Jáverk

Jáverk JÁVERK ehf. er verktakafyrirtæki sem starfar á útboðsmarkaði og í eigin verkum. Fyrirtækið hefur á að skipa öflugum starfsmönnum, stjórnendum og tækjabúna

Við hjá JÁVERK höfum lokið Svansvottunarferlinu fyrir íbúðirnar á Digraneshæð. Þar með eru allar 180 íbúðirnar á þessum ...
04/06/2026

Við hjá JÁVERK höfum lokið Svansvottunarferlinu fyrir íbúðirnar á Digraneshæð. Þar með eru allar 180 íbúðirnar á þessum glæsilega reit milli Menntaskólans í Kópavogi og grunnskólans orðnar Svansvottaðar.

Guðrún Lilja Kristinsdóttir framkvæmdastjóri Svansins og Bergþóra Kvaran sérfræðingur hjá Svaninum afhentu Bergþóri Inga Sigurðssyni verkefnastjóra og Sigrúnu Melax, gæða- öryggis- og umhverfisstjóra JÁVERK vottunina.

Svansvottun felur í sér strangar kröfur um gæði, umhverfismál og innivist. Á byggingartíma eru framkvæmdar meðal annars rakamælingar og loftþéttleikaprófanir, auk þess sem öll byggingarefni þurfa að uppfylla kröfur Svansins um heilnæmi og umhverfisáhrif.

Við hönnun og uppbyggingu íbúðanna á Digraneshæð var sérstök áhersla lögð á góða innivist, hljóð- og ljósvist, loftræsingu, orkunýtingu og endingargóð efni. Notkun steypu með lægra kolefnisspori gerði okkur jafnframt kleift að draga úr kolefnislosun vegna steypunnar um ríflega 30%.

Við erum afar stolt af þessu verkefni. Auk vandaðra íbúða hefur verið skapað fjölskylduvænt umhverfi þar sem Skólatröðin hefur verið gerð að göngugötu og börn geta gengið örugglega í leik- og grunnskóla án þess að fara yfir umferðargötu og Menntaskólinn í Kópavogi er einnig örstutt frá.

Árangur sem þessi byggir á góðu samstarfi Kópavogsbæjar, ráðgjafa, undirverktaka og starfsfólks JÁVERK. Við þökkum öllum sem komu að verkefninu fyrir þeirra framlag.

Nánari upplýsingar um Svansvottaðar íbúðir má finna á heimasíðu JÁVERK.

30/04/2026
17/04/2026

Skoða nánar 👉

Vanur bílstjóri og kranamaður Við óskum eftir að ráða áhugasaman meiraprófsbílstjóra með reynslu og kranaréttindi. Starf...
16/04/2026

Vanur bílstjóri og kranamaður
Við óskum eftir að ráða áhugasaman meiraprófsbílstjóra með reynslu og kranaréttindi. Starfið felst í stjórnun á vörubílum með krönum og akstur trailera í t í þjónustu við viðskiptavini okkar sem og þjónustu við byggingaverkefni JÁVERK.
Nánari upplýsingar gefur Kristján Ingi Vignisson í síma 860 1701 eða [email protected]
Hæfniskröfur:
• Meirapróf (CE) og vinnuvélaréttindi fyrir krana (D)
• Tala og skilja íslensku
• Stundvísi
• Þjónustulund og sjálfstæði í vinnubrögðum
JÁVERK rekur öfluga krana og flutningaþjónustu og er stefna fyrirtækisins að búa alltaf yfir fyrsta flokks tækjum og starfsfólki til að tryggja viðskiptavinum okkar sem besta og öruggasta þjónustu og starfsfólki okkar góðar vinnuaðstæður.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál

JÁVERK undirritaði nú nýlega verksamning við Háskólann í Reykjavík um byggingu 148 nýrra íbúða fyrir nemendur HR við Ösk...
25/03/2026

JÁVERK undirritaði nú nýlega verksamning við Háskólann í Reykjavík um byggingu 148 nýrra íbúða fyrir nemendur HR við Öskjuhlíð í Reykjavík.

Þessi áfangi verður í þremur aðskildum húsum við hlið þeirra nemendaíbúða sem fyrir eru.

JÁVERK byggði fyrstu tvo áfangana í Öskjuhlíðinni árin 2018 - 2021, 126 íbúðir í þeim fyrsta og 133 íbúðir í öðrum áfanga. Með þessari viðbót verður JÁVERK búið að byggja 407 íbúðir fyrir stúdenta í Öskjuhlíðinni. Við þekkjum því verkefnið vel og samstarfið við verkkaupa hefur verið mjög gott.

Framkvæmdir eru þegar hafnar og stefnt er að því að íbúðirnar verði tilbúnar fyrir haustönn 2028.

Á myndinni eru f.v. Jón Haukur Arnarson, framkvæmdastjóri rekstrar í HR, Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR og Gylfi Gíslason framkvæmdastjóri JÁVERK ehf.

Fyrstu íbúar fluttir inn við Tryggvagötu á SelfossiJÁVERK hefur afhent fyrstu íbúðirnar við Tryggvagötu á Selfossi og er...
18/12/2025

Fyrstu íbúar fluttir inn við Tryggvagötu á Selfossi

JÁVERK hefur afhent fyrstu íbúðirnar við Tryggvagötu á Selfossi og eru fyrstu íbúar nú fluttir inn. Um er að ræða mikilvægan áfanga í þessu metnaðarfulla íbúðaverkefni og erum við hjá JÁVERK afar stolt af framkvæmdinni.

Alls eru 78 íbúðir í fjórum húsum við Tryggvagötu ásamt sameiginlegum bílakjallara.

Áætlað er að allar íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar á næstu vikum.

Íbúðirnar verða Svansvottaðar og uppfylla þar með strangar kröfur um umhverfisvænni byggingar, gæði og heilnæmt húsnæði.

Á myndinni er Guðjón verkefnastjóri JÁVERK að afhenda fyrstu lyklana til íbúa ásamt fulltrúa frá fasteignasölunni.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér: www.tryggvagata10.is

Hér má finna upplýsingar frá Umhverfisstofnun um það hvað felst í Svansvottuðu húsnæði. https://svanurinn.is/frettir/hvad-er-a-bakvid-svansvottad-husnaedi/

Fyrstu Svansvottuðu íbúðirnar í Kópavogi!Í síðustu viku fékk JÁVERK Svansleyfi fyrir fyrri hluta verkefnisins á Álftröð ...
08/12/2025

Fyrstu Svansvottuðu íbúðirnar í Kópavogi!

Í síðustu viku fékk JÁVERK Svansleyfi fyrir fyrri hluta verkefnisins á Álftröð 1, á Digraneshæð í Kópavogi. Um er að ræða 115 íbúðir á Hávegi 2 og 4, Álftröð 1,3,5 og 7 ásamt bílakjallara fyrir öll húsin.

Þetta er enn einn stóri áfanginn í því að bjóða hágæða umhverfisvænni íbúðir þar sem heilnæm innivist og gæði eru í fyrirrúmi.

Bergþóra Kvaran frá Svaninum afhenti Svansleyfið Arnari og Bergþóri verkefnastjórum, Sigrúnu og Auði ásamt formanni húsfélagsins, Snorra Þórissyni.

Þess má geta að þetta eru fyrstu Svansvottuðu íbúðirnar í Kópvogi og enn eru 62 íbúðir í vinnslu og Svansvottunarferli í þessu verkefni.

Svansvottaðar byggingar tryggja að umhverfisáhrif eru lágmörkuð í gegnum allt ferlið – frá hönnun og efnisvali til framkvæmdar og reksturs.

JÁVERK hefur áður fengið Svansleyfi fyrir fjölbýlishúsabyggð á Seltjarnarnesi og í Hveragerði og þar að auki eru þrjú önnur verkefni hjá okkur í Svansvottunarferli en samtals eru þetta 379 íbúðir sem eru ýmist Svansvottaðar eða í ferli á vegum JÁVERK.

Hægt er að skoða nánari upplýsingar um verkefnið hér: www.digranes.is

Svansvottun TívolíbyggðFyrstu húsin í Hveragerði hafa nú verið Svansvottuð! JÁVERK hefur nú formlega fengið afhenta Svan...
03/12/2025

Svansvottun Tívolíbyggð
Fyrstu húsin í Hveragerði hafa nú verið Svansvottuð!

JÁVERK hefur nú formlega fengið afhenta Svansvottun fyrir 44 íbúðir í Tívolíbyggð í Hveragerði. Þetta er stór áfangi í okkar vinnu að tryggja umhverfisvænni byggingar og hágæða húsnæði fyrir íbúa.

Reynir verkefnastjóri ásamt Gylfa, Sigrúnu og Auði veittu vottuninni viðtöku miðvikudaginn 2. desember s.l. frá Bergþóru Kvaran, fulltrúa Umhverfisstofnunar.

Svansvottun er alþjóðlega viðurkennd umhverfisvottun sem setur ströng skilyrði um efnisval, orkunýtingu og heilnæmi íbúða. Með þessari vottun staðfestum við skuldbindingu okkar til sjálfbærni og ábyrgðar í byggingarframkvæmdum.

Með þessu verkefni höldum við áfram að vera í fararbroddi í grænni uppbyggingu á Íslandi.

JÁVERK fær sérstaka viðurkenningu á Umhverfisdegi atvinnulífsinsÍ dag fengum við hjá JÁVERK sérstaka viðurkenningu á Umh...
24/11/2025

JÁVERK fær sérstaka viðurkenningu á Umhverfisdegi atvinnulífsins

Í dag fengum við hjá JÁVERK sérstaka viðurkenningu á Umhverfisdegi atvinnulífsins. Þessi viðurkenning er mikill heiður fyrir okkur og staðfestir að stefna okkar í umhverfismálum er ekki aðeins orð á blaði heldur er raunverulegt framlag til umhverfismála.

Frá upphafi höfum við lagt áherslu á að umhverfisstefna sé ekki stakt átaksverkefni heldur samfelld og markviss vinna. Við vorum fyrst í mannvirkjagerð á Íslandi til að fá ISO14001 vottun á umhverfisstjórnunarkerfi okkar árið 2022. Með því höfum við tryggt að umhverfismál séu órjúfanlegur hluti af allri ákvarðanatöku.

Árangurinn er mælanlegur:

2.340 tonn CO₂íg hafa t.a.m. sparast í fimm stórum íbúðaverkefnum með notkun á “grænni steypu”.
Markmið: 50% minnkun kolefnisspors fyrir 2030 og kolefnishlutleysi 2050.

Við höfum fengið Svansvottun á um 200 íbúðir, á Seltjarnarnesi, í Hveragerði og í Kópavogi það sem af er ári og enn eru margar íbúðir í vottunarferli.

Við höfum tekið forystu í vali á umhverfisvænum byggingarefnum, innleitt lífsferilsgreiningar og frætt starfsfólk, birgja og samstarfsaðila um leiðir til að draga úr losun. Verkefni á borð við hringrásarvegginn og þátttaka í Nordic Sustainable Construction sýna vilja okkar til nýsköpunar og samstarfs.

Við trúum því að raunverulegur árangur felist í stöðugum umbótum– ekki loforðum. Þessi viðurkenning er hvatning til að halda áfram að leiða breytingar í greininni.

Sjá má nánari fréttir frá deginum hér: https://www.sa.is/frettatengt/frettir/umhverfisfverdlaun-atvinnulifsins-veitt-i-tiunda-sinn

JÁVERK fær Svansvottun fyrir Gróttubyggð. 63 íbúðir við Bygggarða á Seltjarnarnesi hafa nú hlotið Svansvottun Umhverfiss...
23/09/2025

JÁVERK fær Svansvottun fyrir Gróttubyggð.

63 íbúðir við Bygggarða á Seltjarnarnesi hafa nú hlotið Svansvottun Umhverfisstofnunar. Það var mikil gleði hjá starfsfólki JÁVERK, Umhverfisstofnunar og íbúum í Gróttubyggð á föstudaginn var þegar Svansleyfið og vottorðin voru afhent.

Jáverk hefur nú fengið sitt annað Svansleyfi, að þessu sinni fyrir fjölbýlishús á Bygggörðum á Seltjarnarnesi. Þetta er fyrsta af fimm fjölbýlishúsaverkefnum sem fyrirtækið vinnur að. Verkefnin eru staðsett á Seltjarnarnesi, Selfossi, í Hveragerði og í Kópavogi og munu þau...

Address

Gagnheiði 28
Selfoss
800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Jáverk posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Jáverk:

Share