18/06/2026
Teresa Anne Frigge fyrsti styrkþegi Minningarsjóðs Magnúsar Más Kristjánssonar!
Hvatningarverðlaun úr Minningarsjóði Magnúsar Más Kristjánssonar voru afhent í fyrsta skipti síðastliðinn fimmtudag. Verðlaunin eru veitt þeim nemanda sem útskrifast með hæstu meðaleinkunn úr BS-námi í lífefna- og sameindalíffræði við HÍ. Teresa Ann Frigge varð þess heiðurs aðnjótandi að hljóta fyrsta styrk sjóðsins.
Markmið minningarsjóðsins er að hvetja til framúrskarandi árangurs í námi og að heiðra minningu Magnúsar Más, fyrrverandi prófessors í lífefnafræði við HÍ, sem lést árið 2024 langt fyrir aldur fram eftir stutta baráttu við krabbamein. Magnús Már var einn áhrifamesti kennari og vísindamaður á sviði lífefnafræði á Íslandi og kenndi og leiðbeindi hundruðum nemenda sem starfa í dag víða á vettvangi vísinda, heilbrigðisþjónustu og líftækniiðnaðar.
Nánar:
Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun