29/04/2026
Það er ekki alltaf hægt að treyst á að niðurföll séu nógu tillitssöm að stíflast þegar auðvelt er að stökkva út í búð og kaupa stíflueyði.
Ef vaskurinn, baðið eða sturtan stíflast er hægt að prófa eftirfarandi uppskrift að stíflueyði sem er búin til úr efnum sem gætu verið til inni í skáp og skaða ekki náttúruna.
Heimagerður stíflueyðir
Hráefni:
- 1 bolli matarsódi (baking soda)
- 1 bolli edik (hvítt edik virkar best)
- 1 líter af sjóðandi vatni
Leiðbeiningar:
- Helltu matarsódanum niður í stíflaða niðurfallið.
- Helltu edikinu strax á eftir – það mun freyða og byrja að vinna á stíflunni.
- Láttu blönduna vinna í 10–15 mínútur.
- Helltu sjóðandi vatni niður í niðurfallið til að skola lögnina.
Ef stíflan er alvarleg eða blandan virkar ekki, hringdu þá í 785 8608 eða sendu okkur línu á [email protected] og fáðu okkur í málið.