3D-Prentun

3D-Prentun Þrívíddarprentun fyrir íslensk fyrirtæki og einstaklinga. Sendu þitt 3D módel á .STL sniði á [email protected]

Tveir Stratasys 1200sst þrívíddarprentarar til sölu - UPPFÆRÐIR Í FORTUS 250MCVerð kr. 850.000 stykkið.Þessir iðnaðarþrí...
19/11/2021

Tveir Stratasys 1200sst þrívíddarprentarar til sölu - UPPFÆRÐIR Í FORTUS 250MC

Verð kr. 850.000 stykkið.

Þessir iðnaðarþrívíddarprentarar eru settir upp til að vera eins notendavænir og Stratasys prentarar beint frá verksmiðjunni en með betri eiginleikum en Fortus 250mc og hægt er að nota ABS plastþráð á broti af verðinu frá Stratasys.

Í grunninn eru þetta Stratasys 1200sst prentarar. Þeir hafa verið uppfærðir þannig að þeir eru með betri eiginleika en 1200es og Fortus 250mc. Uppfærslan felur í sér:

- Stækkun upp í 312 x 269 x 269 mm prentrými, sem er stærra en í nokkrum 1200 eða Fortus 250 prentara.
- 0,33 mm, 0,254 mm, 0,178 mm og 0,127 mm lagþykktir (0,127 mm lagþykkt er ekki einu sinni möguleiki hjá Stratasys)
- Uppsettir fyrir uppleysanlegt SR-30 stuðningsefni en nú er hægt að nota mjög ódýrt HIPS (ég hef eingöngu notað HIPS)
- Uppsettir til að nota mjög ódýrt ABS plast sem kostar 1/8 af því sem Stratasys plastið kostar
- Búið að skipta yfir í flaggskipsforritið Stratasys Insight til að fá algjöra stjórn á prentuninni
- Hægt að endurstilla flögurnar á prenthylkjunum auðveldlega og ókeypis
- Búið að breyta einnota plötunum sem prentað er á þannig að hægt er að nota þær endalaust

Allt þetta og þeir keyra alveg eins og prentarar beint frá Stratasys. Hægt að prenta mjög þykk stykki með 100% infill og fá níðsterka parta sambærilega þeim sem fást með fræsingu.

Aukahlutapakki fylgir með, nokkrar plötur til að prenta á og ABS prentþráður. Þetta er allt sem þú þarft til að geta byrjað að prenta strax.

Sjá vörulýsingu frá framleiðanda:

Product Specifications
The SST 1200es uses Soluble Support Technology in which the supports are dissolved after printing in a solution.
Dimension SST 1200es: $32,900*
Model material:
ABSplus in ivory, white, black, red, olive green, nectarine, fluorescent yellow, blue or gray.
Support material:
Soluble Support Technology (SST)
Build Size:
254 x 254 x 305 mm (10 x 10 x 12 inches)
Layer Thickness:254 mm (.010 in.) or .33 mm. (.013 in.) of precisely deposited ABSplus model and support material.
Workstation Compatibility:
Windows® XP / Windows Vista® / Windows® 7
Network Connectivity:
Ethernet TCP/IP 10/100Base-T
Size and Weight:
838 x 737 x 1143 mm (33 x 29 x 45 in.)
148 kg (326 lbs.)
Power Requirements:
110-120 VAC, 60 Hz, minimum15A dedicated circuit;
or 220-240 VAC, 50/60 Hz, minimum 7A dedicated circuit.
Regulatory Compliance:
CE / ETL

17/11/2021

3D-Prentun ehf er hætt störfum. Takk fyrir góðar viðtökur, þetta hefur verið mikið ævintýri. Við ætlum að selja stóru iðnaðarprentarana. Auglýsing birtist fljótlega.

17/03/2020

3D-Prentun verður lokuð í bili.

14/10/2019

3D-Prentun auglýsir eftir nema í hlutastarf við þrívíddarprentun. Kunnátta í þrívíddarteikningu er mikill kostur. Greiðslur eru fyrir hvert verkefni fyrir sig og ekki ýkja háar. Verkefni koma inn á handahófskenndum tímum og það er því ekki hægt að treysta á þetta starf sem tekjulind. Þetta er hins vegar tækifæri til að kynnast „additive manufacturing“ eins og það er notað í iðnaði í dag. 3D-Prentun er lítið fyrirtæki sem er í startholunum og vill smám saman bjóða upp á allt það besta sem gerist í þrívíddarprentun. Verkefnin eru fjölbreytt og skemmtileg, sjá myndir á Facebook síðunni okkar.

Hafðu samband við
Svavar Konráðsson
[email protected]
Sími 823- 8037

Hér má sjá áhrifaríka notkun á þrívíddarprentuðum módelum á sjávarútvegssýningu í Noregi. Módelin eru prentuð í Stratasy...
25/09/2019

Hér má sjá áhrifaríka notkun á þrívíddarprentuðum módelum á sjávarútvegssýningu í Noregi. Módelin eru prentuð í Stratasys iðnaðarprenturunum. Hlynur Þráinn Sigurjónsson aðlagaði tölvuteikningarnar fyrir þrívíddarprentun og teiknaði standa fyrir módelin.

Blue Fish expo in Aalesund, Norway started this morning

Smári Jósafatsson sýnir Ekkó toghlerana á Sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll, sem hófst á hádegi í dag. Hann tekur ...
25/09/2019

Smári Jósafatsson sýnir Ekkó toghlerana á Sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll, sem hófst á hádegi í dag. Hann tekur stóra bláa þrívíddarprentaða módelið með sér á sýningar erlendis.

22/07/2019

Hér má sjá hvernig stuðningsefnið virkar og hvernig það er fjarlægt eftir prentun. Og ástæðan fyrir appelsínulyktinni á skrifstofunni kemur í ljós :)

Address

Héðinsgata 1-3
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when 3D-Prentun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to 3D-Prentun:

Share