21/04/2026
Í dag bættist við eitt tæki í safnið hjá okkur í G.skúlason vélaverkstæði.
ZMM CU800x3000 rennibekkur í mjög góðu standi.
Lengd milli odda 3000mm.
Vinnsluþvermál 890mm.
Gegnumborun 155mm.
Kemur þessi vél til með að létta mikið undir Stóra rennibekknum (Marando) sem er nýlega orðinn 70 ára. En hann á þó áfram eftir að þurfa að sinna stærstu verkefnunum.
Þökkum
Ísak Fannar hjá Krossavík Ehf fyrir að hífa fyrir okkur.
Gumma Páls E.C.R fyrir lánið á skautunum.
Nestak ehf fyrir að vera tilbúnir ef þeir gætu hjálpað en í þessu verkefni þurfti ekkert að tálga.
Og okkar starfsmönnum fyrir hjálpina við að koma bekknum örugglega úr gámnum og inn í hús.
Nú hefst vinna við að koma bekknum fyrir og stilla hann nákvæmlega af.