EFLA

EFLA EFLA verkfræðistofa EFLA er þekkingarfyrirtæki, með hátt í 50 ára sögu, og veitir fjölbreytta þjónustu á öllum helstu sviðum verkfræði, tækni og tengdra greina.

Hlutverk EFLU er að koma fram með lausnir, sem stuðla að framförum viðskiptavina og efla samfélög og er samfélagsleg ábyrgð samofin tilgangi fyrirtækisins. Starfsfólkið er verðmætasta auðlind EFLU og hjá okkur starfar hæft og reynslumikið fagfólk með yfirgripsmikla þekkingu

Viðskiptablaðið birti í morgun viðtal við Kristínu Friðgeirsdóttur framkvæmdastjóra EFLU. Þar er fjallað um tækifæri á t...
03/06/2026

Viðskiptablaðið birti í morgun viðtal við Kristínu Friðgeirsdóttur framkvæmdastjóra EFLU. Þar er fjallað um tækifæri á tímum óvissu, öryggi innviða, möguleika gervigreindar og framtíðarvöxt EFLU innlendis og á erlendri grundu.

Samantekt og hlekk á viðtalið má finna hér:

Viðtal í VB við Kristínu Friðgeirsdóttur, framkvæmdastjóra EFLU. Rætt er um stöðu og framtíð fyrirtækisins á tímum óvissu og hraðra breytinga.

Tvö verkefni á vegum EFLU hafa hlotið styrk úr Aski, mannvirkjarannsóknasjóði HMS. Verkefnin snúa að áhrifum veðurfars á...
02/06/2026

Tvö verkefni á vegum EFLU hafa hlotið styrk úr Aski, mannvirkjarannsóknasjóði HMS. Verkefnin snúa að áhrifum veðurfars á mannvirki og styrkja faglegan grunn mannvirkjahönnunar á Íslandi. Lestu meira um verkefnin hér:

Tvö verkefni á vegum EFLU hlutu styrki úr Aski, mannvirkjarannsóknarsjóði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Veðurfar, skjól, sjálfbærni og mannlíf eru í lykilhlutverki í tillögu sem EFLA sendi inn í skipulagssamkeppni um Akureyr...
28/05/2026

Veðurfar, skjól, sjálfbærni og mannlíf eru í lykilhlutverki í tillögu sem EFLA sendi inn í skipulagssamkeppni um Akureyrarvöll og nágrenni. Lestu meira um hugmyndina og niðurstöðu dómnefndar hér:

EFLA sendi inn tillögu að skipulagi Akureyrarvallar og nágrennis í samkeppni sem Akureyrabær efndi til í samstarfi við Arkitektafélag Íslands.

Vorfögnuður EFLU heppnaðist afar vel þegar við buðum viðskiptavinum og samstarfsaðilum okkar í Gamla bíó og Petersen-sví...
20/05/2026

Vorfögnuður EFLU heppnaðist afar vel þegar við buðum viðskiptavinum og samstarfsaðilum okkar í Gamla bíó og Petersen-svítuna í síðustu viku.

Slík samvera skiptir okkur miklu máli, þar sem hún gefur tækifæri til að dýpka tengsl, ræða samstarf og eiga skemmtilega stund utan hins daglega amsturs.

Við þökkum kærlega fyrir komuna og hlökkum til áframhaldandi samvinnu.

Nánari upplýsingar á vefsíðu EFLU | https://www.efla.is/frettir-og-blogg/vorfognudur-eflu-heppnadist-vel

Sérfræðingar EFLU komu að heildarendurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar með áherslu á sjálfbæra landnýtingu, skýra fram...
13/05/2026

Sérfræðingar EFLU komu að heildarendurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar með áherslu á sjálfbæra landnýtingu, skýra framtíðarsýn og stafræna framsetningu.

Skipulagið er hið fyrsta sem unnið er að fullu stafrænt fyrir Borgarbyggð og byggir á ítarlegri greiningu, þar á meðal kortlagningu takmarkana vegna vindorku, flóðahættu og verðmæts landbúnaðarlands.

Nánari upplýsingar á vefsíðu EFLU.

Aðalskipulag Borgarbyggðar 2025–2037 unnið af EFLU með áherslu á vindorkutakmarkanir, flóðahættu, landbúnaðarland og stafræna framsetningu.

Sérfræðingar EFLU komu að endurbótum eftir rakaskemmdir á leikskólanum Grandaborg í Reykjavík en leikskólinn fékk Svansv...
07/05/2026

Sérfræðingar EFLU komu að endurbótum eftir rakaskemmdir á leikskólanum Grandaborg í Reykjavík en leikskólinn fékk Svansvottun í vikunni.

Áhersla var lögð á rakaöryggi, vandað efnisval og heilnæma innivist fyrir börn.

Nánari upplýsingar á vefsíðu EFLU.

Sérfræðingar EFLU komu að Svansvottuðum endurbótum á leikskólanum Grandaborg með áherslu á rakaöryggi, efnisval og heilnæma innivist fyrir börn.

07/05/2026

Kristófer Tómasson, sviðsstjóri framkvæmda- og veitusviðs hjá Bláskógabyggð, segir frá því hvernig hann notar kort.is daglega í sínum störfum, meðal annars til að nálgast nákvæmar upplýsingar um legu lagna, mannvirki og umhverfi. Kort.is veitir skýra mynd af stöðu verkefna, sparar tíma og styður við betri undirbúning framkvæmda. Kerfið safnar loftmyndum, landupplýsingum og skipulagsgögnum á einn aðgengilegan stað.

Nánari upplýsingar um kort.is: https://www.efla.is/kort.is

Sérfræðingar EFLU taka virkan þátt í fagþingi hita-, vatns-, og fráveitna sem Samorka stendur fyrir dagana 7.–8. maí.Mar...
06/05/2026

Sérfræðingar EFLU taka virkan þátt í fagþingi hita-, vatns-, og fráveitna sem Samorka stendur fyrir dagana 7.–8. maí.

Margrét Ásta Bjarnadóttir flytur erindi sem kallast Ný nálgun á ástandsgreiningu fráveitulagna, Guðmundur Sigfinnsson verður með erindi sem kallast Kostnaðarmat á framkvæmdum vegna fráveitutilskipunar ESB og Reynir Sævarsson mun taka þátt í pallborðsumræðum.

Nánari upplýsingar á vefsíðu EFLU.

Sérfræðingar EFLU flytja tvö erindi og taka þátt í pallborði um fráveitumál á fagþingi Samorku í Reykjanesbæ.

Kristín Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri EFLU, hélt erindi á úrslitakeppni stærðfræðikeppninnar Pangeu sem fram fór í M...
05/05/2026

Kristín Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri EFLU, hélt erindi á úrslitakeppni stærðfræðikeppninnar Pangeu sem fram fór í Menntaskólanum í Hamrahlíð fyrir stuttu.

EFLA hefur stutt keppnina í gegnum Samfélagssjóð fyrirtækisins og leggur þannig áherslu á að hvetja ungt fólk til náms í raungreinum.

Nánari upplýsingar á vefsíðu EFLU.

Kristín Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri EFLU, flutti erindi á úrslitakeppni stærðfræðikeppninnar Pangeu og ræddi mikilvægi raungreina og menntunar.

Sjálfbærni- og ársskýrsla EFLU 2025 er komin út. Í skýrslunni eru upplýsingar um árangur, viðburði, nýsköpun og helstu á...
04/05/2026

Sjálfbærni- og ársskýrsla EFLU 2025 er komin út. Í skýrslunni eru upplýsingar um árangur, viðburði, nýsköpun og helstu áherslur fyrirtækisins, ásamt ársreikningi, umhverfismarkmiðum, samfélagsuppgjöri og framlagi EFLU til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Kristín Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri EFLU, ritar inngangsorð skýrslunnar þar sem hún fjallar meðal annars um rekstur, mannauð, innviðauppbyggingu og áskoranir samtímans.

Skýrslan er aðgengileg á vefsíðu EFLU.

Sjálfbærni- og ársskýrsla EFLU 2025 inniheldur ársuppgjör, umhverfismarkmið, UFS uppgjör, nýsköpun og lykiltölur úr starfsemi félagsins.

Address

Lyngháls 4
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3544126000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when EFLA posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share