23/01/2026
Barnaskap er aftur með á frönsku kvikmyndahátíðinni í ár! 🇫🇷🎬
Við hvetjum ykkur eindregið til að kynna ykkur dagskrána (https://www.af.is/franska-kvikmyndahatidin-2026/), sem er enn á ný bæði fjölbreytt og frábær. Barnaskap styrkir sérstaklega myndina Maya, donne-moi un autre titre eftir Michel Gondry.
Myndin verður sýnd:
– Laugardaginn 25. janúar kl. 15:00
– Sunnudaginn 1. febrúar, en þá verður sérstök sýning með lifandi íslenskri talsetningu af leikkonunni Þórunni Lárusdóttur 🎙️✨
Alls verða fjórar gjafir dregnar út í happdrætti í tengslum við sýningarnar, í boði Barnaskaps. 🎁
Sjáumst í Bíó Paradís ! 🍿💛
Directed by Michel GondryMaya and her dad, Michel Gondry, live in two different countries. In order to stay in touch, her dad asks her every evening, “Maya, ...