24/12/2025
Erfitt að gera þessu skil í nokkrum myndum(20 hámark) en þetta var skemmtilegt verkefni í Garðabæ, eldra hús tekið í gegn. Mikið skorið upp og skafið, stórir hornalistar fjarlægðir og húsið "bundið" saman uppá nýtt með innhornum og úthornum á öll horn. Svo þurfti að setja borða í samskeyti hér og þar og svo allt húsið heilspartlað eftir að öllum undirbúningi lauk. Lokaskrefið var svo að gera við þessa fallegu glugga og lakka hvíta, kítta gólflista og hurðir og svo lokamála. Veggir og loft í sama lit, 1/2 Hör.