Alcoa Fjarðaál

Alcoa Fjarðaál Hlutverk álvers Alcoa Fjarðaáls á Reyðar­firði er að fram­leiða ál á hag­kvæman, örugg­an og samfélagslega ábyrgan hátt.

04/09/2026

Í Neskaupstað hefur blak lengi verið sterkur hluti af menningunni, enda hefur margt besta blakfólk landsins alist upp í Þrótti.

Við erum stolt af því að standa við bakið á því öfluga og fjölbreytta íþróttalífi sem blómstrar á Austurlandi

Við höfum opnað fyrir umsóknir í Samfélagssjóð Alcoa Fjarðaáls 🏘️
31/08/2026

Við höfum opnað fyrir umsóknir í Samfélagssjóð Alcoa Fjarðaáls 🏘️

20/08/2026

Hjá Fimleikadeild Hattar er unnið gríðarlega metnaðarfullt starf sem skilar sér í eftirtektarverðum árangri og gleði iðkenda.

Við erum stolt af því að standa við bakið á því öfluga og fjölbreytta íþróttalífi sem blómstrar á Austurlandi ☀️

"Þetta snýst á endanum um hvernig vinnustaður við viljum vera - og hvaða skilaboð við viljum senda út í samfélagið" sagð...
11/08/2026

"Þetta snýst á endanum um hvernig vinnustaður við viljum vera - og hvaða skilaboð við viljum senda út í samfélagið" sagði Helgi Einarsson, framkvæmdastjóri umhverfis-, heilsu-, og öryggismála - og formaður EAGLE í Evrópu - á opnum fundi Hinsegin Austurlands á Egilsstöðum í gær.

EAGLE, sem er einn fjögurra mannréttindahópa innan Alcoa, einbeitir sér að málefnum hinseginsamfélagsins.

Á fundinum talaði Helgi m.a. um mikilvægi þess að allt starfsfólk upplifði að það væri öruggt í vinnunni. Það ætti bæði við um hefðbundið öryggi á vinnustaðnum en ekki síður sálfélagslegt öryggi; frelsi til þess að vera þau sjálf.

Við þökkum Hinsegin Austurlandi fyrir tækifærið til þess að segja frá okkar nálgun á hinsegin málefni á vinnustaðnum - og fyrir áhugaverðan og fræðandi fund.

Fjölbreytileikinn gerir okkur sterkari 🌍❤️

24/07/2026

“Fólk skiptir mestu máli, alltaf,” segir Marta sem flutti frá Póllandi til Reyðarfjarðar til að starfa hjá Alcoa Fjarðaáli.

Í kerskálanum vinnur hún sem rafgreinir við framleiðslu áls sem nýtist í daglegu lífi fólks um allan heim. Hún er kann vel við samfélagið á Austurlandi, nálægðina við náttúruna og lífið í samheldna samfélaginu á Reyðarfirði.

„Vinnan í álverinu var ótrúlega skemmtileg og ég held enn sambandi við marga sem ég kynntist þar. Ég hafði mjög gaman af...
28/06/2026

„Vinnan í álverinu var ótrúlega skemmtileg og ég held enn sambandi við marga sem ég kynntist þar. Ég hafði mjög gaman af vélunum og öllu sem því fylgdi,“ segir nýr bæjarstjóri Akureyrar, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, en hún starfaði hjá okkur í tvö sumur áður en nám og annar starfsferill tók við.

Hér að neðan má lesa viðtal við Berglindi.

Nýr bæjarstjóri Akureyrar, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, er aðeins 32 ára gömul en með fjölbreytta reynslu í bakpokanum. Akureyri.net lék forvitni á að vita meira um konuna sem nú hefur sest í bæjarstjórastólinn og sendi Snæfríði Ingadóttur í heimsókn til hennar í Ráðhús...

25/06/2026

Samfélagið okkar á Austurlandi er litríkara og aðeins sætara, þökk sé öflugu fólki eins og eigendum Sesam Brauðhús - Handverksbakarí 🥖❤️

Hjartans þakkir fyrir komuna á Kvennakaffi Fjarðaáls 🩷Gestir nutu skemmtilegrar dagskrár með áhugaverðum erindum, góðri ...
22/06/2026

Hjartans þakkir fyrir komuna á Kvennakaffi Fjarðaáls 🩷

Gestir nutu skemmtilegrar dagskrár með áhugaverðum erindum, góðri tónlist og notalegri samveru í tilefni kvenréttindadagsins 19. júní.

Í ár buðum við upp á nýjung þegar gestum gafst kostur á að fara í ókeypis myndatöku hjá atvinnuljósmyndara. Viðtökurnar fóru fram úr okkar björtustu vonum og það var gaman að sjá hversu margar nýttu sér tækifærið til að láta taka fallega mynd af sér.

Takk fyrir að gera daginn svona eftirminnilegan með okkur 🩷

09/06/2026

Sjálfbærniverkefni Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar er nú lokið.

Í þessu myndbandi eru teknar saman helstu niðurstöður lokaskýrslu verkefnisins, sem leitast við að svara því hvaða áhrif raforkuvinnsla og álvinnsla hafa haft á samfélag, efnahag og umhverfi á Austurlandi.

Lokaskýrsluna má nálgast hér: https://gqr.sh/yUu6

Nú á dögunum fengum við í Fjarðaáli heimsókn frá Yati Varshneya, nýjum yfirmanni rekstrar Alcoa í Evrópu.Heimsóknin gaf ...
01/06/2026

Nú á dögunum fengum við í Fjarðaáli heimsókn frá Yati Varshneya, nýjum yfirmanni rekstrar Alcoa í Evrópu.
Heimsóknin gaf gott tækifæri til að segja frá starfseminni, fyrir Yati að kynnast daglegum rekstri og hitta hluta af okkar öfluga teymi. Það var sérstaklega ánægjulegt að heyra hvað það var henni augljóst hversu vænt starfsfólki þykir um vinnustaðinn sinn og hversu mikilvægu hlutverki Alcoa gegnir í samfélaginu hér fyrir austan.
Við þökkum Yati kærlega fyrir komuna – og ekki síður okkar frábæra starfsfólki fyrir fagmennsku og metnað í öllu sem þið gerið, alla daga 💙

Address

Hrauni 1
Reyðarfjörður
731

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

4707700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Alcoa Fjarðaál posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Alcoa Fjarðaál:

Share