11/03/2026
⚡ Við fengum góða heimsókn sl. föstudag!
Síðasta föstudag fengum við nemendur úr VIR – Félagi rafmagns- og tölvuverkfræðinema við Háskóli Íslands í heimsókn á skrifstofu SnerpaPower.
Við sögðum frá því hvernig SnerpaPower varð til, hvert við stefnum og frá tækninni á bak við lausnirnar okkar.
Íris Baldursdóttir, framkvæmdastjóri, Vésteinsdóttir, tæknistjóri, og Ingi Björnsson, gagnavísindamaður, deildu reynslu sinni af því að byggja upp fyrirtækið og vinna á mótum raforkukerfis og stafvæðingar (nýyrði fyrir digitalization - þar hafiði það!).
Það er alltaf jafn ánægjulegt að hitta nemendur sem hafa áhuga á framtíð orkumála og tæknilausna. Takk fyrir komuna og góðar umræður! 🙌
📸 Hér eru nokkrar myndir frá heimsókninni.