22/10/2026
Elkem og Landsvirkjun hafa undirritað nýjan raforkusamning 👏 Samningurinn undirstrikar gott og farsælt samstarf fyrirtækjanna beggja til margra ára og tryggir sömuleiðis stöðugleika og rekraröryggi starfsemi Elkem Íslands.
Sjá nánar í meðfylgjandi frétt:
Landsvirkjun og Elkem hafa skrifað undir nýjan samning um raforkukaup kísiljárnverksmiðjunnar á Grundartanga. Fyrri samningur fyrirtækjanna var til 2029 en sá nýi gildir til 2039. Samningsmagn er óbreytt, 127 MW.