Orkuveitan

Orkuveitan Orkuveitan styður vaxandi samfélög, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu. Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar.

Fyrirtæki Orkuveitunnar eru Orka náttúrunnar, Veitur, Ljósleiðarinn og Carbfix.

07/09/2026

Hvernig varð fyrsti rafmagnsstjórinn í Reykjavík bjargvættur laxanna? 🐟⚡

Þegar Elliðaárstöð var í fullri notkun þornaði áin á kafla upp að Árbæjarstíflu. Þá tók starfsfólk rafstöðvarinnar höndum saman með Stangveiðifélaginu, veiddi laxinn upp í kör og flutti hann að hrygningarstöðvum.

Með þessu óvenjulega samstarfi var laxinum í Elliðaánum í raun bjargað.

Orkuveitan og dótturfélög taka þátt í Treyjudeginum. 👕Í dag klæddist starfsfólk Orkuveitunnar og dótturfélaga uppáhalds ...
04/09/2026

Orkuveitan og dótturfélög taka þátt í Treyjudeginum. 👕

Í dag klæddist starfsfólk Orkuveitunnar og dótturfélaga uppáhalds íþróttatreyjunni sinni til að vekja athygli á styrktarfélaginu Börn með krabbamein.

Styrktarfélagið stendur að Treyjudeginum en félagið hefur frá árinu 1991 stutt við krabbameinsveik börn og fjölskyldur þeirra, bæði fjárhagslega og félagslega, auk þess að standa vörð um réttindi þeirra.

Við hvetjum öll sem hafa tök á að styðja við félagið og það mikilvæga starf sem þar er unnið.

Nánar um félagið og hvernig hægt er að leggja því lið: https://treyjudagur.is/

Börn með krabbamein, styrktarfélag Orka náttúrunnar Veitur Ljósleiðarinn Carbfix

Góður vilji er byrjun – en hann skilar ekki árangri án aðgerða.Orkuveitan og Jafnvægisvogin hafa undirritað þriggja ára ...
04/09/2026

Góður vilji er byrjun – en hann skilar ekki árangri án aðgerða.

Orkuveitan og Jafnvægisvogin hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning um að stuðla að auknu kynjajafnvægi í efsta lagi stjórnunar á Íslandi. ⚖️

Jafnréttismál eru ekki nýtt trend hjá okkur í Orkuveitunni, þau eru í erfðaefni fyrirtækisins og ná áratugi aftur í tímann, til forvera fyrirtækisins.

Sem dæmi má nefna að Rafmagnsveita Reykjavíkur setti sér jafnréttisáætlun árið 1996 og síðan þá höfum við lagt áherslu á þessi mál í orði og á borði. Við höfum sett okkur skýr markmið, mælt árangurinn og fylgt honum eftir með aðgerðum. 💪

Orkuveitan og Jafnvægisvogin hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning með það að markmiði að stuðla að auknu kynjajafnvægi í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, opinberra stofnana, lífeyrissjóða og sveitarfélaga.

Í Pride-vikunni urðum við fyrir því leiðinlega atviki að regnboga-fjölbreytileikafánarnir sem blöktu við höfuðstöðvar ok...
25/08/2026

Í Pride-vikunni urðum við fyrir því leiðinlega atviki að regnboga-fjölbreytileikafánarnir sem blöktu við höfuðstöðvar okkar á Bæjarhálsi voru teknir niður með ófrjálsri hendi.

Við hörmum þetta atvik og nýir fjölbreytileikafánar voru pantaðir frá Samtökunum '78 sem eru nú komnir á sinn stað. Fánarnir munu standa út vikuna sem tákn um að virðing, fjölbreytileiki og inngilding eigi alltaf heima hjá okkur.

Það er ekki sjálfgefið að öll upplifi virðingu, öryggi og að þau tilheyri. Þess vegna skiptir máli að við sýnum í verki þau gildi sem við viljum standa fyrir.

Við stöndum með hinsegin samfélaginu í dag og alla daga 🌈

Meira hér 👉
https://www.orkuveitan.is/orkuveitan/fjolmidlatorg/frettasafn/fognum-fjolbreytileikanum

Ljósleiðarinn
Veitur
Orka náttúrunnar
Carbfix

14/08/2026
Það var okkur sönn ánægja að taka á móti japönskum þingmönnum í fylgd Keizo Takewaka, sendiherra Japans á Íslandi, og se...
07/08/2026

Það var okkur sönn ánægja að taka á móti japönskum þingmönnum í fylgd Keizo Takewaka, sendiherra Japans á Íslandi, og sendiráðunauts. 🇮🇸🇯🇵

Gestirnir sýndu mikinn áhuga á íslenskri nýsköpun á sviði jarðhita og kynntu sér meðal annars djúpborunarverkefnið IDDP-3, þar sem stefnt er að borun þriðju holunnar síðar á árinu. Einnig fengu þeir innsýn í lausnir Carbfix til föngunar og varanlegrar steinbindingar koltvísýrings.

Áhugi á starfsemi Orkuveitunnar og íslenskum lausnum í orkumálum heldur áfram að vaxa á alþjóðavísu, enda hefur Ísland margt fram að færa þegar kemur að endurnýjanlegri orku og loftslagslausnum. 🌍💚

07/08/2026

Við trúum því að öflug samfélög verði til þegar fólk fær að vera það sjálft.

Jafnrétti og inngilding eru ekki tímabundin verkefni heldur hluti af því hvernig við viljum starfa alla daga. Hjá Orkuveitunni leggjum við áherslu á að fólk njóti jafns réttar og sömu tækifæra og að fjölbreytileiki fái að blómstra, eins og sjá má í jafnréttisstefnu okkar.

Við stöndum með hinsegin samfélaginu í dag og alla daga. 💚
🌈 Gleðilega Hinsegin daga!

05/08/2026

Það má vera gaman þegar maður gerir gagn! 🌲🎉🌳

Address

Bæjarháls 1
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

5166100

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Orkuveitan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category