Alcoa Fjarðaál

  • Home
  • Alcoa Fjarðaál

Alcoa Fjarðaál Hlutverk álvers Alcoa Fjarðaáls á Reyðar­firði er að fram­leiða ál á hag­kvæman, örugg­an og samfélagslega ábyrgan hátt.

09/06/2026

Sjálfbærniverkefni Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar er nú lokið.

Í þessu myndbandi eru teknar saman helstu niðurstöður lokaskýrslu verkefnisins, sem leitast við að svara því hvaða áhrif raforkuvinnsla og álvinnsla hafa haft á samfélag, efnahag og umhverfi á Austurlandi.

Lokaskýrsluna má nálgast hér: https://gqr.sh/yUu6

Nú á dögunum fengum við í Fjarðaáli heimsókn frá Yati Varshneya, nýjum yfirmanni rekstrar Alcoa í Evrópu.Heimsóknin gaf ...
01/06/2026

Nú á dögunum fengum við í Fjarðaáli heimsókn frá Yati Varshneya, nýjum yfirmanni rekstrar Alcoa í Evrópu.
Heimsóknin gaf gott tækifæri til að segja frá starfseminni, fyrir Yati að kynnast daglegum rekstri og hitta hluta af okkar öfluga teymi. Það var sérstaklega ánægjulegt að heyra hvað það var henni augljóst hversu vænt starfsfólki þykir um vinnustaðinn sinn og hversu mikilvægu hlutverki Alcoa gegnir í samfélaginu hér fyrir austan.
Við þökkum Yati kærlega fyrir komuna – og ekki síður okkar frábæra starfsfólki fyrir fagmennsku og metnað í öllu sem þið gerið, alla daga 💙

13/05/2026

"Það sem gefur starfinu mínu ákveðna þýðingu er kannski að maður upplifir að á hverjum degi er maður að gera eitthvað sem skiptir máli"

Uppalinn í sveitinni og starfar nú í alþjóðlegu teymi sérfræðinga hjá Alcoa. Jóhann hefur á sínum 15 árum hjá Alcoa gegnt s*x ólíkum hlutverkum, starfað með fólki um allan heim og unnið með nýjustu tækni í áliðnaði – allt á meðan hann hefur byggt upp líf og fjölskyldu á Egilsstöðum.

Langar þig að hafa áhrif á heiminn, þróast í starfi og vera hluti af öflugri menningu þar sem öryggi er í fyrirrúmi? Skoðaðu tækifærin hjá Alcoa Fjarðaáli: https://www.alcoa.com/careers/en/regions

🌱 Þriðja árið í röð hlýtur Alcoa Fjarðaál Sjálfbærniásinn, með hæstu einkunn meðal álframleiðenda - og fyrir það erum vi...
09/05/2026

🌱 Þriðja árið í röð hlýtur Alcoa Fjarðaál Sjálfbærniásinn, með hæstu einkunn meðal álframleiðenda - og fyrir það erum við afar þakklát 💙

Þessi viðurkenning skiptir okkur miklu máli því hún endurspeglar hvernig almenningur metur störf okkar í sjálfbærnimálum.

Á hverjum degi vinnur starfsfólkið okkar að því að framleiða ál með einu lægsta kolefnisfótspori í heimi - á öruggan, ábyrgan og sjálfbæran hátt. Það er þessi menning sem skapar raunverulegan árangur 🌍

Við erum stolt af þessari viðurkenningu og enn stoltari af teyminu okkar 💙

🎓 Við óskum þeim 18 einstaklingum sem útskrifuðust úr framhaldsnámi Stóriðjuskóla Fjarðaáls innilega til hamingju 👏Fyrir...
09/05/2026

🎓 Við óskum þeim 18 einstaklingum sem útskrifuðust úr framhaldsnámi Stóriðjuskóla Fjarðaáls innilega til hamingju 👏

Fyrir útskriftarathöfnina kynntu nemendur lokaverkefni sín fyrir samstarfsfólki í álverinu, verkefni sem byggðu á raunverulegum viðfangsefnum úr starfsemi Fjarðaáls og styðja við áframhaldandi umbætur í rekstrinum.

Við erum afar stolt af Stóriðjuskólanum og þeim fjölmenna hópi starfsfólks sem hefur lokið þessu metnaðarfulla námi sem styrkir þekkingu, öryggisvitund og faglega færni 💙

Næsta vetur verður nýr hópur tekinn inn í framhaldsnám skólans - nemendur sem luku grunnnámi í lok síðasta árs og halda þá áfram vegferð sinni.

Glæsilegur hópur sem útskrifast úr framhaldsnámi stóriðjuskóla Fjarðaáls í vor 👏
03/04/2026

Glæsilegur hópur sem útskrifast úr framhaldsnámi stóriðjuskóla Fjarðaáls í vor 👏

Nemendur í framhaldsnámi við stóriðjuskóla Alcoa Fjarðaáls fóru nýverið í vettvangsferð til Reykjavíkur þar sem þeir kynntu sér bæði atvinnulíf og möguleika til áframhaldandi náms.

Sjá frétt í efstu athugasemd.

Stóriðjuskóli Fjarðaáls í HR 🎓🛠️Í útskriftarferð 20 framhaldsnema stóriðjuskóla Alcoa Fjarðaáls heimsótti hópurinn m.a. ...
31/03/2026

Stóriðjuskóli Fjarðaáls í HR 🎓🛠️
Í útskriftarferð 20 framhaldsnema stóriðjuskóla Alcoa Fjarðaáls heimsótti hópurinn m.a. Háskólann í Reykjavík.

Í viðtali við vef háskólans sagði Ingibjörg fræðslustjóri: "Alcoa Fjarðaál leggur ríka áherslu á að styðja starfsfólk í að vaxa og þróast í starfi, til að mynda með styrkjum til náms. Þannig má segja að hönd í hönd sé fyrirtækið og starfsfólkið að búa til þá sérfræðiþekkingu og hæfni sem rekstur álversins þarfnast."

"Það er einmitt hluti af ástæðunni fyrir því að Alcoa reisti álver fyrir austan, til þess að styðja við byggðarþróun sem m.a. felst í hærra menntunarstigi í fjórðungnum."

Hópur verðandi útskriftarnemenda úr stóriðjuskóla Alcoa Fjarðaáls kíktu í heimsókn í HR nýverið. Í hópnum voru 20 nemendur sem munu útskrifast úr framhaldsnámi skólans í lok apríl. Stóriðjuskólinn er samstarfsverkefni Alcoa Fjarðaáls og Austurbrúar og býðst starfsfólk...

🎉 20 ár í Fjarðaáli – til hamingju! 🎉Við erum einstaklega stolt af því góða teymi sem myndar vinnustaðinn okkar. Nú hafa...
27/03/2026

🎉 20 ár í Fjarðaáli – til hamingju! 🎉

Við erum einstaklega stolt af því góða teymi sem myndar vinnustaðinn okkar. Nú hafa átta starfsmenn náð 20 ára starfsaldri hjá fyrirtækinu.

Í vikunni fögnuðum við þessu merka starfsafmæli frábærra samstarfsfélaga: Gísla Gylfasyni, Ingu Láru Ásgeirsdóttur, Júlíusi Brynjarssyni, Smára Kristinssyni, Jóni Óla Benediktssyni og Stefáni Karli Guðmundssyni.

Á síðasta ári fögnuðum við einnig Hilmari Sigurbjörnssyni og Aðalheiði Vilbergsdóttur, sem voru þau fyrstu til að ná þessum áfanga.

Við óskum þeim og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með hjartans þökkum fyrir tryggðina, þekkinguna og ómetanlegt framlag í öll þessi ár 💙👏

25/03/2026

Hvar sem við erum í heiminum sýna teymi Alcoa hvað skuldbinding þýðir í raun og veru: fólk sem mótar heiminn í kringum sig með raunverulegum áhrifum, dag eftir dag.

🎥 Horfðu á myndbandið þar sem samstarfsfólk okkar víðs vegar um heiminn kemur fram og sjáðu hvernig metnaður þeirra mótar framtíð áliðnaðarins.

Hefur þú áhuga á starfi hjá Alcoa? Kynntu þér tækifærin sem við bjóðum upp á:
https://bit.ly/44Mnte6

Í dag er föstudagurinn 13. mars - alþjóðlegur dagur álsins. Af því tilefni er hér skemmtilegur fróðleikur sem tvinnar sa...
13/03/2026

Í dag er föstudagurinn 13. mars - alþjóðlegur dagur álsins. Af því tilefni er hér skemmtilegur fróðleikur sem tvinnar saman ál og ýmsa hjátrú.

Hjátrúin segir: Forðist töluna 13
Vísindin segja: Skapið með henni

Address

Hrauni 1

701

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

4707700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Alcoa Fjarðaál posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Alcoa Fjarðaál:

  • Want your business to be the top-listed Engineering Company?

Share