Tæknisetur

Tæknisetur Tæknisetur brúar bilið milli rannsóknarsamfélagsins og atvinnulífs með því að veita hátækni frumkvöðlum aðgang að sérfræðingum og tæknilegum innviðum.

Við óskum Arnhildi innilega til hamingju með að hafa verið útnefnd Borgarlistamaður Reykjavíkur! Það var ánægjulegt fyri...
18/06/2026

Við óskum Arnhildi innilega til hamingju með að hafa verið útnefnd Borgarlistamaður Reykjavíkur! Það var ánægjulegt fyrir Tæknisetur að koma að Lavaforming listasýningunni sem Arnhildur sýndi á Feneyjartvíæringnum í fyrra.

Arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir var útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2026 við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Arnhildur hefur vakið athygli fyrir framsæknar hugmyndir, hlaut umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2024 og var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæring...

Arctus Aluminium og Tæknisetur hlakka til að vinna með Norðuráli í að skala upp framleiðslu ker fyrir kolefnislausa álfr...
19/05/2026

Arctus Aluminium og Tæknisetur hlakka til að vinna með Norðuráli í að skala upp framleiðslu ker fyrir kolefnislausa álframleiðslu!

Möguleikinn á að framleiða ál án þess að losa koldíoxíð færist sífellt nær, og við erum stolt af að taka þátt í nýsköpun á þessu mikilvæga sviði. Við erum samstarfsaðilar Arctus Aluminium í þróun á nýrri tækni fyrir kolefnislausa álframleiðslu. Verkefnið hlaut nýverið161,8 milljóna króna styrk úr Loftslags- og Orkusjóði. Framtíðin er björt og græn.

Nýverið komu fram málmprentaðir prentstimplar á listasýningunni Forvitin Rauð þar sem grafískir hönnuðir köfuðu ofan í ú...
15/05/2026

Nýverið komu fram málmprentaðir prentstimplar á listasýningunni Forvitin Rauð þar sem grafískir hönnuðir köfuðu ofan í útlit, uppsetningu og innihald Rauðsokkutímaritsins. Listmunirnir voru prentaðir á Tæknisetri. Sjá fréttahlekk hér að neðan:

https://www.taeknisetur.is/is/news/forvitin-raud-a-honnunarmars

06/05/2026

Fyrir áhugasama👇
Frumkvöðlar, nú er rétti tíminn til að láta vita af ykkur!
Opið er fyrir umsóknir á næsta pitch viðburð hjá IceBAN, þar sem sprotafyrirtæki fá tækifæri til að kynna sig fyrir íslenskum englafjárfestum😇
Viðburðurinn er fyrir teymi sem eru að byggja upp spennandi lausnir, undirbúa fjármögnun og vilja komast í samtal við fjárfesta sem geta lagt til bæði fjármagn, reynslu og tengsl.
📆 Umsóknarfrestur er 17. maí
Kynntu þér málið og sæktu um hér: https://lnkd.in/dFbrpv5T

Frábærar fréttir fyrir grænar lausnir í stjóriðju. Loftslagsráðuneytið hefur styrkt tvö verkefni annað leitt af Arctus A...
05/05/2026

Frábærar fréttir fyrir grænar lausnir í stjóriðju. Loftslagsráðuneytið hefur styrkt tvö verkefni annað leitt af Arctus Aluminium í samstarfi við Norðurál og fleiri samstarfasaðila meðal annars Tæknisetur hinsvegar verkefni leitt af Carbfix í samstarfi við Elkem hins vegar fengu veglega styrki til að taka næstu skref í þróun á sínum lausnum.

Tvö nýsköpunarverkefni hafa hlotið styrk úr Loftslags- og orkusjóði í úthlutun sem miðar að því að hraða þróun tæknilausna sem dregið geta úr losun gróðurhúsalofttegunda frá staðbundnum iðnaði innan ETS-kerfisins.

Hamingjóskir til Svövu Kristinsdóttur sem hlaut í gær Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands. En hún er einn sto...
28/04/2026

Hamingjóskir til Svövu Kristinsdóttur sem hlaut í gær Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands. En hún er einn stofnanda fyrirtækisins Marimedx sem er með aðstöðu á Tæknisetri og vinnur að því að þróa vefjastoðefni úr brúnþara í stað dýravefja, sem nýtist til að meðhöndla krónísk sár, bruna, áverka og aðrar vefjaskemmdir.

Í flokknum Heilsa og heilbrigði hlaut verkefnið „Vefjastoðefni úr brúnþara“ verðlaun að upphæð 1,5 milljónir króna. Það var jafnframt sigurvegari samkeppninnar í heild og hlutu aðstandendur þess eina milljón króna til viðbótar í verðlaunafé. Að verkefninu stendur Svava Kristinsdóttir, doktorsnemi í lífverkfræði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði, í samstarfi við Sigrúnu Nönnu Karlsdóttur og Sigurð Brynjólfsson, prófessora við sömu deild, Óttar Rolfsson, prófessor við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði, og Ólaf Eystein Sigurjónsson, prófessor við Háskólann í Reykjavík.

Verkefnið gengur út á að þróa vefjastoðefni sem byggist á að nýta brúnþara í stað dýravefja. Vefjastoðefni eru notuð í endurnýjunarlækningum (e. regenerative medicine) en árlega þurfa milljónir sjúklinga meðferðir vegna krónískra sára, bruna, áverka og annarra vefjaskemmda. Skortur er á aðgengilegum, öruggum, hagkvæmum og sjálfbærum vefjastoðefnum.

Dómnefnd segir verkefnið byggt á traustum vísindalegum grunni, hafa skýrt tvíþætt nýnæmi, mikinn samfélagslegan ávinning, skýra sjálfbærnivídd og möguleika til frekari rannsóknatenginga, atvinnu- og verðmætasköpunar til framtíðar. „Nýnæmi verkefnisins felst annars vegar í þróun nýrrar tegundar vefjastoðefnis sem eins og áður sagði byggir á brúnþara í stað hefðbundinna dýraafurða og mætir þannig vaxandi kröfum um sjálfbærni í heilbrigðisgeiranum. Hins vegar felst nýnæmið í nýrri affrumunaraðferð sem varðveitir styrkleika og eiginleika hráefnisins betur en hefðbundnar aðferðir sem notast við sterk efni,“ segir í umsögn dómefndar.

Hún bendir einnig á að þar sem bæði er um að ræða þróun nýrrar vöru og nýrrar framleiðsluaðferðar hafi verkefnið mikið hagnýtingargildi og möguleika til verðmætasköpunar og atvinnuuppbyggingar á sviði líftækni og heilbrigðistækni. „Einnig felur verkefnið í sér möguleika á enn nánara samstarfi háskólasamfélagsins og heilbrigðisgeirans þar sem frekari rannsóknartækifæri og uppgötvanir geta skapast. Hér er því um að ræða framúrskarandi rannsóknardrifið nýsköpunarverkefni sem sýnir hvernig vísindarannsóknir geta skilað raunverulegum áhrifum út í samfélagið og leitt til lausna sem geta nýst á alþjóðavísu.“

Verið er að sækja um einkaleyfi fyrir hugmyndinni.

Tæknisetur er komið með nýja og uppfærða heimasíðu! Hér er hægt að bóka tæki og búnað, komast í samband við sérfræðinga ...
07/04/2026

Tæknisetur er komið með nýja og uppfærða heimasíðu! Hér er hægt að bóka tæki og búnað, komast í samband við sérfræðinga og fræðast betur um fólk og fyrirtæki á setrinu!

Tæknisetur er brú milli rannsóknarsamfélags og atvinnulífs. Við bjóðum aðgang að háþróuðum rannsóknatækjum og sérfræðiþekkingu.

Address

Árleyni 2/8
Reykjavík
112

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tæknisetur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share