Diesel Afl

Call Directions Website

Diesel Afl Sala Þjónusta Lausnir

Þó skólar Rekjavíkur sèu í fríi fá skipin ekkert frí🙂Við Hera kíktum á strákana um borð í Viðey Re þar sem hún var í lön...
22/10/2026

Þó skólar Rekjavíkur sèu í fríi fá skipin ekkert frí🙂
Við Hera kíktum á strákana um borð í Viðey Re þar sem hún var í löndun.
Voru þeir að skipta um Amot loka fyrir aðalvélina.

Ný varaaflsstöð fyrir Slökkvilið Grindavíkur.Diesel afl ehf hefur afhent, sett upp og gangsett 80kva rafstöð við slökkvi...
12/10/2026

Ný varaaflsstöð fyrir Slökkvilið Grindavíkur.

Diesel afl ehf hefur afhent, sett upp og gangsett 80kva rafstöð við slökkviliðshúsið í Grindavík. Stöðin er frá framleiðandanum AX Systems sem sérhæfir sig í rafstöfðum fyrir norðlægar slóðir. Rafstöðin kemur með Deutz vél, Linz rafala, 440L eldsneytistank og í galveneseruðum, hljóðeinangraðum kassa.

Vélin er sjálfvirk og kemur inn um leið og rafmagn fer af slekkur á sér sjálf þegar rafmagn kemur aftur á.

Við þökkum Slökkviliði Grindavíkur fyrir traustið og ánægjulegt samstarf.

Önnur helgin í röð sem síminn hringir og það er útkall og nú var það vestur á Ísafjörð.Þjónustuskip við fiskeldið með Fi...
06/10/2026

Önnur helgin í röð sem síminn hringir og það er útkall og nú var það vestur á Ísafjörð.
Þjónustuskip við fiskeldið með Finnoy gír var að fá villumeldingar á kúpplingu og fall á smurþrýsting.
Eftir að hafa greint vandann sem var bæði mekkanískur og rafmagnseðlis var gramsað í öllum gullgeymslum vestfjarða eftir varahlutum (sem fundust) og gerð bráðabirgðaviðgerð til að koma þeim á sjó.
Að auki fengum við einn gamlan úr bransanum til þess að hanga á rekkverkinu og segja gamlar hetjusögur🙂
Þjónustum og útvegum varahluti í flestar gerðir gíra. Hafðu samband ef þig vantar aðstoð með þinn gír S:571-5555

Þau eru misjöfn verkefnin.Verkefnið þessa helgina var að taka afréttingu og stilla aðalvélina í þessu glæsilega norska l...
27/09/2026

Þau eru misjöfn verkefnin.
Verkefnið þessa helgina var að taka afréttingu og stilla aðalvélina í þessu glæsilega norska línuskipi.
En þegar átti að fara á sjó kom í ljós að vélin var orðin laus og buin að slíta einhverja bolta.
Tókum við afréttingu við gír og svo sveigjumældum þar til hún var komin innan marka. Aðalvélin að gerðinni Yanmar 6EY26W

Akurey og Viðey komu báðar í smá „spa“ hjá okkur þessa vikuna 😄🔧Í löndunarstoppi fengu aðalvélarnar nýja spíssa og ventl...
16/09/2026

Akurey og Viðey komu báðar í smá „spa“ hjá okkur þessa vikuna 😄🔧
Í löndunarstoppi fengu aðalvélarnar nýja spíssa og ventlastillingu.
Nú ættu systurnar að vera til í togið á ný🐟⚓️

Skinney SF-20 var í stoppi um daginn og sinntum við smá viðhaldi á aðalvélinni að gerðinni Mitsubishi S6U meðal annars h...
11/09/2026

Skinney SF-20 var í stoppi um daginn og sinntum við smá viðhaldi á aðalvélinni að gerðinni Mitsubishi S6U meðal annars höfuðleguskipti, túrbínu, tókum upp spíssana og fl👊

Erum við að leita af þér?Eða jafnvel þú að leita af okkur?
07/09/2026

Erum við að leita af þér?
Eða jafnvel þú að leita af okkur?

Leitum að öflugum einstaklingi til þess að styrkja okkar teymi og byggja með okkur upp ungt og öflugt fyrirtæki. Nei djók..) Við erum með allt uppá 10,5 Við erum einungis að leita af einstakling með kunnáttu, reynslu og þekkingu til þess að geta unnið sjálfstætt við viðgerðir...

Upprunalega Álkótið frá NORUS er komið aftur! ⚙️Álkótið sem Sæfell ehf. seldi í áratugi og flestir vélstjórar þekkja vel...
07/09/2026

Upprunalega Álkótið frá NORUS er komið aftur! ⚙️

Álkótið sem Sæfell ehf. seldi í áratugi og flestir vélstjórar þekkja vel – efnið sem var til um borð í nánast öllum skipum landsins og smurt á allt sem þurfti að verja.

Frábært á bolta, fóðringar, O-hringi og þéttingar. Ver gegn tæringu og salti, heldur þéttingum mjúkum og auðveldar viðhald.

Gamalkunnugt efni – komið aftur á sinn stað.

Fæst nú hjá Diesel afl ehf.

Fengum útkall í fyrrakvöld þegar Hulda Björnsdóttir GK var að fara út að viðvörunarkerfið væri að drepa á aðalvélinni.Fe...
03/09/2026

Fengum útkall í fyrrakvöld þegar Hulda Björnsdóttir GK var að fara út að viðvörunarkerfið væri að drepa á aðalvélinni.
Fengum við með okkur í verkið Björgvin hjá Hlynsson EHF enda mikill áhugamaður um MAN og rafmagnsvandræði, var hann kominn fljúgandi frá eyjum á innan við 1klst.
Eftir að hafa mælt og mælt frammá frammá nótt fundum við hvað olli og gerðum bráðabirgða viðgerð og komum þeim á sjó.
Þá var bara að leggja sig í nokkrar klst og mæta um borð í Hrafn Sveinbjarnar að klára ljósavélina þar sem við vorum að taka upp spíssa, túrbínu og skolloftskæli.

Vorum að ljúka við upptekt á túrbínu aðalvélarinnar og skipta um gangráð um borð í Hildi SH 777.Aðalvélin að gerðinni Mi...
17/08/2026

Vorum að ljúka við upptekt á túrbínu aðalvélarinnar og skipta um gangráð um borð í Hildi SH 777.
Aðalvélin að gerðinni Mitsubishi S6U
Glæsilegt skip hjá topp mönnum.
Og eru þeir komnir á veiðar eftir sumarstopp.

Address

Desjamýri 1
Mosfellsbær
270

Telephone

+3545715555

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Diesel Afl posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share