30/10/2026
Tvöföld ástæða til að vera stolt 💙
Við hjá Meitli – GT Tækni ehf. höfum svo sannarlega ástæðu til að gleðjast.
Fyrirtækið hefur hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki 2026 frá Keldunni og Viðskiptablaðinu.
Á sama tíma höfum við hlotið viðurkenningu sem Framúrskarandi fyrirtæki 2026, og í ár er sérstakt tilefni til að fagna þar sem Meitill – GT Tækni hefur nú verið Framúrskarandi fyrirtæki í 10 ár.
Við erum einstaklega stolt af þessum árangri. En viðurkenningar sem þessar verða ekki til af sjálfu sér. Að baki þeim stendur okkar frábæra starfsfólk.
Þetta er árangur okkar allra 💙
Við viljum þakka starfsfólkinu okkar fyrir ómetanlegt framlag og jafnframt viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir traustið og gott samstarf í gegnum árin.
Við höldum áfram að byggja á sterkum grunni, með gæði, fagmennsku og góða þjónustu að leiðarljósi.
Til hamingju með okkur öll!