Fagmat - Ástandsskoðun fasteigna, rakamælingar og fagleg ráðgjöf

Fagmat - Ástandsskoðun fasteigna, rakamælingar og fagleg ráðgjöf Sigmundur Grétar Hermannsson húsasmíðameistari og jarðfræðingur sérhæfir sig í rakamælingum og ástandsskoðun fasteigna.

VESTFIRÐIR ATH: Við hjá Fagmat ætlum að leggja land undir fót og verðum fyrir vestan 29.04 - 01.05. Getum bætt við okkur...
07/04/2021

VESTFIRÐIR ATH: Við hjá Fagmat ætlum að leggja land undir fót og verðum fyrir vestan 29.04 - 01.05. Getum bætt við okkur skoðunum.

31/03/2021

Hey! Við förum austur fyrir fjall þann 6. Apríl nk og eigum lausan tíma kl 13:30 og 15:00 ef einhverjir hafa áhuga.

19/02/2021
07/01/2021

Haft var samband við .is og kvartað undan sérkennilegri lykt í barnaherbergi. Við fundum lyktina en eftir notkun rakamæla og hitamyndavélar gátum við fundið upptökin. Slæmar fréttir fyrir eigendur en núna er hægt að sporna við því að fjölskyldumeðlimir finni fyrir einkennum vegna myglusvepps með því að bregðast rétt við. Sýni var sent til greiningar, greinagerð rituð og húsráðendum bent á trausta verktaka sem þekkja meðhöndlun á rakaskemmdu byggingarefni.

Viðtal við Simma smið um ástand fasteigna í þættinum Samfélagið á Rás 1.
27/08/2020

Viðtal við Simma smið um ástand fasteigna í þættinum Samfélagið á Rás 1.

„Þetta er bara villta vestrið hérna á Íslandi,” segir Sigmundur Grétar Hermannsson, húsasmíðameistari um fasteignamarkaðinn og byggingariðnaðinn á Íslandi. Hann á sér þúsundir fylgjenda á instagram undir nafninu Simmi smiður og er mikið kappsmál að fólki taki upplýstar ....

Ég fæ mikið af fyrirspurnum varðandi rakavandamál í kverkum og hornum íbúða en einnig þegar rakaþétting á sér stað á gle...
27/11/2019

Ég fæ mikið af fyrirspurnum varðandi rakavandamál í kverkum og hornum íbúða en einnig þegar rakaþétting á sér stað á gleri í gluggum. Hugum að loftrakanum í inniloftinu og tryggjum tíð loftskipti með því að opna glugga.

Ég mæli líka með því að allir íbúðareigendur séu með loftrakamæli í híbýlum sínum svo að íbúar séu með betri yfirsýn og geti fylgst með loftrakanum. Þegar það er frost úti er gott að miða við það að hafa loftrakann undir 40% RH.

Með því að sinna viðhaldi, tryggja örugg loftskipti og sinna almennum þrifum er hægt að koma í veg fyrir vandamál sem tengjast raka og myglu.

Kv. Simmi smiður

Er timburþak á fasteigninni þinni?Ef svo er, þá mæli ég með því að þú farir inn í þakrýmið til þess að kanna með ástandi...
06/04/2019

Er timburþak á fasteigninni þinni?

Ef svo er, þá mæli ég með því að þú farir inn í þakrýmið til þess að kanna með ástandið á þakviðnum. Því fyrr sem leki finnst, því minna verður tjónið.

Þú getur undirbúið þig með því að horfa á þetta myndband...

Góða helgi!

Simmi smiður

Illa loftræst, rakaskemmdir, örveruvöxtur og leynigestir

Address

Seltjarnarnes
170

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 17:00

Telephone

+3545199888

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fagmat - Ástandsskoðun fasteigna, rakamælingar og fagleg ráðgjöf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Fagmat - Ástandsskoðun fasteigna, rakamælingar og fagleg ráðgjöf:

Share