Orka náttúrunnar

Orka náttúrunnar Leyfðu okkur að leysa úr flækjunni 🔌
Hleðslustöð fyrir þitt heimili 🏡
Heimahleðsla ON í áskrift 🤝

⚡️Við framleiðum heitt vatn og rafmagn í þremur virkjunum⚡️💦

⚡️Við seljum rafmagn til heimila og fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum🏡

⚡️Við erum leiðandi í orkuskiptum í samgöngum og rekum yfir 800 hleðslustöðvar um land allt💥

08/09/2026

Hvað felst eiginlega í því að halda utan um stór og flókin verkefni – og hvað þarf til að verða virkilega góð í því?

Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri verkefnastofu ON, hefur starfað við verkefnastjórnun í rúman áratug og hlaut nýverið fyrst Íslendinga IPMA Level B vottun í verkefnaskráarstjórnun. 👏

Við settumst niður með Kristínu og ræddum starfið, fólkið, leiðina að þessum áfanga og hvað hún hefur lært á leiðinni. 💚

Vistheimt og orkuvinnsla geta farið saman. 🌱🌋Nemendur í meistaranámi í endurheimt vistkerfa við Landbúnaðarháskóla Íslan...
03/09/2026

Vistheimt og orkuvinnsla geta farið saman. 🌱🌋

Nemendur í meistaranámi í endurheimt vistkerfa við Landbúnaðarháskóla Íslands heimsóttu Hellisheiði á dögunum og kynntu sér umhverfisverkefni ON á svæðinu.

Þau skoðuðu meðal annars uppgræðslu með fræslægju og gróðurtorfum.

Auk þess var skoðaður endurheimtur lækur á svæðinu þar sem náttúrumiðuðum lausnum er beitt við stýringu yfirborðsvatns.

Takk fyrir heimsóknina og gott samtal um náttúruna, þekkinguna og sjálfbæra framtíð. 🧡

Orka náttúrunnar (ON) er íslenskt orkufyrirtæki sem framleiðir og selur endurnýjanlega orku úr náttúruauðlindum eins og vatnsafli og jarðhita. ON veitir hreina og sjálfbæra orku til heimila og fyrirtækja um land allt með áherslu á umhverfisvænar lausnir.

„Við þurfum bara að brosa út að eyrum“, sagði Úlfar Linnet forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna aðspurður í B...
01/09/2026

„Við þurfum bara að brosa út að eyrum“, sagði Úlfar Linnet forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna aðspurður í Bítinu á Bylgunni um hvort ON þurfi að bregðast við aukinni notkun á hleðslustöðvum 😁 Hann segir að orkuskiptunum sé alls ekki lokið en að innviðirnir séu í toppstandi og tilbúnir til að taka á móti enn fleiri rafbílum.
Hlustaðu á viðtalið við Úlfar hér fyrir neðan þar sem hann útskýrir af hverju hann telur hinn svokallaða hleðslukvíða vera á undanhaldi.
🎧

Úlfar Linnet, forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna hjá Orku náttúrunnar, ræddi við okkur um hleðslukvíða.

Kveðja til hleðslukvíðans ⚡🚗Notkun hraðhleðslustöðva jókst um 50% milli ára í sumar og margt bendir til þess að rafbílli...
28/08/2026

Kveðja til hleðslukvíðans ⚡🚗

Notkun hraðhleðslustöðva jókst um 50% milli ára í sumar og margt bendir til þess að rafbíllinn sé loksins orðinn aðalferðabíll fjölskyldunnar – hringinn í kringum landið. 🌍

Úlfar Linnet, forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna hjá ON, skrifar um þessa þróun og ferðalög þar sem má hafa miðstöðina í botni.

Lestu greinina hér að neðan. 👇

Það virðist nokkuð merkilegt hafa gerst í samgöngumálum þjóðarinnar á nýliðnu sumri. Allt bendir til þess að hleðslukvíðinn, sem mörg okkar hafa þjáðst af, sé nú að lina tökin á landanum.

Lausnir frá Hellisheiði vekja alþjóðlegan áhuga. 🌍🌋Austurríska ríkisútvarpið heimsótti okkur nýlega til að kynna sér hve...
27/08/2026

Lausnir frá Hellisheiði vekja alþjóðlegan áhuga. 🌍🌋

Austurríska ríkisútvarpið heimsótti okkur nýlega til að kynna sér hvernig við nýtum jarðvarma á Íslandi – og hvort hægt sé að yfirfæra þá þekkingu annars staðar í heiminum.

Henri Krätzschmar, vísindamiðlari, ræddi meðal annars hvernig jarðvarmaorkan er framleidd og nýtt í Hellisheiðarvirkjun.

Sjáðu innslagið hér að neðan. 👇

Carbfix Geothermal Exhibition / Jarðhitasýningin

Mit Wasserkraft und Geothermie schaffte Island bereits vor Jahrzehnten die Energiewende. Auch in Österreich könnte Geothermie durch eine Gesetzesänderung bald möglich sein. Darüber hinaus ist die Insel bei neuen Technologien wie CO2-Speicherung vielen Ländern voraus. Grund für uns, sich den K...

Nýtt ON app á leiðinni!Við erum að undirbúa útgáfu á nýrri og bættri útgáfu af ON appinu sem mun gera hleðsluupplifunina...
25/08/2026

Nýtt ON app á leiðinni!

Við erum að undirbúa útgáfu á nýrri og bættri útgáfu af ON appinu sem mun gera hleðsluupplifunina enn betri.

Allir hleðsluviðskiptavinir ON þurfa þá að skrá sig inn í nýja appið og setja inn greiðslukortaupplýsingar. Þetta á einnig við um notendur ON lykils.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar eru á www.on.is

Vertu ON í nýtt app!

Hvernig færum við loftslagslausnir úr Hellisheiði og inn í kennslustofuna? 🌋➡️🏫Framhaldsskólakennarar víðs vegar að af l...
21/08/2026

Hvernig færum við loftslagslausnir úr Hellisheiði og inn í kennslustofuna? 🌋➡️🏫

Framhaldsskólakennarar víðs vegar að af landinu heimsóttu Hellisheiðarvirkjun á dögunum og kynntu sér jarðhita, nýsköpun og þau fjölbreyttu verkefni sem þróuð eru af Carbfix og Orku náttúrunnar á Hellisheiði.

Það var nóg af spurningum, góðum umræðum og hugmyndum um hvernig hægt er að kveikja enn meiri áhuga ungs fólks á vísindum og sjálfbærni. 🌱💡

Takk fyrir komuna!

https://www.on.is/frettir/framhaldsskolakennarar-kynntu-ser-nyskopun-i-loftslags--og-orkumalum

„Við erum búin að bíða eftir að það komi rólegur tími uppi í virkjun í tuttugu ár – hann er ekki enn kominn.“ ⚡️Hvernig ...
21/08/2026

„Við erum búin að bíða eftir að það komi rólegur tími uppi í virkjun í tuttugu ár – hann er ekki enn kominn.“ ⚡️

Hvernig er að reka eina stærstu jarðvarmavirkjun heims?

Óskar Gunnarsson hefur starfað við Hellisheiðarvirkjun frá því áður en hún var gangsett. Í nýjasta þætti Orkunnar í náttúrunni ræðir hann við Árna Hrannar um daglegt líf í virkjuninni, teymisvinnuna á bak við reksturinn og hvað hefur breyst á síðustu tuttugu árum.

🎧 Hlustaðu á þáttinn og kynntu þér málið nánar.

https://www.on.is/frettir/hvernig-er-ad-reka-eina-staerstu-jardvarmavirkjun-heims

⚡ Athugið, rafbílaeigendur!Hraðhleðslustöðvar ON í Víðigerði verða lokaðar frá kl. 8 þriðjudaginn 18. ágúst og fram á mi...
17/08/2026

⚡ Athugið, rafbílaeigendur!

Hraðhleðslustöðvar ON í Víðigerði verða lokaðar frá kl. 8 þriðjudaginn 18. ágúst og fram á miðvikudagskvöld 19. ágúst vegna malbikunarframkvæmda á svæðinu.

Við biðjum þau sem eiga leið um Víðigerði þessa daga að gera ráð fyrir lokuninni. Aðrar hleðslustöðvar ON má finna í ON-appinu og á hleðslukorti ON.

Við biðjumst velvirðingar á óþægindunum 💚

Orka náttúrunnar (ON) er íslenskt orkufyrirtæki sem framleiðir og selur endurnýjanlega orku úr náttúruauðlindum eins og vatnsafli og jarðhita. ON veitir hreina og sjálfbæra orku til heimila og fyrirtækja um land allt með áherslu á umhverfisvænar lausnir.

Hlaða. Skemmta sér. Keyra. ⚡Í Egilshöll geturðu farið í bíó, keilu, skauta, borðað og horft á fótboltaleik á meðan við h...
14/08/2026

Hlaða. Skemmta sér. Keyra. ⚡

Í Egilshöll geturðu farið í bíó, keilu, skauta, borðað og horft á fótboltaleik á meðan við hlöðum bílinn .

Þegar þú ert búinn að njóta, er bíllinn tilbúinn líka. 🚗💙

Address

Bæjarhálsi 1
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Orka náttúrunnar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category