08/05/2024
🌟 Spennandi starf fyrir áhugasama! 🌟
Efnagreining ehf á Akranesi óskar eftir að ráða starfsmann í þjálfun/vinnu við efnagreiningar. Þetta er fjölskyldufyrirtæki, rekið af okkur hjónum, Elísabeti Axelsdóttir og Arngrími Thorlacius. Elísabet rekur fyrirtækið og annast margvíslegar greiningar, en Arngrímur (Dr. Scient. með efnagreiningu sem sérsvið) er faglega ábyrgur, sér um þróunarstarf og sérhæfðar greiningar. Aðrir starfsmenn eru enn sem komið aðeins í hlutastarfi. Umsvifin hafa verið að aukast jafnt og þétt og við sjáum fram á að þurfa fastan starfsmann með okkur og í staðinn fyrir okkur þegar fram líða stundir.
Þar sem ekki er boðið upp á mastersnám í efnagreiningu hér heima, myndum við vilja ráða einstakling með BSc-próf í efnafræði eða efnaverkfræði, sem fengi í framhaldinu sérhæfingu hjá okkur. Það kemur jafnframt vel til greina að viðkomandi tæki MSc-gráðu á sviði efnagreininga samhliða þessari vinnu, með rannsóknarverkefni hjá okkur á Akranesi.
"Starfslýsingin" hér að ofan er heldur óljós, en ef einhver nemandi við H.Í., sem hefur lokið, er að ljúka eða er langt kominn með B.Sc. nám í efnafræði/efnaverkfræði og sem hefur áhuga á að fræðast um þennan möguleika þá værum við þakklát fyrir að viðkomandi hefði beint samband við okkur:
Elísabet Axelsdóttur s. 6612629 eða [email protected]