Gefn

Gefn Nýsköpun í grænni efnafræði

⚙️ Lykilíhlutir fyrir stærri frumgerðina eru komnir í hús, en í henni munum við framleiða allt að 20 kg af grænu glýseró...
08/04/2026

⚙️ Lykilíhlutir fyrir stærri frumgerðina eru komnir í hús, en í henni munum við framleiða allt að 20 kg af grænu glýserólkarbónati á dag.

En hvað er í gangi? 🤔

Við hjá Gefn erum að þróa tækni sem umbreytir aukaafurðum úr iðnaði – glýseróli og CO₂ – í verðmæta efnavöru. Hugmyndin er einföld: í stað þess að farga aukaafurðum búum við til úr þeim nýjar vörur og verðmæti. ♻️

Þessi stærri frumgerð mun með tíð og tíma taka við af fyrstu frumgerðinni sem við sögðum frá í mars. Hún verður því mikilvægur áfangi á leiðinni að tilraunaverksmiðju sem mun framleiða a.m.k. tonn á dag.

Hvert skref færir okkur nær því að bjóða samstarfsaðilum sem framleiða lífdísil, fituíðefni og omega-3 tæknilausn sem aflar nýrra tekna og hefur jákvæð umhverfisáhrif. 🚀

👉 Fylgstu með okkur og sjáðu hvernig við breytum úrgangi í tækifæri!

🎉 Nú búum við til grænt glýserólkarbónat í frumgerðinni okkar!Frumgerðin okkar er byrjuð að skila árangri. Við umbreytum...
25/03/2026

🎉 Nú búum við til grænt glýserólkarbónat í frumgerðinni okkar!

Frumgerðin okkar er byrjuð að skila árangri. Við umbreytum glýseróli og CO₂ í glýserólkarbónat í samfelldu ferli og söfnum mikilvægum gögnum á leiðinni til frekari uppskölunar.

Hvað þýðir það í raun? 🤔

Í mörgum iðnaðarferlum, eins og við framleiðslu lífdísils, fituíðefna og omega-3, verður til aukaafurðin glýseról. Við hjá Gefn erum að þróa tækni sem umbreytir þessu glýseróli ásamt CO₂ í verðmæta efnavöru sem heitir glýserólkarbónat. ♻️

Þannig er hægt að:
✅ Nýta aukaafurðir betur
✅ Minnka kolefnisspor
✅ Skapa nýja tekjustrauma

👉 Viltu vita meira? Sendu okkur skilaboð eða fylgstu með ferðalaginu okkar.

31/12/2025

Líðandi ár, 2025, hefur verið ár tæknilegra framfara hjá Gefn. Við höfum tekið stór skref í að færa niðurstöður rannsókna á tilraunastofu í átt að tæknilausnum sem stuðla að grænni efnaiðnaði.

⚙️ Frumgerð tækni fyrir grænt glýserólkarbónat úr CO₂:
Við náðum mikilvægum áfanga með gangsetningu fyrstu frumgerðar UPCO2R-tækninnar og færðum þannig þróunarferlið frá rannsóknarstofu yfir í hermt iðnaðarumhverfi. Á næsta ári bestum við og stækkum frumgerðina og undirbúum byggingu tilraunaverksmiðju. Það gerum við m.a. innan alþjóðlega verkefnisins GlyCO2Chem.

🌱 Sýning tækni til að auka framboð á sjálfbæru hráefni til framleiðslu eldsneytis og efnavöru:
Í LIFE ICEWATER verkefninu, sem hófst á þessu ári, munum við sýna hvernig FLEXT-tækni okkar umbreytir lífrænum úrgangi úr frárennsli frá iðnaði í sjálfbært fljótandi eldsneyti. Verkefnið stuðlar að bættri auðlindanýtingu og dregur úr álagi á vatnsauðlindir með endurheimt fitu, olíu og feiti til orku- og iðnaðar­nota.

📈 Meiri sérfræðiþekking og ný þróunaraðstaða:
Við jukum tæknilegan slagkraft okkar með ráðningu yfirmanns verkfræðisviðs og tókum í notkun nýja aðstöðu til smíði og prófunar frumgerða. Nú býr teymið okkar yfir víðtækri reynslu í þróun og uppskölun efnaferla og kolefnisföngun og -nýtingu.

Horft til 2026:
Við höldum inn í nýtt ár með skýr markmið um að besta frumgerðir og leggja grunninn að byggingu fyrstu tilraunaverksmiðju Gefnar. Við erum staðráðin í að þróa tæknilausnir sem gera mun samstarfsaðilum okkar í lífdísil- og fituefnavinnslu kleyft að umbreyta úrgangi og útblæstri í verðmæti og þannig lágmarka kolefnisspor sitt.

Hátíðarkveðja frá Gefn! 🎄Þegar við senn kveðjum þetta ár, sem einkennst hefur af nýja áföngum í tækniþróun og samstarfi,...
23/12/2025

Hátíðarkveðja frá Gefn! 🎄

Þegar við senn kveðjum þetta ár, sem einkennst hefur af nýja áföngum í tækniþróun og samstarfi, viljum við þakka samstarfsaðilum, viðskiptavinum og velunnurum okkar fyrir samfylgdina á árinu.

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls, sjálfbærs nýs árs! ✨

🎉 Við erum hæstánægð með að tilkynna að Skúli Gunnar Árnason hefur tekið við sem nýr framkvæmdastjóri Orkeyjar!Orkey hef...
29/08/2025

🎉 Við erum hæstánægð með að tilkynna að Skúli Gunnar Árnason hefur tekið við sem nýr framkvæmdastjóri Orkeyjar!

Orkey hefur farið í gegnum mikla þróun síðustu mánuðina - frá því að fá úthlutað lóð á Dysnesi fyrir nýja lífdísilverksmiðju til þess að verða fyrsti framleiðandi lífeldsneytis á Íslandi til að fá ISCC EU sjálfbærni- og kolefnisvottun. 🏆

Með reynslu Skúla mun Orkey halda áfram að vera leiðandi í framleiðslu sjálfbærs eldsneytis úr fituúrgangi og aukaafurðum! ♻️

Velkominn í teymið, Skúli!

👉 Sjá frétt að neðan:

Address

Víkurhvarf 8
Kópavogur
203

Opening Hours

Monday 09:30 - 15:30
Tuesday 09:30 - 15:30
Wednesday 09:30 - 15:30
Thursday 09:30 - 15:30
Friday 09:30 - 15:30

Telephone

+3545375307

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gefn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share