MótX ehf

MótX ehf MótX ehf er alhliða byggingarfélag. Við byggjum, bætum og gerum betur. Við erum uppbyggjandi!

Síðastliðinn miðvikudag fékk MótX afhent viðurkenningarskjal frá Umhverfis- og orkustofun til staðfestingar á Svansvottu...
10/04/2026

Síðastliðinn miðvikudag fékk MótX afhent viðurkenningarskjal frá Umhverfis- og orkustofun til staðfestingar á Svansvottun 3ja hluta hússins að Hringhamri 9-19 í Hafnarfirði, Hringhamri 17-19. Það var Lilja Ólafsdóttir, sviðstjóri hjá stofnuninni sem að afhenti Svani Karli Grjetarssyni, framkvæmdastjóra MótX og Þresti Má Sigurðssyni gæðastjóra viðurkenninguna að viðstöddum bæjarstjóranum í Hafnarfirði, Valdimar Víðissyni. Stuðningur og hvatning bæjarins hefur verið ómetanlegur á Svansvottunarvegferð MótX.

Þar með er lokið við að Svansvotta allar 118 íbúðirnar í húsunum þremur. Verkefnið er eitt stærsta byggingaverkefni í flokki fjölbýlishúsa sem að fengið hefur Svansvottun hér á Íslandi. Nánari upplýsingar um íbúðirnar má finna á www.hringhamar.is

20/03/2026

"Handverkin lifa hvers lengst"

Stjórnendur MótX ehf. óskar starfsfólki og viðskiptavinum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir samstarfið og viðskiptin á ár...
31/12/2025

Stjórnendur MótX ehf. óskar starfsfólki og viðskiptavinum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir samstarfið og viðskiptin á árinu sem að er að líða. Megi árið 2026 verða okkur öllum gjöfult og gæfusamt.

MótX óskar starfsfólki, kaupendum íbúða og öðrum viðskiptavinum félagsins gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Vi...
23/12/2025

MótX óskar starfsfólki, kaupendum íbúða og öðrum viðskiptavinum félagsins gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við höfum verið uppbyggjandi á þessu afmælisári félagsins og stefnum á að vera enn meira uppbyggjandi á ári komandi og áfram inn í framtíðina.

Í ár styrkir MótX Slysavarnarfélagið Landsbjörgu með kaupum á neyðarkallinum eins og mörg undanfarin ár. Neyðarkall björ...
26/11/2025

Í ár styrkir MótX Slysavarnarfélagið Landsbjörgu með kaupum á neyðarkallinum eins og mörg undanfarin ár. Neyðarkall björg­un­ar­sveitanna er eitt af stóru fjár­öfl­un­ar­átök­um sveitanna, og skipt­ir gríðarlega miklu máli í rekstri þeirra. Neyðarkallinn í ár er straumvatnsbjörgunarmaður, til minningar um Sigurð Kristófer McQuillan Óskarsson sem lést á björgunaræfingu í fyrra. Það var Svanur Karl Grjetarsson, forstjóri, sem að tók við kallinum úr hendi Stefáns Guðna Stefánssonar, fulltrúa Landsbjargar.

Hagnaður af sölu neyðarkallsins rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda og er hann notaður til að efla og styrkja starfið. Í gegnum tíðina hafa fyrirtæki eins og MótX sýnt mikinn skilning á störfum björgunarsveitanna enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tækni og þekkingu.

MótX hefur undirritað nýjan styrktarsamning við knattspyrnudeild HK ( HK Fótbolti ) sem gerir fyrirtækið að einum öfluga...
22/11/2025

MótX hefur undirritað nýjan styrktarsamning við knattspyrnudeild HK ( HK Fótbolti ) sem gerir fyrirtækið að einum öflugasta bakhjarli félagsins næstu árin. Samningurinn markar áframhaldandi og aukinn stuðning MótX við íþróttalíf í Kópavogi, en fyrirtækið hefur verið traustur stuðningsaðili HK um árabil.

MótX hefur undirritað nýjan styrktarsamning við knattspyrnudeild HK, sem gerir fyrirtækið að einum öflugasta bakhjarli félagsins næstu árin.

Nú í vikunni undurrituðu MótX og Stjörnuljós ehf. kaupsamning um kaup Stjörnuljósa á 575 fermetra iðnaðarhúsnæði að Stra...
02/08/2025

Nú í vikunni undurrituðu MótX og Stjörnuljós ehf. kaupsamning um kaup Stjörnuljósa á 575 fermetra iðnaðarhúsnæði að Straumhellu 6 í Hafnarfirði, auk viljayfirlýsingar um kaup á 186 m2 til viðbótar á sama stað, fyrir áramót. Mun húsnæðið hýsa framtíðarstarfsemi félagsins, Voru það Svanur Karl Grjetarsson forstjóri MótX og Einir Logi Eiðsson framkvæmdastjóri Stjörnuljósa sem að undirrituðu samninginn.

Address

Hlíðarsmára 19
Kópavogur
201

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 17:00

Telephone

+354 898 8872

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when MótX ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to MótX ehf:

Share