Tökum að okkur uppsetningar, löggiltir pípulagningameistarar menntaðir í varmadælum. Bjóðum upp á ráðgjafaþjónustu fyrir allar gerðir húsa, einnig verkfræðiþjónustu. Fróðleikur
Helstu þættir sem líta ber til þegar hugað er að vali á varmadælu. Vatn í vatn
Vatn í vatn varmadælurnar geta lækkað rafmagnsreikninginn um 70 til 85% á ári miðað við hefðbundinn búnað. Allur viðkvæmur búnaður er staðsettu
r innanhúss. Vatn í vatn varmadælur nota ekki loft til orkuöflunar sem gerir þær óháðar veðri. Þær eru í mörgum tilfellum ódýrari kostur en Loft í vatn varmadælur. Afísing er óþörf og tapast því ekki orka með henni. Þessar varmadælur eru fáanlegar með neysluvatns hitakút. Þær geta tengst ofna-, gólfhita-neysluvatnskerfi og öllum þeim kerfum sem hitaveita væri annars notuð í. Betri varmadælur í þessum hópi breyta framrásarhita eftir þörfinni sem er hverju sinni og hámarka þannig sparnað. Loft í vatn
Loft í vatn varmadælurnar geta lækkað rafmagnsreikninginn um 50 til 75% á ári miðað við hefðbundinn búnað. Varmadælan er annað hvort staðsett innanhúss eða utan en það fer eftir gerð hennar. Þörf er á afísingu. Þessar varmadælur eru fáanlegar með neysluvatns hitakút. Loft í vatn varmadælur nota loft til orkuöflunar sem gerir þær háðar útihita. Þessar varmadælur geta tengst ofna-, gólfhita- eða neysluvatnskerfi og öllum þeim kerfum sem hitaveita væri annars notuð í. Loft í loft
Loft í loft varmadælur eru þær einföldustu sem í boði eru, spara um það bil 10 til 30% á ári í flestum tilfellum. Varmadælan er staðsett úti með því orkutapi sem því fylgir og þörf er á afísingu. Getur verið ódýr og góður kostur í eitt rými sem ekki hefur dreifikerfi. Loft í loft varmadælur nota loft til orkuöflunar sem gerir þær háðar veðri. Þessar varmadælur tengjast ekki ofna-, gólfhita eða neysluvatnskerfi.