25/09/2026
Risastór viðbót við Auðlindagarð HS Orku 💦
Það er ótrúlega spennandi að fylgjast með uppbyggingu landeldis Samherja í bakgarðinum okkar við Reykjanesvirkjun en þar rís nú ein stærsta laxeldisstöð landsins.
Meginástæðan fyrir staðarvali Samherja í Auðlindagarðinum er aðgengið að ylsjó, ferskvatni og raforku frá Reykjanesvirkjun.
Samherji nýtir straumana frá okkur en stefnir einnig að því að skapa nýjar hliðarafurðir og strauma sem aðrir í nærumhverfinu geta nýtt til frekari verðmætasköpunar á svæðinu.
Fyrirætlanir Samherja falla sérlega vel að hugmyndafræði Auðlindagarðsins um hringrásarhagkerfið þar sem afgangur eins verður auðlind annars ♻️
Hægt er að lesa meira um verkefnið í meðfylgjandi frétt Víkufrétta.
Víkurfréttir I Samherji
Áætlað er að taka á móti fyrstu laxaseiðunum í nýrri laxeldisstöð Samherja á Reykjanesi í apríl næstkomandi. Verkefnið hefur verið í undirbúningi í um sjö ár og er eitt það stærsta sinnar tegundar á Íslandi. Meira í frétt.
https://www.vf.is/frettir/40-milljarda-fiskeldisverkefni-samherja-tekur-a-sig-mynd-a-reykjanesi