23/01/2026
Lofandi prufutúr á Berki NK
Nýverið tók Börkur NK frá Neskaupstað í notkun nýjustu gerð af SeaKing kolmunatrolli frá Egersund. Trollið er 2.560m að stærð og var sett upp á starfstöð Egersund á Eskifirði. Samhliða prufunum fékk Börkur NK einnig afhendan kolmunapoka sem einnig er nýr af nálinni.
Kolmunapokarnir frá Egersund hafa komið afar vel út en með þessari nýju hönnun hefur veiðigetan aukist. Samhliða þessu hefur Beitir NK einnig fest kaup á samskonar poka.
Hönnun og fyrstu prufur fóru fram á haustmánuðum í samstarfi við Egersund Traal þar sem notast var við Norðursjávar tilraunatankinn í Hirtshals í Danmörku sem er stærsti sinnar tegundar í Evrópu. Segja má að hér sé um að ræða nokkuð hefðbundin hönnunar- og framleiðsluferil hjá Egersund að því undanskildu að strax við hugmyndavinnu var ákveðið að fá að borðinu skipstjórnarmenn frá Íslandi en frá Síldarvinnslunni tók þátt Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri á Berki.
„Egersund hafði samband við mig á vormánuðum 2025 til að kanna áhugann hjá mér að taka þátt í að hanna og þróa nýtt kolmunatroll og var ég strax spenntur fyrir því. Við og stýrimennirnir áttum þó nokkra fundi með Egersund þar sem hugmyndum var kastað á milli varðandi uppsetningu á trollinu og efnisval. Þegar allir aðilar voru loks sáttir við niðurstöðuna á teikningu var trollið prufað í tilraunatanknum í október 2025. Í tanknum sáum við að það væri gríðarlega mikil opnun á trollinu, opnun sem ég hef ekki séð á sambærilegum trollum og var því mikil spenna að prófa trollið“ segir Hjörvar.
Herbert Jónsson, einnig skipstjóri á Berki segir að túrinn hafi gengið frábærlega heilt yfir. „Trollið er vel vandað og öflugt veiðarfæri, en þetta troll er með mun meiri opnun eða um 50-60% meiri opnun en sambærileg troll. Trollið smalar vel og skilar vel niður í poka og einnig gott að vinna trollið. Það er alltaf gaman að prufa sig áfram með veiðarfæri og ekki skemmir fyrir að það hafi gengið svona vel í fyrsta túr sem skipstjóri á Berki NK. Það er alveg klárt mál að trollið er að gera góða hluti og við erum heilt yfir gríðarlega sáttir með bæði trollið og pokann. Við náðum fullfermi, rúmlega 3.300 tonnum á fimm sólarhringum.“
Hlynur Bjarnason verkefnastjóri hjá Egersund Ísland segist afar ánægður með samstarfið við Síldarvinnsluna og áhöfnina á Berki. „Frá því að við réðumst í þetta verkefni höfum við séð hvað samstarf við skipstjóra og sjómenn er mikilvægt. Í okkar huga er það undirstaða hönnunar og þróunar veiðarfæra. Við erum einnig afar þakklátir fyrir traustið sem jafn öflugt fyrirtæki í heimabyggð og Síldarvinnslan sýnir okkur, segir Hlynur.
EN: Promissing test run on Borkur NK
Recently, Börkur NK from Neskaupstaður put into service the latest version of the SeaKing blue whiting trawl from Egersund. The trawl has a size of 2.560m and was rigged at Egersund’s service station in Eskifjörður. In parallel with the trials, Börkur NK also received delivery of a blue whiting codend, which is likewise brand new. Blue whiting codends from Egersund have performed extremely well, and with this new design the fishing efficiency has increased further. At the same time, Beitir NK has also purchased a codend of the same type.
The design work and initial trials took place during the autumn months in cooperation with Egersund Traal, using the North Sea research tank in Hirtshals, Denmark, which is the largest of its kind in Europe. It can be said that this followed a fairly typical Egersund design and production process, with the exception that from the very start of the concept phase it was decided to involve skippers from Iceland. From Síldarvinnslan, skipper Hjörvar Hjálmarsson of Börkur took part.
“Egersund contacted me in the spring of 2025 to gauge my interest in taking part in designing and developing a new blue whiting trawl, and I was immediately excited about it. We and the first mates had quite a few meetings with Egersund where ideas were exchanged regarding the trawl setup and choice of materials. Once everyone was finally satisfied with the design drawings, the trawl was tested in the research tank in October 2025. In the tank we saw that the trawl had an enormous opening, an opening I have not seen on comparable trawls so there was great anticipation to try it out,” says Hjörvar.
Herbert Jónsson, also a skipper on Börkur, says that the trip went extremely well overall. “The trawl is well built and is a very powerful fishing gear, and this trawl has much greater opening -around 50–60% more opening than comparable trawls. It herds fish well and delivers efficiently into the codend, it is also good to work with on deck. It’s always fun to experiment with fishing gear, and it certainly doesn’t hurt that it performed so well on my first trip as skipper on Börkur NK. It’s absolutely clear that the trawl is doing great things, and overall we are extremely satisfied with both the trawl and the codend. We achieved a full vessel of fish, just over 3.300 tonnes in five days.”
Hlynur Bjarnason, project manager at Egersund Iceland, says he is very pleased with the cooperation with Síldarvinnslan and the crew of Börkur. “Since we embarked on this project, we have seen how important collaboration with skippers and seafarers is. In our view, that is the foundation of designing and developing fishing gear. We are also very grateful for the trust shown to us by such a strong local company as Síldarvinnslan,” says Hlynur.
Myndir / Pictures: Atli Rúnar Eysteinsson, Guðlaugur Birgisson & Egersund Ísland