Kabola er hollenskur framleiðandi sem startaði 1947 með framleiðslu á dísilhitakerfum fyrir skipaiðnaðinn.
Þegar fækkaði í áhöfn skipa og upphitaðar vistarverur urðu minni og betur einangraðar, þá stækkaði markaður Kabola með þróun og framleiðslu á hitakerfum fyrir minni báta og snekkjur.
Í dag er Kabola brautryðjandi hönnuður á olíu- og dísilknúnum miðstöðvarkerfum til viðvarandi notkunar og smí
ðar fjölbreytt úrval af kötlum fyrir járnbrautir, rútur, fyrirtæki og heimili um allan heim. Katlar okkar keyra á dísil, upphitunarolíu og á öllum nýjustu tegundum af umhverfiseldsneyti. Að auki bjóðum við upp á hybrid kerfi sem skipta sjálfkrafa yfir á rafmagn er það stendur til boða. Kabola er hollenskur framleiðandi á miðstöðvarhitakerfum til daglegrar notkunar.
Þökk sé nýsköpun, löngum líftíma framleiðslunnar og framúrskarandi þjónustu, er Kabola leiðandi í framleiðslu á kerfum sem spanna 7 til 116 KW. Vegna nýrrar tæknikunnáttu geta olíuhituð kerfi nú einnig verið hrein, efnahagslega hagkvæm fyrir þann sem ekki fær niðurgreitt rafmagn til hitunar og verið hljóðlát. Hitakerfin frá Kabola er hægt að nota stöðugt og hafa væntingar um meðal líftíma um 15-20 ár, eða meira. Katlar okkar koma í útgáfum fyrir skip og báta, rútur, húsnæði og ferðahýsi og við getum einnig sérhannað stærri kerfi. Öll kerfi eru afgreidd með 5 ára ábyrgð. Við bjóðum einnig upp á fjölbreytt úrval af neysluvatnskötlum, ofnum og fylgihlutum. Vinsamlegast hafið samband til að biðja okkur um ráðgjöf.