Rio Tinto á Íslandi

Rio Tinto á Íslandi Álverið ISAL í Straumsvík er rekið af Rio Tinto á Íslandi ehf. Í Straumsvík hefur verið framleitt ál frá árinu 1969.

Skýrslan Samfélag og sjálfbærni fyrir árið 2025 er komin út en í henni er farið ítarlega yfir alla helstu þætti starfsem...
29/06/2026

Skýrslan Samfélag og sjálfbærni fyrir árið 2025 er komin út en í henni er farið ítarlega yfir alla helstu þætti starfsemi Rio Tinto á Íslandi á liðnu ári. Við leggjum mikla áherslu á að starfsemi fyrirtækisins sé í góðri sátt við umhverfi og samfélag og að hagsmunaaðilar og nærsamfélag geti kynnt sér starfsemina og þau áhrif sem hún hefur. Fjallað er ítarlega um umhverfismál, fólkið í Straumsvík, samfélagið og efnahagsleg áhrif en allt eru þetta lykilþættir í sjálfbærri og ábyrgri starfsemi.

Skýrsluna má nálgast hér: https://riotinto.is/frettir/frett/?documentId=c1bd096b-1e60-4130-aa99-1ac9392b8557

Rio Tinto á Íslandi er helsti stuðningsaðili Ratleiks Hafnarjarðar. Leikurinn á sér langa sögu og hefur í gegnum árin au...
18/06/2026

Rio Tinto á Íslandi er helsti stuðningsaðili Ratleiks Hafnarjarðar. Leikurinn á sér langa sögu og hefur í gegnum árin aukið áhuga fólks á útivist í upplandi Hafnarfjarðar. Leikurinn er frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna og hentar öllum sem vilja njóta útivistar og læra um fróðlega staði í kringum bæinn.

Kortin eru fáanleg víða um bæinn en þema leiksins í árs er "Hraunin ofan Hafnarfjarðar".

Íþróttastyrkir til aðildarfélaga ÍBH vegna íþróttastarfs barna voru afhentir í Straumsvík í vikunni. Fulltrúar 15 félaga...
05/06/2026

Íþróttastyrkir til aðildarfélaga ÍBH vegna íþróttastarfs barna voru afhentir í Straumsvík í vikunni. Fulltrúar 15 félaga komu og afhenti Sunna Björg Helgadóttir, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, styrkina. Við erum afar stolt af því að geta stutt við íþróttastarf barna og unglinga í bænum með þessum hætti.

Fyrir skömmu útskrifuðust sautján nemendur, sem jafnframt eru starfsfólk álversins í Straumsvík, úr grunnnámi Stóriðjusk...
01/06/2026

Fyrir skömmu útskrifuðust sautján nemendur, sem jafnframt eru starfsfólk álversins í Straumsvík, úr grunnnámi Stóriðjuskólans við hátíðlega athöfn. Alls hafa nú 285 einstaklingar lokið grunnnámi að útskriftahópnum meðtöldum, en þessi hópur var 22. hópurinn sem útskrifast úr grunnnámi. Verðlaun voru veitt fyrir bestan námsárangur og ástundun. Útskriftanemarnir, sem hljóta að loknu námi titilinn Stóriðjugreinar, koma úr ýmsum deildum innan fyrirtækisins.

Atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, var viðstödd útskriftina og ávarpaði útskriftarnema. Rannveig Rist, fráfarandi forstjóri Rio Tinto á Íslandi, flutti einnig ávarp, en skólinn var stofnaður á fyrstu árum hennar sem forstjóri.

Stóriðjuskólinn hefur verið starfræktur í Straumsvík frá árinu 1998. Markmið skólans er að auka verðmætasköpun og samkeppnisfærni, auðvelda innleiðingu breytinga og gera vinnustaðinn eftirsóknarverðari. Námið er hugsað til að efla þekkingu starfsólks, öryggisvitund og starfsánægju og einnig auka möguleika á starfsmenntun og þróun í starfi.

Jérôme Pécresse, æðsti yfirmaður ál- og lithíumstarfsemi Rio Tinto var í áhugaverðu viðtali við Viðskiptablaðið í vikunn...
22/05/2026

Jérôme Pécresse, æðsti yfirmaður ál- og lithíumstarfsemi Rio Tinto var í áhugaverðu viðtali við Viðskiptablaðið í vikunni. Í því fjallar Jérôme um stöðuna í áliðnaði og mikilvægi þess að raforkuverð sé samkeppnishæft í alþjóðlegu samhengi.

Forstjóri hjá Rio Tinto segir að hátt raforkuverð og erfitt samband við orkufyrirtæki geti haft verulega neikvæð áhrif á álverin.

Fyrir skömmu hlaut Rio Tinto á Íslandi tilnefningu sem Fyrirtæki ársins, sem eru verðlaun á vegum Markaðsstofa Hafnarfja...
21/05/2026

Fyrir skömmu hlaut Rio Tinto á Íslandi tilnefningu sem Fyrirtæki ársins, sem eru verðlaun á vegum Markaðsstofa Hafnarfjarðar. Verðlaunin, sem veitt eru árlega, eru viðurkenning til fyrirtækis sem hefur með starfsemi sinni, metnaði og jákvæðum áhrifum skarað fram úr í að efla atvinnulíf og samfélag í bænum. Að þessu sinni var Rio Tinto á Íslandi, álverið í Straumsvík, tilnefnt til verðlaunanna, sem undirstrikar mikilvægt hlutverk fyrirtækisins sem eins helsta burðarás atvinnulífs í sveitarfélaginu. Álverið í Straumsvík hefur um langt árabil haft víðtæk áhrif á samfélagið, skapað fjölda starfa og lagt sitt af mörkum til uppbyggingar og þróunar, auk þess að búa yfir sterkri þekkingu og djúpum rótum í sögu og framþróun atvinnulífs í Hafnarfirði. Starfsfólk Rio Tinto á Íslandi þakkar innilega fyrir þessa mikilvægu tilnefningu sem hvetur okkur áfram til góðra verka og áhrifa í okkar nærsamfélagi.

Við fengum góða gesti úr Verzló á dögunum þegar nemendur úr skólanum kynntu sér starfsemina í Straumsvík. Fyrir okkur er...
02/03/2026

Við fengum góða gesti úr Verzló á dögunum þegar nemendur úr skólanum kynntu sér starfsemina í Straumsvík. Fyrir okkur er mikilvægt að eiga samtal við unga fólkið og heyra þeirra sjónarmið.

02.03.2026 Nemendur í 3R og 3U fá innsýn í álframleiðslu Nemendur á líffræðisviði í jarðfræði fengu að kynnast starfsemi Rio Tinto í Straumsvík. Þar fer fram framleiðsla á áli, sem er ein af undirstöðum íslensks atvinnulífs. Álverin á Íslandi nýta yfir 80% af þeirri ra...

Ánægjulegt að myndarlegur styrkur frá Rio Tinto haldi áfram að nýtast samfélaginu sem varð fyrir mestum áhrifum vegna ja...
11/02/2026

Ánægjulegt að myndarlegur styrkur frá Rio Tinto haldi áfram að nýtast samfélaginu sem varð fyrir mestum áhrifum vegna jarðhræringa Grindavík. Skyndihjálp er nauðsynlegt þekking sem nýtist öllum, ekki síst ungmennum.

❤️‍🩹Öllum ungmennum á Suðurnesjum boðið á skyndihjálparnámskeið❤️‍🩹

Rauði krossinn býður öllum ungmennum á aldrinum 12–16 ára sem búsett eru á Suðurnesjum á skyndihjálparnámskeiðið Bjargvættir - viðnámsþróttur. Námskeiðin verða haldin reglulega næstu vikur og mánuði. Þátttaka er ókeypis en krefst skráningar.

🔗Lestu frétt með ítarlegri upplýsingum í fyrstu ummælum 👇

Sunna Björg Helgadóttir verður forstjóri Rio Tinto á ÍslandiSunna Björg Helgadóttir hefur verið ráðin til að verða forst...
27/01/2026

Sunna Björg Helgadóttir verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi

Sunna Björg Helgadóttir hefur verið ráðin til að verða forstjóri Rio Tinto á Íslandi. Hún mun í vor taka við af Rannveigu Rist sem gegnt hefur starfinu frá árinu 1997. Hún mun einnig taka sæti Rannveigar í framkvæmdastjórn Aluminium Atlantic deildarinnar innan Rio Tinto.

Sunna Björg hefur langa og fjölbreytta reynslu af stjórnunarstörfum meðal annars á sviði áliðnaðar og orkuframleiðslu. Sunna Björg kemur til Straumsvíkur frá HS Orku þar sem hún hefur verið framkvæmdastjóri tæknisviðs síðan 2020. Áður starfaði Sunna Björg sem framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Alvotech á árunum 2016 – 2020. Sunna Björg þekkir vel til starfsemi Rio Tinto á Íslandi en hún starfaði hjá fyrirtækinu á árunum 2001 – 2015, síðast sem framkvæmdastjóri kerskála.

Sunna Björg er með B.Sc. gráðu í efna- og vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

„Það er mér mikil ánægja að snúa aftur til starfa hjá Rio Tinto á Íslandi, sem ég þekki vel af fyrri störfum. Fyrirtækið er rótgróið en hefur jafnframt verið í stöðugri þróun og gegnt lykilhlutverki í íslenskum iðnaði í meira en hálfa öld. Það er svo sannarlega spennandi að taka við fyrirtæki sem byggir á svo traustum grunni og skýrri framtíðarsýn. Ég hlakka mikið til að leiða félagið áfram með þeim frábæra hópi starfsfólks, sem hefur verið undirstaðan að farsælum rekstri þess síðustu ár.” segir Sunna Björg.

„Ráðning Sunnu Bjargar markar tímamót fyrir álverið í Straumsvík, þar sem Rannveig Rist hefur átt farsælan og eftirtektarverðan feril sem forstjóri í tæp 30 ár. Víðtæk og fjölbreytt reynsla Sunnu mun nýtast einkar vel, bæði í rekstri sem og þróun álversins til framtíðar. Starfsreynsla hennar hjá fyrirtækinu veitir auk þess mikilvæga tengingu við starfsemi og starfsfólk fyrirtækisins. Það er alltaf ánægjulegt þegar fyrrum starfsfólk snýr aftur til fyrirtækisins reynslunni ríkari. Jafnframt vil ég nýta tækifærið til að þakka Rannveigu Rist fyrir hennar mikilsverða og dýrmæta starf. Rannveig er sannkallaður brautryðjandi og framlag hennar til fyrirtækisins og áliðnaðarins verður seint fullþakkað. Hún hefur mótað fyrirtækið með framúrskarandi leiðtogahæfileikum, framsýni og hugrekki.“ segir Sébastien Ross, framkvæmdastjóri Aluminium Atlantic hjá Rio Tinto.

Hildur Knútsdóttir, rithöfundur, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2025. Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, afhe...
07/01/2026

Hildur Knútsdóttir, rithöfundur, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2025. Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, afhenti verðlaunin, sem eru áletraður gripur úr áli frá Rio Tinto á Íslandi og ein og hálf milljón króna í verðlaunafé.

Í umsögn dómnefndar kemur meðal annars fram:

„Hildur Knútsdóttir, bjartsýnisverðlaunahafi árið 2025, á að baki langan og fjölbreyttan feril. Á tímum þar sem lestur barna og ungmenna á í vök að verjast hefur verðlaunahafinn lagt umtalsvert af mörkum og fer iðulega ótroðnar slóðir í verkum sínum. Hún er fjölhæf, hugmyndarík og afkastamikil og skrifar bæði fyrir börn og fullorðna. Það er von okkar að Bjartsýnisverðlaunin verði hvatning til hennar um að halda áfram á sömu braut, að halda áfram að skrifa áhugaverðar, heillandi og frumlegar sögur fyrir okkar mikilvægustu lesendur.“

Bjartsýnisverðlaunin eru menningarverðlaun sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981. Rio Tinto á Íslandi, sem rekur álverið í Straumsvík, hefur verið bakhjarl verðlaunanna frá árinu 2000. Forseti Íslands hefur frá upphafi verið verndari verðlaunanna.

Address

Straumsvík/Pósthólf 244
Hafnarfjörður
222

Telephone

5607000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Rio Tinto á Íslandi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Rio Tinto á Íslandi:

Shortcuts

Share