Grundun ehf

Grundun ehf Umhverfisvænar stauralausnir í grundunarverkefni - TRM seigjárnsstaurar fyrir öll mannvirki

Grundun ehf. þakkar samstarf og ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða. Þetta var annað starfsárið og við tökum fagn...
31/12/2024

Grundun ehf. þakkar samstarf og ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða. Þetta var annað starfsárið og við tökum fagnandi á móti því þriðja. Á árinu áttum við góð og mikil samskipti við verkfræðistofur og verktaka auk okkar frábæru félaga hjá TRM og VÉL. Stórum og smáum verkefnum fjölgar og fleiri sjá hag sinn í að nota TRM stauralausnir frá Grundun ehf. enda öruggt, einfalt og hagkvæmt í margskonar grundunarverkefni sem jarðlög á Íslandi bjóða upp á. Við höfum á árinu unnið við krefjandi jarðvegsaðstæður þar sem kostnaðarsamt eða ómögulegt er að skipta um jarðveg. Á þeim stöðum hafa TRM stauralausnir hafa sannað gildi sitt sem örugg, hagkvæm og sjálfbær grundunarlausn undir stórar sem smáar byggingar.

PARHÚS BYGGT Á MÝRLENDITRM seigjárnsstaurar eru afar hentug lausn fyrir mýrlendi og sendinn jarðveg þar sem djúpt er nið...
23/07/2024

PARHÚS BYGGT Á MÝRLENDI
TRM seigjárnsstaurar eru afar hentug lausn fyrir mýrlendi og sendinn jarðveg þar sem djúpt er niður á fastan berggrunn. Sjá freakri upplýsingar hjá www.grundun.is

Á vordögum 2023 hófst undirbúningur fyrir byggingu parhúss sem stendur á mýri. Ákveðið var að nota TRM stauralausnir frá Grundun ehf, enda var sú lausn hagkvæmust og öruggust. Mýrin var misdjúp, en dýpt niður á fast var frá 4.5 m. í tæpa 9 m.
Myndaserían sýnir söguna frá því að malarpúði var settur, TRM seigjárnstaurar reknir niður, sökkull byggður og steyptur, steypujárnum komið fyrir. Staurarnir eru tengdir við sökkla og plötu með járnakörfum. Hús steypt upp, þök byggð og gluggar settir í. Að verkinu komu VAarkitektar, Tensio verkfræðistofa, VÉL ehf. sá um jarðvinnu (malarpúða) og stauraniðurrekstur, Urðarafl ehf. sá um uppsteypu og Þakco sá um þök, glugga- og hurðarísetningar og klæðningu á húsin.
Vel heppnað verkefni, sem gaman verður að sjá fullbúið!

PARHÚS BYGGT Á MÝRLENDIÁ vordögum 2023 hófst undirbúningur fyrir byggingu parhúss. Ákveðið var að nota TRM stauralausnir...
23/07/2024

PARHÚS BYGGT Á MÝRLENDI
Á vordögum 2023 hófst undirbúningur fyrir byggingu parhúss. Ákveðið var að nota TRM stauralausnir frá Grundun ehf, enda var sú lausn hagkvæmust og öruggust. Mýrin var misdjúp, en dýpt niður á fast var frá 4.5 m. í tæpa 9 m.
Myndaserían sýnir söguna frá því að malarpúði var settur, TRM seigjárnstaurar reknir niður, sökkull byggður og steyptur, steypujárnum komið fyrir og járnabundið utan um hvern staur. Hús steypt upp, þök byggð og gluggar settir í. Að verkinu komu VAarkitektar, Tensio verkfræðistofa, VÉL ehf. sá um jarðvinnu (malarpúða) og stauraniðurrekstur, Urðarafl ehf. sá um uppsteypu og Þakco sá um þök, glugga- og hurðarísetningar og klæðningu á húsin.
Vel heppnað verkefni!

Grundun ehf óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla árs og friðar. Þökkum viðtökurnar á árinu sem er að líða og hlökkum ...
24/12/2023

Grundun ehf óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla árs og friðar. Þökkum viðtökurnar á árinu sem er að líða og hlökkum til að vinna með ykkur á nýju ári. Stauralausnir eru fljótlegar, hagkvæmar, einfaldar, öruggar og umhverfisvænar.

Staurarnir komnir í jörðina og búið að fylla þá af steypu. Verkefninu lokið af hendi VÉL  og Grundun ehf. Vel að verki s...
10/11/2023

Staurarnir komnir í jörðina og búið að fylla þá af steypu. Verkefninu lokið af hendi VÉL og Grundun ehf. Vel að verki staðið, nýr leikskóli rís á traustum grunni. Rask og óþægindi eins lítil og hugsast g*t. Sveitarfélagið Hornafjörður horfði til sjálfbærni og grænna umhverfislausna þegar TRM stauralausnir voru valdar. Vel gert!

Sveitarfélagið Hornafjörður (Björn Þór Imsland) fékk stauralausnir frá Grundun ehf. í undirstöður undir nýjan leikskóla ...
09/11/2023

Sveitarfélagið Hornafjörður (Björn Þór Imsland) fékk stauralausnir frá Grundun ehf. í undirstöður undir nýjan leikskóla sem rísa mun á öruggum og styrkum TRM seigjárnsstaurum. VÉL sá um verkið sem gekk vel. VÉL ehf. er viðurkenndur aðili af TRM og Grundun til niðurreksturs stauranna.
Seigjárnsstaurar eru örugg og góð lausn þar sem jarðvegur er erfiður og djúpur og þar sem hús standa nálægt.

Grundun ehf og Tiroler Rohre GmbH (TRM) fagna mikilvægum áfanga með samstarfsaðila sínum, VÉL ehf.Frá því í maí og fram ...
12/10/2023

Grundun ehf og Tiroler Rohre GmbH (TRM) fagna mikilvægum áfanga með samstarfsaðila sínum, VÉL ehf.
Frá því í maí og fram í september 2023 hefur Vél ehf. unnið sín fyrstu verkefni með TRM rekstaurakerfin á Íslandi. Samhliða framkvæmdum hafa og Rohre Gmbh verið með stöðuga þjálfun og tæknilegan stuðning á verkstað.
Það var eftirminnileg stund þann 6. september, þegar og Rohre GmbH gáfu út og afhentu Þóri Gísla Sigurdssynihjá Vél ehf. viðurkenningarskjölin, en VÉL er fyrsta íslenska fyrirtækið sem fær fulla viðurkenningu frá TRM til að reka niður seigjárnsstaura, bæði í senn fyrir:
1) Enda-berandi, óhjúpaða rekstaura, og
2) Núningsberandi og enda-berandi hjúpaða (grautaða) rekstaura.

Við þökkum VÉL ehf. innilega fyrir traust þeirra á okkur og rekstauralausnum okkar.
Það er mikils virði að fá í lið með okkur ábyggilegan og faglega viðurkenndan verktaka sem hefur alla þá þekkingu og hæfni sem þarf til að taka að sér framkvæmd og framfylgni við allar lausnir okkar, verkferla og verkskil, í samræmi við faglegar og tæknilegar kröfur TRM.

Viðstaddir voru meðal annarra starfsmenn Verkfræðistofunnar Tensio, Kristinn Eiriksson verkfræðingur, Freddy Rodrigo López Loayza jarðtækniverkfræðingur frá TRM, Thorvaldur Tryggvason frá Grundun auk viðskiptavina fyrri verkefna.

Grundun ehf, hóf starfsemi í febrúar 2023 með það markmið að auka, bæta og þróa notkun stauratækni og rekstaurakerfa við...
12/10/2023

Grundun ehf, hóf starfsemi í febrúar 2023 með það markmið að auka, bæta og þróa notkun stauratækni og rekstaurakerfa við grundun mannvirkja á Íslandi.
Með það að leiðarljósi tókum við höndum saman með TRM Tiroler Rohre GmbH í Austurríki, sem leiðandi aðila í framleiðslu seigjárnsstaura í Evrópu, til að þjónusta Íslenskan markað með vönduð og þaulreynd TRM rekstaurakerfi.

Fljótlegt - Öruggt - Einfalt - Hagkvæmt .. og Sjálfbært

Ef verkefni þitt þarfnast sértækra lausna á sviði grundunar vegna djúps og/ eða erfiðs jarðvegs þá hafðu samband. Okkur er sönn ánægja að aðstoða við að finna heppilega stauralausn.

Djúpgrundun með rekstaurum er hagkvæm, örugg, einföld,fljótleg og umhverfisvæn.Við sérhæfum okkur í djúpgrundun með TRM-...
12/10/2023

Djúpgrundun með rekstaurum er hagkvæm, örugg, einföld,
fljótleg og umhverfisvæn.
Við sérhæfum okkur í djúpgrundun með TRM-rekstaurum (Ductile Iron Piles). TRM rekstaurar eru hagkvæmar lausnir fyrir
mýrlendi, sanda og djúpan eða burðarlítinn jarðveg.
Ráðgjöf, sala, framkvæmd, eftirlit.

Staurarnir eru framleiddir í Austurríki, þeir eru gæða- og
umhverfisvottaðir eftir ströngum Evrópskum stöðlum.
Við sjáum um eftirfarandi verkferla í samvinnu við VÉL ehf., sem er af TRM viðurkennt fyrirtæki til að annast niðurrekstur staura samkvæmt ströngustu kröfum.
- afhendingu og niðurrekstur stauranna,
- nákvæmt eftirlit með framkvæmd,
- verkskýrslur og fagleg verkskil sem uppfylla gæðakröfur og Eurocode staðla.

Address

Holtsvegur 11
Garðabær
210

Telephone

+3546996354

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Grundun ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share