Ellert Skúlason ehf

Ellert Skúlason ehf Ellert Skúlason ehf. Stofnað 1961.
Öll almenn jarðvinna, gatnagerð, fleygun, niðurrif á húsum og öðrum mannvirkjum, efnisflutningar, vélaflutningar og meira.

Má segja við séum í öllu frá blómabeðinu upp í virkjanir.

Erum við að leita að þér?
20/08/2026

Erum við að leita að þér?

Góðan daginn, það hafa kannski nokkrir tekið eftir því í gær að það var að bætast við flotan okkar, en við fengum afhent...
25/07/2026

Góðan daginn, það hafa kannski nokkrir tekið eftir því í gær að það var að bætast við flotan okkar, en við fengum afhentan glæsilegan Volvo FH16 Aero 700 hestöfl, bílinn er gríðarlega vel útbúinn, með nóg af blikkljósum sem nýtast í vélaflutningana svo er hann í gríðarlega flottum bláum lit, við tókum einn malbiksvagn líka með svona bara afþví bara, en hann mun nýtast okkur helling. Það fá svo að fylgja nokkrar fleiri myndir, af nýju gröfuni og fleyg og þjöppu sem verslað var á hana, svo vinna kringum sements síló í Helguvík sem Eykt er að reisa, undirbúningsvinna undir malbik á geymsluplani hjá HS Veitum. Þangað til næst. 👷🫡

Eins og við sögðum frá í gær, þá erum við með skemmtilegar fréttir, það vita kannski sumir að við erum mjög hjátrúarfull...
18/07/2026

Eins og við sögðum frá í gær, þá erum við með skemmtilegar fréttir, það vita kannski sumir að við erum mjög hjátrúarfull og þá tökum við bara við nýjum tækjum á föstudögum. Það gerðist einmitt í gær, við fengum afhenta eina glæsilega hjólagröfu Liebherr 918 compact, vélin er vel útbúinn og er fyrsta hjólagrafan á landinu með endurhönnuðu stjórnendahúsi, orðin mjög nútímaleg og útbúinn með Unicontrol gps, svo fá að fylgja nokkrar aðrar myndir, t.a.m. tókum eina ýtuna okkar í gegn og máluðum hana, einnig vorum við að vinna smá inní og við frystihúsið hjá Nesfisk
Rúko
Geoaxis ehf

Góðan og blessaðan daginn kæru vinir, tíminn er fljótur að líða þegar mikið er að gera, en við höfum bara gleymt því að ...
17/07/2026

Góðan og blessaðan daginn kæru vinir, tíminn er fljótur að líða þegar mikið er að gera, en við höfum bara gleymt því að deila með ykkur myndum. Hér koma nokkrar myndir frá hinum ýmsu verkum, t.d. borplan í Krýsuvík, "stór" flutningar á torfærubílum, fræsun á Keflavíkurflugvelli, vinna kringum skiljustöð í Svartsengi og nokkur verkefni hjá Benchmark genetics í Vogunum.
Deilum svo skemmtilegum fréttum seinna i dag og fleiri myndum um helgina. 👷

Góðan daginn kæru vinir, það er stórt ár hjá okkur í ár, 65 ára afmæli, erum búnnir að vera starfandi samfleytt síðan 19...
23/05/2026

Góðan daginn kæru vinir, það er stórt ár hjá okkur í ár, 65 ára afmæli, erum búnnir að vera starfandi samfleytt síðan 1961. Það eru kannski margir búnnir að sjá að það er búið að stilla upp nokkrum tækjum fyrir utan Stapan og þar með nýjasta beltagrafan okkar. Stefnum svo að sjálfsögðu að vera starfandi miklu lengur. Látum fylgja myndir af nýju vélinni og svo nokkrar gamlar myndir til að rifja upp gamla tíma. Höldum svo kannski áfram næstu vikur að setja gamlar myndir með.

Góðan daginn kæru vinir, smá myndapakki, eins og áður eru við alltaf að vinna víða, efnisvinnsla í Helguvík, gatnagerð í...
21/05/2026

Góðan daginn kæru vinir, smá myndapakki, eins og áður eru við alltaf að vinna víða, efnisvinnsla í Helguvík, gatnagerð í Fuglavík, áburðadreifing fyrir hestamannafélagið Mána, reistum sumarbústað á Snæfellsnesi fyrir einn frænda, útskipun á gleri fyrir Íslenska gámafélagið.
Það koma kannski skemmtilegar fréttir á morgun.
Þangað til næst 👷😎

Góðan daginn kæru vinir. Það var skemmtilegur dagur hja okkur í gær, fengum afhenta nýja jarðýtu (Liebherr 726).Að sjálf...
25/04/2026

Góðan daginn kæru vinir. Það var skemmtilegur dagur hja okkur í gær, fengum afhenta nýja jarðýtu (Liebherr 726).Að sjálfsögðu kom hún fallega blá. Við erum nefnilega dáldið hjátrúarfullir og viljum bara taka við nýjum tækjum á föstudögum. Það fylgja svo myndir af vélaflutningum hingað og þangað og einingum snjómokstursmynd. Það verða svo meiri spennandi fréttir í næsta mánuði vonandi 👷
Rúko Geoaxis ehf

Myndapakki mættur, myndirnar eru víða að eins og oft áður. Uppskipun númer 2 á sérstökum steypu/flotunar sandi fyrir EKS...
21/04/2026

Myndapakki mættur, myndirnar eru víða að eins og oft áður. Uppskipun númer 2 á sérstökum steypu/flotunar sandi fyrir EKS verk ehf sem við erum jafnframt að keyra víða, t.d. 360 hótel, Heklureit í Reykjavík, Þjórsárdal og svo bætast alltaf fleiri staðir við. Mokuðum og fylltum í fyrir rútu plani útá Garðskaga, olíuskipti á Beltagröfu, viðgerð á einum aðstöðu gámnum okkar. Svo styttist í spennandi fréttir sem við getum sýnt myndir og deilt með ykkur vonandi seinna í vikunni. 👷

19/04/2026

Smá sprengi myndband frá því í Febrúar í Helguvík til að byrja vikuna. Erum reglulega að bora og sprengja i Helguvík fyrir efnisvinnsluna okkar👷

Góðan og blessaðan daginn, fleiri myndir komnar frá marsmánuði. Fengum smá snjó og koma þá nokkrar myndir af tækjunum á ...
16/04/2026

Góðan og blessaðan daginn, fleiri myndir komnar frá marsmánuði. Fengum smá snjó og koma þá nokkrar myndir af tækjunum á leið að skafa, þjónustum, Reykjanesbæ, Krónuna, Byko, Bónus og fleiri staði. Svo flytjum við ekki bara tæki fyrir okkur sjálfa heldur flytjum við aðra verktaka hér í kring. Við seldum svo 3 gröfur og fóru þær úr landi, en það á að endurnýja þær og verður gaman að sýna hvað kemur í staðinn einnig tókum við kranabílinn og einn dráttarbílinn í smá skveringu. Njótið og þangað til næst 👷

Address

Selvík 3, Bil 12
Njarðvík
230

Opening Hours

Monday 07:30 - 17:00
Tuesday 07:30 - 17:00
Wednesday 07:30 - 17:00
Thursday 07:30 - 17:00
Friday 07:30 - 13:00
Saturday 07:30 - 16:00

Telephone

892-7580

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ellert Skúlason ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share