28/09/2026
Það var einstök orka í loftinu á Hönnunarþingi á Húsavík í síðustu viku. Þar fór Linda Fanney, framkvæmdastýra og meðstofnandi Alor, yfir hvernig orkan er allt í kringum okkur. Að nýta megi sólarorku og orkugeymslur til þess að færa hluta orkuframleiðslu nær fólkinu.
Á Flumbruviðburði Driftar EA fór hún líka yfir nokkrar skemmtilegar sögur og lærdóma úr ólgusjó frumkvöðlalífsins. Þegar allt kemur til alls þá þurfum við öll að "Standa í lappirnar og fara ekki á taugum".
Takk fyrir einstaka hátíð Hraðið miðstöð nýsköpunar!
Linda Fanney Valgeirsdóttir