Kæling

Kæling Kæling ehf. framleiðir meðal annars krapavélar, sjókæla og kælikerfi fyrir fiskiskip á erlendum og innlendum markaði. til sögunnar. Fyrirtækið var stofnað þann 1.

Kæling þjónustar flestar tegundir kæli og frystikerfa fyrir skip og fyrirtæki í landi. er meðal leiðandi fyrirtækja á sviði kæli-, frysti- og ískrapakerfa, einkum fyrir sjávarútveg og matvælaiðnað. Fyrirtækið framleiðir meðal annars krapavélar, sjókæla og kælikerfi fyrir fiskiskip. Kerfin hafa náð fótfestu bæði hér á landi og erlendis enda varðveita þau gæði og ferskleika hráefnisins við vinnslu þ

ess og geymslu í skipunum. Með því að kæla sjó og dæla í þar til gerð kör á dekki fiskiskipa og færa fiskinn sem fyrst þangað við veiðar hefst varðveisluferli aflans um leið og fiskurinn kemur um borð. Þar koma sjókælar Kælingar ehf. Kæling framleiðir síðan búnað til ís- eða krapaframleiðslu í skipunum og kælikerfi sem heldur kjörhitastigi á farminum þar til komið er í land. Þannig má hámarka gæði hráefnisins frá veiðum til vinnslu. september árið 2005 af þeim Atla Steini Jónssyni og Erlendi Stefáni Kristjánssyni. Upphaflega var starfsemin í bílskúrnum heima hjá Atla en eftir aðeins s*x mánuði hafði hún sprengt það rými utan af sér og þá var flutt í núverandi húsnæði að Stapahrauni 6 í Hafnarfirði.

Til hamingju með daginn. Kæru sjómenn og fjölskyldur ykkar, innilega til hamingju með daginn. Sjómannadagurinn er merkil...
06/06/2026

Til hamingju með daginn.

Kæru sjómenn og fjölskyldur ykkar, innilega til hamingju með daginn. Sjómannadagurinn er merkilegur dagur sem verðugt er að fagna og virða. Fullkominn tími til að hugsa til allra þeirra sem hafa byggt upp framúrskarandi og öflugan sjávarútveg á Íslandi í fortíð og nútíð. Við hjá Kælingu Víkurafli óskum ykkur öllum innilega til hamingju með daginn.

20/05/2026

HYDRA kerfið frá Kælingu Víkurafl tekur skamman tíma í uppsetningu og skilar ávinninig hratt.

Fyrirtæki geta minnkað freon notkun um allt að 90% á kælikerfum hvort sem þau eru um borð í fiskiskipi eða í starfsstöðvum uppi á landi.

Eftir innleiðingu á HYDRA er aðeins 10% af fyrra freon magni notað og það er staðbundið við kælivélina sjálfa en umhverfisvænir kælimiðlar flæða um kælilagnirnar.

Þannig er t.d. hægt að gera kælilestar freon fríar sem og kæliklefa, frystiklefa of og fleiri kælilausnir. Þannig er hægt að útiloka að freon geti lekið yfir afla og eða afurðir.

Ef freon leki kemur upp eftir að HYDRA hefur verið sett upp þá er hann eingöngu staðbundinn við kælivélina sjálfa og lágmarkar því skaða og fjártjón sem getur hlotist af freon leka.

HYDRA er hægt að fá í mörgum stærðum allt eftir hver stærð núverandi kælikerfis er. Það er í raun ekkert kælikerfi of lítið eða of stórt. Það er hægt að gera nær öll kælikerfi mun umhverfisvænni og hagkvæmari í rekstri með HYDRA.

Hafðu samband og kynntu þér hvernig HYDRA getur gert þín kælikerfi umhverfisvænni og hagkvæmari í rekstri.

Kæling Víkurafl
Email: [email protected]
Sími: 565-7518

Nánari upplýsingar um HYDRA kerfi í fyrstu athugasemd.

Það er mikið framundan hjá Kælingu Víkurafli við endurnýjanir og uppfærslur á lestarkælingum. Við höfum verið að vinna í...
17/05/2026

Það er mikið framundan hjá Kælingu Víkurafli við endurnýjanir og uppfærslur á lestarkælingum. Við höfum verið að vinna í lotu með fjórum skipum þar sem koma á HYDRA lausn um borð og minnka þar með freon notkun við lestarkælingu um allt að 90%, og útrýma freoni algjörlega úr lestarrýmum.

HYDRA er ein af þessum einstöku lausnum sem er fljótleg í uppsetningu. Algengur uppsetningartími er ein vika, en fer að sjálfsögðu eftir umfangi og aðstæðum hverju sinni. Ef endurnýja þarf lagnir þá taka verkefnin lengri tíma en ef þær eru góðar þá tekur innleiðing á HYDRA mjög stuttan tíma.

Þessi lausn getur verið mjög fljót að borga sig upp og dregur verulega úr umhverfislegri og fjárhagslegri áhættu á freon lekum.

Kæling Víkurafl hefur nýlega lokið vinnu um borð í Núp BA 69 við að endurnýja lestarkælinguna og setja upp HYDRA kerfi fyrir útgerðarfélagðið Oddi hf.

Saga þessa skips er áhugaverð en upprunalega var þetta skip smíðað sem frystiskip og hét þá Tjaldur II, gerður út af KG fiskverkun á Rifi, þá var hann með tvo lóðrétta plötufrysta, einn lausfrysti og frystilest, á kerfinu voru um 1500 kg af kælimiðli.

Fyrir um 15 árum breyttum við í Kælingu Víkurafli þessu kerfi þannig að einungis var haldið kælingu í lestinni, eftir þær breytingar varð magn kælimiðils á kerfinu um 60 kg. Þetta skip er mjög gott dæmi um hvernig reglulegar uppfærslur og nýting tækninýjunga stuðlar að hámarks rekstrarhagkvæmni.

HYDRA kerfið er einmitt dæmi um umhverfisvæna tækninýjung sem er fljótt að borga sig. Það var því mjög ánægjulegt að fá tækifæri til að vinna með útgerðafélaginu Odda og að fara enn og aftur um borð í Núp 69 til að auka enn frekar hagkvæmni og öryggi í rekstri þess. Eftir nýjustu breytingar er einungis um 10 kg af freoni á kerfinu, staðbundið við kælivélina og -10°C glýcoli dælt inn á kælispírala lestarinnar til að ná fram kælingu.

Næst í röðinni eru þrjú skip eru frá Skinney Þinganesi:
- Steinunn SF-10
- Skinney SF-20
- Þinganes SF-25

En um borð í þessum skipum á að draga á úr freon notkun um allt að 90% og verður þá aðeins 10% freon notkun staðbundin rétt við kælivélina en umhverfisvænir kælimiðlar streyma um kælispírala og aðrar lagnir í kerfinu.

Áætlað er að klára að endurnýjun um borð í skipum Skinneyjar Þinganess í september 2026.

Nánar um þessa frétt á vef okkar:
https://cooling.is/vinsaeldir-hydra-lausnarinnar-aukast-hratt/

Starfsfólk Kælingar Víkurafls óskar viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári me...
22/12/2025

Starfsfólk Kælingar Víkurafls óskar viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með þökk fyrir ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða.

Address

Stapahraun 6
Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kæling posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Kæling:

Shortcuts

Share