Verkís Verkfræðistofa

Verkís Verkfræðistofa Verkís verkfræðistofa Verkís er öflugt og framsækið ráðgjafarfyrirtæki sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði.

Verkís býr yfir sérfræðiþekkingu sem spannar allar þarfir framkvæmdaaðila frá fyrstu hugmynd til loka fjárfestingarverkefnis. Að auki býður Verkís rekstraraðilum þjónustu við margháttuð rekstrar- og viðhaldsverkefni.

🏫🇬🇱 Nýr skóli tekinn í notkun í Nuuk!Nýi skólinn Atuarfik Inussuk í Nuuk á Grænlandi hefur verið tekinn í notkun. Verkís...
01/09/2026

🏫🇬🇱 Nýr skóli tekinn í notkun í Nuuk!

Nýi skólinn Atuarfik Inussuk í Nuuk á Grænlandi hefur verið tekinn í notkun. Verkís annaðist verkfræðihönnun verkefnisins fyrir Ístak, sem var alverktaki við byggingu skólans.

Byggingin er um 18.000 m² og rúmar allt að 1.200 nemendur, auk leikskóla fyrir um 120 börn. Skólinn samanstendur af sjö samtengdum húsum og er jafnframt hugsaður sem samkomustaður fyrir íbúa Nuuk.

🛠️ Verkefnið var umfangsmikið og krafðist vandaðrar hönnunar og tæknilegrar útfærslu við krefjandi aðstæður á Grænlandi.

Við hjá Verkís erum stolt af því að hafa tekið þátt í þessu spennandi verkefni frá upphafi og lagt okkar af mörkum til uppbyggingar skóla og samfélags í Nuuk. 🤝

Nýi skólinn Atuarfik Inussuk í Nuuk á Grænlandi hefur verið tekinn í notkun. Verkís annaðist verkfræðihönnun,

🌱 Verkís leiðir gerð umhverfisyfirlýsinga fyrir malbik.Verkís hefur haft umsjón með gerð og útgáfu umhverfisyfirlýsinga ...
31/08/2026

🌱 Verkís leiðir gerð umhverfisyfirlýsinga fyrir malbik.

Verkís hefur haft umsjón með gerð og útgáfu umhverfisyfirlýsinga (EPD) fyrir Hylit 11 og Hylit 16, tvær heitblandaðar malbikstegundir frá Malbikunarstöðinni Höfða sem innihalda 10–20% endurunnið malbik. ♻️

Í verkefninu framkvæmdi Verkís lífsferilsgreiningar (LCA), tryggði samræmi við viðeigandi staðla og sá um ferlið frá upphafi til útgáfu og vottunar.

📊 EPD-yfirlýsingarnar veita nú staðlaðar og gagnsæjar upplýsingar um umhverfisáhrif vörunnar, sem nýtast hönnuðum, verkkaupum og öðrum hagaðilum við upplýstar ákvarðanir.

Við hlökkum til að halda áfram að styðja fyrirtæki og framleiðendur í þeirra vegferð í átt að sjálfbærari lausnum. 🌍♻️

Verkís hefur unnið að gerð og útgáfu umhverfisyfirlýsinga (EPD blöð) fyrir tvær lykilvörur Malbikunarstöðvarinnar Höfða, Hylit 11 og Hylit 16.

🌬️☀️🚢 WHISPER-verkefnið nær enn einum mikilvægum áfanga.Sjóprófanir eru nú hafnar um borð í gámaskipi Samskipa, Helgafel...
28/08/2026

🌬️☀️🚢 WHISPER-verkefnið nær enn einum mikilvægum áfanga.

Sjóprófanir eru nú hafnar um borð í gámaskipi Samskipa, Helgafelli, eftir að vindorkugámar frá SideWind og sérhannaðar sólarsellur frá Solbian var sett um borð.

🔬 Á næstu þremur mánuðum verður kerfið prófað í fjórum siglingum og þannig aflað mikilvægra gagna um virkni, rekstur og möguleika tækninnar til að draga úr losun frá hjálparvélum skipsins.

Sem verkefnisstjóri er Verkís stolt af því að leiða þetta samstarf og leggja íslenska sérþekkingu af mörkum við þróun raunhæfra lausna fyrir sjálfbærari siglingar. 🌍⚓

👉 Lesa fréttatilkynninguna: https://www.whisperenergy.eu/whisper-installs-hybrid-wind-solar-container-system-and-begins-sea-trials-on-container-ship/

Evrópska nýsköpunarverkefnið WHISPER hefur náð mikilvægum áfanga með uppsetningu vindorkugáma og sérhannaðra sólarsellna um borð í gámaskipinu Helgafelli.

🌊🚢 Sjóprófanir hafnar í WHISPER-verkefninu!Stór áfangi hefur náðst í evrópska WHISPER-verkefninu, sem Verkís leiðir. Ful...
26/08/2026

🌊🚢 Sjóprófanir hafnar í WHISPER-verkefninu!

Stór áfangi hefur náðst í evrópska WHISPER-verkefninu, sem Verkís leiðir. Fullar sjóprófanir eru nú hafnar um borð í Maria Topic, Ultramax-magnflutningaskipi í flota Ant. TOPIC.

🌬️ Skipið hefur verið útbúið stífum vængseglum frá OceanWings og ☀️ sólarsellum frá Solbian. Nú verður tæknin prófuð við raunverulegar rekstraraðstæður og meðal annars metið hversu mikið hún getur dregið úr eldsneytisnotkun og losun gróðurhúsalofttegunda. 🌱

🤝 WHISPER sameinar 13 samstarfsaðila víðs vegar um Evrópu og hefur það að markmiði að þróa raunhæfar lausnir fyrir orkuskipti í kaupskipaflotanum.

🚀 Spennandi áfangi í átt að sjálfbærari siglingum!

👉 Lesa fréttatilkynninguna: https://www.whisperenergy.eu/whisper-moves-to-full-scale-sea-trials-with-wind-propulsion-and-solar-power-retrofit-aboard-bulk-carrier/

https://verkis.is/frettir/sjoprofanir-hafnar-i-whisper-verkefninu/

Evrópska orkuskipta- og nýsköpunarverkefnið WHISPER, sem Verkís leiðir, hefur náð mikilvægum áfanga þar sem fullar sjóprófanir eru nú hafnar.

18/08/2026

🌱 Sjálfbærni er kjarninn í okkar starfi.

📊 Í nýrri sjálfbærni- og árangursskýrslu Verkís förum við yfir árangur ársins 2025 og hvernig við vinnum markvisst að því að byggja upp betra samfélag með sjálfbærni að leiðarljósi. 🌍

⚡ Frá verkefnum sem styðja orkuskipti og sjálfbærari innviði 🏗️ til þess að draga úr eigin umhverfisáhrifum 🌱 og skapa góðan vinnustað 🤝 – við viljum gera betur, ár frá ári.

Verkís er hluti af ráðgjafateymi Sæbrautarstokks og hefur komið að forhönnun verkefnisins. 🚧 Í vikunni tókum við þátt í ...
02/07/2026

Verkís er hluti af ráðgjafateymi Sæbrautarstokks og hefur komið að forhönnun verkefnisins. 🚧

Í vikunni tókum við þátt í opnu húsi þar sem gestir gátu kynnt sér verkefnið, skoðað hönnunina og rætt við sérfræðinga um skipulag, framkvæmd og næstu skref.

Í dag er síðan annað opið hús í Vogaskóla kl.16:30-18:00

Undirbúningur Sæbrautarstokks heldur áfram og í vikunni gafst almenningi tækifæri til að kynna sér verkefnið á opnu húsi.

🍽️ Veitingageirinn fjallar um mötuneyti Verkís á Akureyri, sem opnað var samhliða flutningi skrifstofunnar í nýtt húsnæð...
19/06/2026

🍽️ Veitingageirinn fjallar um mötuneyti Verkís á Akureyri, sem opnað var samhliða flutningi skrifstofunnar í nýtt húsnæði síðastliðið haust.

Verkís sá um alla verkfræðihönnun aðstöðunnar og rekur mötuneytið, þar sem lögð er áhersla á sjálfbærni ♻️, vandaða nýtingu hráefna 🌱 og að skapa aðlaðandi vinnuumhverfi.

☕️🍲 Mötuneytið þjónar starfsfólki fyrirtækja í húsinu og hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir samveru, fundi og viðburði.

👉 Lesið nánar hér: https://veitingageirinn.is/nytt-motuneyti-opnad-hja-verkis-a-akureyri-myndir/

Fjallað er um mötuneyti Verkís á Akureyri inn á vefsíðu Veitingageirans, þar sem sýnt er frá framkvæmdum, uppbyggingu og farið yfir stöðuna eins og hún er í dag.

Sjálfbærni- og árangursskýrsla Verkís 2025 er komin út 📘 Í skýrslunni er meðal annars fjallað um starfsemi, stefnu og þj...
02/06/2026

Sjálfbærni- og árangursskýrsla Verkís 2025 er komin út 📘

Í skýrslunni er meðal annars fjallað um starfsemi, stefnu og þjónustu Verkís, kolefnisspor fyrirtækisins og aðgerðir í loftslagsmálum, ásamt áherslu á starfsfólk, jafnrétti og verkefni þar sem sjálfbærni skiptir meginmáli 🌱

Hér er farið yfir starfsemi fyrirtækisins, helstu áherslur í sjálfbærnimálum og lykilþætti sem tengjast umhverfi, samfélagi og stjórnarháttum.

🌱 Sjálfbærni var í brennidepli hjá Verkís í síðustu viku🚶‍♀️ Dagur vistvænna ferðamáta♻️ Söfnun raftækja til endurvinnsl...
01/06/2026

🌱 Sjálfbærni var í brennidepli hjá Verkís í síðustu viku

🚶‍♀️ Dagur vistvænna ferðamáta
♻️ Söfnun raftækja til endurvinnslu
🌿 Kynning á Svansvottuðum vörum
🎤 Fræðandi fyrirlestrar um sjálfbærni og loftslagsmál

Markmið vikunnar var að efla þekkingu og vitund um sjálfbærni, bæði í starfi og daglegu lífi.

Í síðustu viku hélt Verkís sjálfbærniviku með fjölbreyttri dagskrá sem efldi þekkingu og vitund starfsfólks um umhverfismál og sjálfbærni.

Fáir þekkja sögu Verkís jafn vel og Már Hallgeirsson, umsjónarmaður fasteigna hjá Verkís. 🏢Í rúma s*x áratugi ⏳ hefur ha...
01/06/2026

Fáir þekkja sögu Verkís jafn vel og Már Hallgeirsson, umsjónarmaður fasteigna hjá Verkís. 🏢

Í rúma s*x áratugi ⏳ hefur hann komið að fjölbreyttum verkefnum fyrir fyrirtækið og orðið órjúfanlegur hluti af daglegu lífi þess. 🤝

Í tilefni af 80 ára afmæli hans 🎂 var litið til baka á einstaka starfsævi sem spannar allt frá fyrstu verkefnum hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen til dagsins í dag. ✨

Beint á viðtal 👉https://verkis.is/wp-content/uploads/2026/05/Verkis-Mar-Hallgeirs-attraedur-vidtal-mai26.pdf

https://verkis.is/frettir/thusundthjalasmidur-sem-tengir-saman-kynslodir/

Þúsundþjalasmiður sem tengir saman kynslóðir. Fáir þekkja sögu Verkís jafn vel og Már Hallgeirsson, umsjónarmaður fasteigna hjá Verkís.

Address

Ofanleiti 2
Reykjavík
103

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:00
Tuesday 08:30 - 16:00
Wednesday 08:30 - 16:00
Thursday 08:30 - 16:00
Friday 08:30 - 14:00

Telephone

+3544228000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Verkís Verkfræðistofa posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Verkís Verkfræðistofa:

Shortcuts

Share