RST Net ehf

RST Net ehf RST Net ehf er brautryðjandi í þekkingu og þjónustu við orkuiðnaðinn. RST Net veitir sérhæfða þjónustu sem tengist raf- og vélbúnaði í orkuiðnaði, þ.e.

RST Net hefur síðan 1998 veitt sérhæfða þjónustu og uppsetningu á öllu sem tengist raf- og vélbúnaði í orkuiðnaði, fyrir framleiðendur, veitur og stórnotendur. orkuverum, flutnings- og dreifikerfum auk stóriðju og í iðjuverum. RST Net tekur að sér hluta eða alla framkvæmd á uppsetningu á nýjum raf- og vélbúnaði í orkuiðnaði með traustum samstarfsaðilum. RST Net býður upp á mælingar og prófanir með

sérhæfðum tækjabúnaði og veitir ráðgjöf um aðgerðir og lausnir til að auka rekstraröryggi, bæta nýtingu búnaðar og auka gæði raforkunotkunar. RST Net hannar, smíðar og framleiðir búnað sérsniðin fyrir raforkudreifingu, orku- og iðjuver auk umboðssölu á sérhæfðum búnaði, varahlutum og efni fyrir orkuver, flutnings- og dreifikerfi.

Glæsilegt! RST Net ehf er þáttakandi í þessu tímamóta verkefni. Öflugur hópur starfsmanna Framkvæmdadeildar RST Net, und...
30/07/2026

Glæsilegt!
RST Net ehf er þáttakandi í þessu tímamóta verkefni. Öflugur hópur starfsmanna Framkvæmdadeildar RST Net, undir stjórn Bergsteinn Danielsson er að störfum á Vaðöldu.

Flutningum á íhlutum fyrstu 14 vindmyllanna frá Þorlákshöfn að Vaðölduveri er lokið. Samsetning heldur áfram og næsta vor verða 14 vindmyllur til viðbótar fluttar á svæðið.

RST Net hefur opnað nýja netverslun sem ætlað er að veita viðskiptavinum okkar þægilegt aðgengi að hinum ýmsu vörum og þ...
28/07/2026

RST Net hefur opnað nýja netverslun sem ætlað er að veita viðskiptavinum okkar þægilegt aðgengi að hinum ýmsu vörum og þjónustu sem fyrirtækið býður uppá. Síðan er í þróun og bætast nýjar vörur við í takt við eftirspurn frá markaðnum. Endilega muna eftir HAGFANG.IS næst þegar þú ert að leita að gæðavörum á sanngjörnu verði.
https://hagfang.is/

RST Net ehf vefverslun

RST Net býður upp á hönnun, smíði og uppsetningu töfluskápa ásamt ráðgjöf og útvegun á búnaði. Töfluskáparnir eru frá da...
28/07/2026

RST Net býður upp á hönnun, smíði og uppsetningu töfluskápa ásamt ráðgjöf og útvegun á búnaði. Töfluskáparnir eru frá danska framleiðandanum Cubic en eru fluttir inn og settir saman af RST Net.

Um töflusmíði hjá RST Net. AC töflur, DC töflur, ryðfríar töflur, a...

20/07/2026

Það verður spennandi að setja þennan bad boy saman!

With Reinhausen – I just got recognized as one of their top fans! 🎉
02/07/2026

With Reinhausen – I just got recognized as one of their top fans! 🎉

RST Net ehf og Landsnet hafa nýverið skrifað undir viðbót við samninga vegna nýframkvæmda við tengivirki Narðvíkurheiði ...
23/06/2026

RST Net ehf og Landsnet hafa nýverið skrifað undir viðbót við samninga vegna nýframkvæmda við tengivirki Narðvíkurheiði (NJA-31) og Fitjar (FIT-31) á Suðurnesjum.
Tengivirkið að Fitjum var nýlega stækkað vegna aukinnar raforkunotkunar gagnavera á svæðinu. Tengivirkið á Njarðvíkurheiði er ný aðveitustöð sem tengir saman svæðisbundnu kerfin á Suðurnesjum við meginflutningskerfi Landsnets og mun ásamt Suðurnesjalínu 2 auka afhendingaröryggi á Suðurnesjum mjög mikið.
RST Net gengdi lykilhlutverki á báðum þessum framkvæmdaverkum og er nú verið að vinna að hönnun, framleiðslu, prófunum, afhendingu og uppsetningu þess búnaðar sem bætist við. Þar með talið gangsetningu stjórn- og varnarbúnaðar fyrir nýja línuútganga, sem og aðlögun þessara viðbóta að stjórn- og varnarkerfi tengivirkjanna í aðalhluta viðkomandi verka.

Address

Álfhella 6
Hafnarfjörður
221

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3545771050

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when RST Net ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to RST Net ehf:

Shortcuts

Share

Category