Blámi

Blámi The main goal of the Blámi Project is to inspire the development of innovative energy transition projects.

Energy transition is driven by the decarbonisation of energy sources and the Blámi project aims to increase the use of environmentally friendly fuel, hydrogen and e-fuel in transport, maritime industry and other industries
The Project will support energy and climate change-related projects, empowering entrepreneurs and promoting innovation in the Westfjords and Iceland. Blámi's Team wants to here from entrepreneurs, students, scientists and businesses working on energy transition projects

Haldið verður opinn kynningarfundur um vindorkuverið í Garpsdal á Ísafirði og á Patreksfirði, dagana 27. janúar (Ísafjör...
20/01/2026

Haldið verður opinn kynningarfundur um vindorkuverið í Garpsdal á Ísafirði og á Patreksfirði, dagana 27. janúar (Ísafjörður) og 28. janúar (Patreksfjörður).

Á fundunum verður farið yfir verkefnið og lögð sérstök áhersla á verktaka og aðila sem hafa áhuga á einstökum verkþáttum framkvæmdarinnar.

Fundurinn á Ísafirði er í Edinborgarhúsinu og hefst kl 17:00 Fundurinn á Patreksfirði er í félagsheimilinu og hefst kl 17:00

Á föstudaginn tók Sigríður Gísladóttir þátt í uppskeruhátíð skólaþróunarverkefna í Reykjavík fyrir hönd MÍ, Bláma og Ork...
15/09/2025

Á föstudaginn tók Sigríður Gísladóttir þátt í uppskeruhátíð skólaþróunarverkefna í Reykjavík fyrir hönd MÍ, Bláma og Orkubús Vestfjarða. Þar var kynnt myndband um sólarselluverkefnið sem við stöndum að með Menntaskólanum á Ísafirði – eitt af aðeins fimm verkefnum sem valin voru til að gera kynningarmyndband um. ✨

Verkefnið fékk frábærar viðtökur og vakti athygli fyrir nýsköpun, fjölbreytt skólastarf og metnaðarfulla nemendur sem komu fram í myndbandinu.

Við hjá Bláma erum stolt af því að taka þátt í þessu þverfaglega verkefni sem tengir saman ólíkar námsgreinar og stuðlar að auknum skilningi á endurnýjanlegri orku og sjálfbærni. 🌍

👉 Sjáið fréttina og myndbandið hér:

Á föstudaginn tók Sigríður Gísladóttir þátt í uppskeruhátíð skólaþróunarverkefna í Reykjavík fyrir hönd MÍ

Blámi hefur gefið út Vestfirska Orkukortið, sem sýnir á myndrænan og aðgengilegan hátt allar helstu virkjanir og virkjan...
21/08/2025

Blámi hefur gefið út Vestfirska Orkukortið, sem sýnir á myndrænan og aðgengilegan hátt allar helstu virkjanir og virkjanakosti á Vestfjörðum, stöðu hvers verkefnis og helstu raforkuinnviði.

Á kortinu má sjá staðsetningu og stærð virkjanakosta, áhrif þeirra á raforkuöryggi svæðisins, ásamt upplýsingum um raforkunotkun í stærstu þéttbýlisstöðunum, jarðhita og staðsetningu varaaflsvéla.

(hlekkur á orkukort í athugasemd)

✨ Blámi á Nýsköpunarvikunni! ✨Í síðustu viku tókum við þátt í Nýsköpunarvikunni ásamt frábæru fólki frá Landsvirkjun, EI...
22/05/2025

✨ Blámi á Nýsköpunarvikunni! ✨
Í síðustu viku tókum við þátt í Nýsköpunarvikunni ásamt frábæru fólki frá Landsvirkjun, EIMUR, Orkídea - orka og nýsköpun, og Eygló Austurland ⚡🌱

Viðburðurinn tókst afar vel og skapaði líflega umræðu um framtíð orkumála og nýsköpun. 💡🌍

Með okkur í för voru líka Stormur gagnaver og Sei Studio sem vinna að því að framleiða íslenskar flísar – bæði þessi verkefni settu einstakan svip á viðburðinn!

Takk öll sem kíktu við og tóku þátt 🙌
📸 Myndirnar tala sínu máli!

Orkubú Vestfjarða, ISOR og Blàmi fjalla um tækifærin sem felast í frekari jarðhitanýtingu á Vestfjörðum💡
06/05/2025

Orkubú Vestfjarða, ISOR og Blàmi fjalla um tækifærin sem felast í frekari jarðhitanýtingu á Vestfjörðum💡

🌐 Opinn fundur um kerfisáætlun Landsnets á Íslandi! ⚡Hafið þið áhuga á framtíð orkumála á Íslandi? Komið og takið þátt í...
05/05/2025

🌐 Opinn fundur um kerfisáætlun Landsnets á Íslandi! ⚡

Hafið þið áhuga á framtíð orkumála á Íslandi? Komið og takið þátt í umræðunni um kerfisáætlun Landsnets. Þetta er frábært tækifæri til að fá innsýn og ræða uppbyggingu flutningskerfisins.

🗓 Dagsetning: 7.maí 2025
📍Staður: Bryggjusalurinn, Ísafirði
⏰ Kl. 16:00

Geothermal Research Cluster (GEORG jarðhitaklasi) fór fyrir hóp Íslendinga til Rúmeníu til að kynna sér nýtingu jarðhita...
30/01/2025

Geothermal Research Cluster (GEORG jarðhitaklasi) fór fyrir hóp Íslendinga til Rúmeníu til að kynna sér nýtingu jarðhita, en sú nýting byggir á samstarfi milli Rúmena, Íslendinga, Norðmanna og Liechtenstein.

Það var fróðlegt að sjá ávinninginn af þessu samstarfi í uppbyggingu hitaveitu, þar sem jarðhiti og varmadælur eru notaðar til að veita þúsundum heimila í Rúmeníu heitt vatn.

Jarðhiti í Rúmeníu á margt sameiginlegt með jarðhita á Vestfjörðum, Austfjörðum og á öðrum svæðum á Íslandi sem við segjum stundum að séu „köld“.

Við getum lært mikið af Rúmenum og Pólverjum, sem hafa nýtt jarðhita í bland við varmadælur á slíkum svæðum til að hita þúsundir heimila, styðja við stór landeldisverkefni og þróa ylrækt.

Það sem stóð upp úr eftir ferðina:

GEORG jarðhitaklasinn er að vinna mjög öflugt starf sem skilar sér ekki aðeins í jarðhitanýtingu á Íslandi heldur um allan heim.

Það liggja fjölmörg tækifæri í frekara samstarfi um nýtingu jarðhita, og við Íslendingar getum lært mikið af Pólverjum og Rúmenum um hvernig hægt er að blanda saman varmadælum og jarðhita á „köldum“ svæðum.

Rúmenía er frábær staður og Rúmenar skemmtilegt og opið fólk sem hugsa hlýtt til Íslands og kunna virkilega vel að meta samstarf þjóðanna á sviði jarðhitanýtingar.

Við hjá Bláma höfum tekið saman topplista yfir áhugaverðustu orkuskiptaverkefni hvers árs. Í ár ákváðum við að breyta ti...
30/12/2024

Við hjá Bláma höfum tekið saman topplista yfir áhugaverðustu orkuskiptaverkefni hvers árs. Í ár ákváðum við að breyta til og skoða þau verkefni sem okkur fannst skera sig úr í orkugeiranum árið 2024.

Meðfylgjandi er listi yfir fyrirtæki og verkefni sem okkur þótti skara fram úr en nánari umfjöllun er í hlekk í athugasemdum.

1. HS Orka og HS Veitur fyrir ótrúlegt starf við að koma heitu vatni til íbúa í gegnum eldgos og glóandi hraun.

2. Orrkubú Vestfjarða fyrir að gefast ekki upp og finna nýtanlegan jarðhita á Ísafirði

3. Carbon Recycling International fyrir brautryðjendastarf í framleiðslu á grænu metanóli

4. Landsvirkjun fyrir að keyra áfram fyrsta alvöru vindmyllugarðinn á Íslandi

5. Norðurorka og TDK fyrir að nýta glatvarma til húsh*tunar

6. Krafla Magma Testbed (KMT) fyrir að þróa tækni til að nýta ofurheitar jarðhitaholur.

Gleðilegt nýtt ár

Mikilvægur stuðningur Landsvirkjunar við Bláma  og önnur verkefni á landsbyggðinni skilar sér margfalt til baka. Landsvi...
10/12/2024

Mikilvægur stuðningur Landsvirkjunar við Bláma og önnur verkefni á landsbyggðinni skilar sér margfalt til baka.
Landsvirkjun

Óhætt er að segja að orkutengd nýsköpunarverkefni Landsvirkjunar hafi verið vítamínsprauta fyrir atvinnulíf á landsbyggðinni, en á síðustu fimm árum hafa verkefni sem tengjast Eimi á Norðurlandi, Orkídeu á Suðurlandi og Bláma á Vestfjörðum hlotið styrki upp á ríflega 1,7 milljarða króna!

Frétt um málið má finna í athugasemd ⚡

EIMUR Orkídea - orka og nýsköpun Blámi Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

27/11/2024

Samfélagsspor Vestfjarða síðustu fimm ára var 25.5 milljarðar og hefur meira en fimmfaldast á þeim tíma. Þetta kom fram á fundi Innviðafélags Vestfjarða sem haldinn var í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði. Með samfélagsspori er átt við þá upphæð sem Vestfirðir leggja til r....

07/11/2024

Eftir margra áratuga vanrækslu á vegakerfi Vestfjarða hefur loks komist hreyfing á framkvæmdir í fjórðungnum. En innviðaskuld ríkisins á Vestfjörðum er há og hana verður að greiða. Nýlegar vegaframkvæmdir og áætlaðar samgöngubætur ná skammt til nauðsynlegra framkvæmda og ...

Address

Aðalstræti 12
Bolungarvík
415

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Blámi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Blámi:

Share