24/08/2026
Í lok sumars byrjar rútínan hjá flestum, vinna skóli og íþróttir. Og margir fara í rútínuna í nýjum byggingum. Það átta sig ekki allir á því hvað ótrúlega margir hafa unnið mörg handtök yfir langt tímabil til að klára verkin. Hinn þrautseigi og vandvirki Toni hjá Rafverkstæði IB er ásamt kollegum búinn að setja upp og tengja græjur í endurbyggðum Holtaskóla í Reykjanesbæ. Og við höfum verið með í að græja smá. Flottur skóli þar sem við vitum að nemendum og starfsfólki mun líða vel.