22/05/2026
💪✨ Við hjá VSB erum alltaf á hreyfingu! ✨🚶♀️
Við hjá VSB erum ekki bara á fullu í spennandi verkefnum, við leggjum líka mikla áherslu á heilsu, vellíðan og góða liðsheild 💛
Sem heilsueflandi vinnustaður hvetjum við starfsfólk til hreyfingar og þátttöku, og nýlokin Strava-keppni er frábært dæmi um það. Undanfarnar 8 vikur hefur starfsólk tekið þátt í Strava keppni þar sem hægt var að safna stigum með því að skrá hreyfingu í Strava. Keppt var bæði í einstaklings- og liðakeppni og þátttakan var virkilega glæsileg 🙌
Útkoman?
🏅1.500 æfingar
🏅 Um 10.000 stig
🏅 Að meðaltali um 40 æfingar á mann 💥
Á þessum 8 vikum hjóluðum við rúmlega 3.600 km, löbbuðum 1.850 km og hlupum 1.036 km 🚴♂️🏃♀️🚶♂️
Keppninni lauk svo með verðlaunaafhendingu og skemmtilegri minigolfferð ⛳
Þessi árangur segir allt sem segja þarf! Þegar hreyfing, liðsheild og góð stemning fara saman gerast virkilega flottir hlutir ✨