyrirtækið og starfsfólkið að búa til þá sérfræðiþekkingu og hæfni sem rekstur álversins þarfnast."
"Það er einmitt hluti af ástæðunni fyrir því að Alcoa reisti álver fyrir austan, til þess að styðja við byggðarþróun sem m.a. felst í hærra menntunarstigi í fjórðungnum."
Hópur verðandi útskriftarnemenda úr stóriðjuskóla Alcoa Fjarðaáls kíktu í heimsókn í HR nýverið. Í hópnum voru 20 nemendur sem munu útskrifast úr framhaldsnámi skólans í lok apríl. Stóriðjuskólinn er samstarfsverkefni Alcoa Fjarðaáls og Austurbrúar og býðst starfsfólk...