JTV Við erum sérfræðingar í verkefnastjórnun og umsjón byggingarframkvæmda.

27/11/2025

Ólafur Daníelsson hjá ÓD ráðgjöf segir verkefnastjórnun vera mikilvæga til að allir séu á sama báti og rói í sömu átt.

Frekari viðtöl frá ráðstefnu JTV má sjá hér 👇
https://www.jtv.is/radstefna-25

24/11/2025

Stephen DeVito, tæknistjóri hjá Procon Consulting, talar um notkun á 360° ljósmyndatækni í byggingaframkvæmdum.

Frekari viðtöl frá ráðstefnu JTV má sjá hér 👇
https://www.jtv.is/radstefna-25

20/11/2025

Jón Kolbeinn Guðjónsson hjá Reitum talar um mikilvægi þess að verkefnastjórar noti verkefnatól sem mæla og styðja við markmið verkkaupa.

Frekari viðtöl frá ráðstefnu JTV má sjá hér 👇
https://www.jtv.is/radstefna-25

16/11/2025

Andrea S. Rutledge, CAE President & CEO, fjallar um þær breytingar sem nú eiga sér stað á hlutverki stjórnenda með mannaforráð.

Frekari viðtöl frá ráðstefnu JTV má sjá hér 👇
https://www.jtv.is/radstefna-25

12/11/2025

Ísland stendur frammi fyrir miklum framkvæmdum á næstu árum – allt frá nýjum innviðum og opinberum byggingum til íbúðauppbyggingar og atvinnumannvirkja. Reynslan sýnir að á öllum stigum framkvæmda geta komið upp áskoranir: tafir, kostnaðarfrávik, gæðavandamál og ófyrirséðar aðstæður.

Líkt og nauðsynlegt er að byggingar séu hannaðar og teiknaðar af fagfólki, er einnig þörf á faglegri verkefnastjórnun í framkvæmdaverkum. Með markvissri og faglegri stjórn aukum við líkurnar á að verkefni nái markmiðum sínum, minnkum hættuna á mistökum og tryggjum meiri gæði fyrir verkkaupa, iðnaðinn og samfélagið í heild.

Hér má sjá hluta út viðtölum við þá fyrirlesara sem stigu á svið á JTV ráðstefnunni 30. október fyrir fullum sal á Hilton Reykjavík Nordica.

Frekari viðtöl frá ráðstefnu JTV má sjá hér 👇
https://www.jtv.is/radstefna-25

Nú styttist í ráðstefnuna sem við stöndum fyrir fimmtudaginn 30. október og er jafnframt orðið uppselt en hægt er að skr...
28/10/2025

Nú styttist í ráðstefnuna sem við stöndum fyrir fimmtudaginn 30. október og er jafnframt orðið uppselt en hægt er að skrá sig á biðlista.

Við minnum á áhugaverða og hagnýta dagskrá þar sem boðið verður upp á erindi frá sérfræðingum frá Procon Ai, ÓD ráðgjöf, CMAA, Reitum og JTV 🤝🏼

„Með markvissri og faglegri stjórn aukum við líkurnar á að verkefni nái markmiðum sínum, minnkum hættuna á mistökum og t...
23/10/2025

„Með markvissri og faglegri stjórn aukum við líkurnar á að verkefni nái markmiðum sínum, minnkum hættuna á mistökum og tryggjum meiri gæði fyrir verkkaupa, iðnaðinn og samfélagið í heild," segir Jónas Halldórsson, framkvæmdastjóri JTV.

Ráðstefna um verkefnastjórnun í framkvæmdaverkum verður haldin á Reykjavík Hilton Nordica þann 30. október næstkomandi, tryggðu þér sæti hér 👉🏼 https://www.jtv.is/radstefna

„Með markvissri og faglegri stjórn aukum við líkurnar á að verkefni nái markmiðum sínum.“

26/09/2025

Áshamar er leikskóli í Hamraneshverfi sem reistur var af fyrirtækinu Þarfaþing hf. og sá JTV um alla verkefnastýringu í heild. Áshamar er fyrsti leikskólinn í Hafnarfirði sem byggður er með módúlabyggingaraðferð, þar sem forsmíðaðir módúlar voru settir saman á stuttum tíma með mikilli nákvæmni og skipulagi. Leikskólinn er um 1.443 m² að stærð, hýsir s*x deildir og getur tekið á móti allt að 120 börnum á aldrinum eins til s*x ára. Hönnun hófst snemma árs 2024 og skólinn opnaði samkvæmt áætlun í byrjun apríl 2025.

Í verkefnastýringu þurfti að tryggja samræmi í flutningi, uppsetningu og frágangi sem gekk eins og í sögu og leikskólinn tók á móti sínum fyrstu börnum aðeins fjórum mánuðum eftir að módúlarnir komu til landsins.

Leikskólinn við Áshamar er skýrt dæmi um hvernig nýjar byggingaraðferðr og framsæknar hugmyndir geta mætt brýnni þörf samfélagsins – og gert það með stæl!

Frekari upplýsingar um verkefnið má finna hér 👉🏼 www.jtv.is/ashamar-9

Fyr­ir­tækið JT Verk, sem hef­ur sér­hæft sig í fram­kvæmda­stjórn við bygg­inga­fram­kvæmd­ir, hef­ur breytt nafni sínu...
14/05/2025

Fyr­ir­tækið JT Verk, sem hef­ur sér­hæft sig í fram­kvæmda­stjórn við bygg­inga­fram­kvæmd­ir, hef­ur breytt nafni sínu í JTV.

Að sögn Jónas­ar Hall­dórs­son­ar, stofn­anda og for­stjóra JTV, var ákveðið fyr­ir tveim­ur árum að fara í mark­vissa stefnu­mót­un til að skerpa áhersl­ur og staðfæra fyr­ir­tækið sem leiðandi í um­sjón bygg­inga­fram­kvæmda. Nafna­breyt­ing­in sé liður í þeirri vinnu ásamt nýju lógói og nýrri vefsíðu, að fram kem­ur í til­kynn­ingu.

Fyrirtækið JT Verk, sem hefur sérhæft sig í framkvæmdastjórn við byggingaframkvæmdir, breytti nýverið nafni sínu í JTV.

02/04/2025

Á haustmánuðum 2022 samdi Garðabær við Þarfaþing hf. um byggingu á 1.429 m2 leikskóla fyrir 124 börn í Urriðaholti.

Byggingin er tvær hæðir að hluta þar sem starfsemi leikskólans er á 1. hæð en aðstaða starfsfólks á 2. hæð. Lóðin er 6.151 m2 með einkar glæsilegu útsýni, m.a. yfir Urriðavatn. Leikskólinn hlaut norrænu umhverfisvottunina Svaninn að framkvæmdum loknum.

Baldur Sigurðsson (JTV) sá um verkefnastjórn við framkvæmdina fyrir Þarfaþing. Aðalarkitekt og hönnunarstjóri var Hulda Jónsdóttir hjá HJARK Architecture.

Frekari upplýsingar um verkefnið má finna hér https://www.jtv.is/urridaholt

Jón­as seg­ir að hann hafi fengið hug­mynd­ina að því að stofna fyrir­tæki fyr­ir löngu síðan enda hef­ur hann verið við...
20/03/2025

Jón­as seg­ir að hann hafi fengið hug­mynd­ina að því að stofna fyrir­tæki fyr­ir löngu síðan enda hef­ur hann verið viðloðandi bygging­ariðnaðinn megnið af æv­inni.

„Ég fann fljótt að þetta var eitt­hvað sem mig langaði að gera þegar ég kæmi til Íslands. Ég stofnaði JTV árið 2017 og í byrj­un vor­um við líka verk­tak­ar. En það varð svo mikið að gera í verkefna­stjórn­un, eða fram­kvæmda­stjórn eins og ég kýs að kalla það, að við ákváðum að skerpa fókus­inn og ein­blína á hana." seg­ir Jón­as Hall­dórs­son, stofn­andi og for­stjóri JTV.

Ávinningurinn af því að halda utan um verkefni í byggingariðnaðinum af fagfólki er gríðarlegur og það er einmitt það sem JTV sérhæfir sig í.

Við gerum áreiðanlegar áætlanir, eigum í hreinskiptnum samskiptum og segjum erfiðu hlutina þegar þess þarf.Hafðu samband...
03/02/2025

Við gerum áreiðanlegar áætlanir, eigum í hreinskiptnum samskiptum
og segjum erfiðu hlutina þegar þess þarf.

Hafðu samband með þitt verkefni.

www.jtv.is

Address

Hlíðasmári 2
Kópavogur
201

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when JTV posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to JTV:

Share