Norconsult Iceland

Directions Website Contact the business

Norconsult Iceland Engineering consultancy providing specialist solutions for power transmission systems

09/11/2026

Fossvogsbrú tekur á sig mynd

Við hjá Norconsult Ísland erum stolt af þátttöku okkar í byggingu Öldu, nýrrar tengingar yfir Fossvog fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur.

Okkar hlutverk er framkvæmdaeftirlit og sannprófun fyrir Betri samgöngur. Teymið okkar leggur sitt af mörkum með faglegri eftirfylgni, nákvæmni og góðu samstarfi við þá fjölmörgu aðila sem koma að framkvæmdinni.

Hér deilum við myndbandi Betri samgangna um verkefnið. Við þökkum verkkaupa og samstarfsaðilum fyrir samstarfið!
Kynntu þér hlutverk Norconsult við Fossvogsbrú:
https://norconsult.is/verkefni/fossvogsbru/

06/11/2026

Brúin komin yfir Ölfusá! 🌉👏

Brúargólfið er komið yfir Ölfusá og færsla þess hefur gengið framar vonum.

Við hjá Norconsult erum stolt af því að taka þátt í þessu metnaðarfulla verkefni og einstaklega gaman er að sjá brúna taka á sig mynd.

🎥 Sjáið þennan glæsilega áfanga í myndbandi Vegagerðarinnar.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026 🌟Norconsult Ísland hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2026...
03/11/2026

Framúrskarandi fyrirtæki 2026 🌟

Norconsult Ísland hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2026.

Við erum afar stolt af viðurkenningunni sem endurspeglar traustan rekstur og þann árangur sem starfsfólk okkar hefur byggt upp í sameiningu.

Takk fyrir frábært samstarf og mikilvægt framlag 💙

https://norconsult.is/frettir/norconsult-island-er-framurskarandi-fyrirtaeki-2026/

SCADA-kerfi fyrir kerskála NorðurálsNorconsult hefur hannað og innleitt SCADA-kerfi fyrir kerskála Norðuráls á Grundarta...
19/10/2026

SCADA-kerfi fyrir kerskála Norðuráls
Norconsult hefur hannað og innleitt SCADA-kerfi fyrir kerskála Norðuráls á Grundartanga. Kerfið styður við aukinn áreiðanleika í rekstri, skilvirkari bilanagreiningu og aukinn fyrirsjáanleika í viðhaldi.
👉 Lesið meira um verkefnið á heimasíðu Norconsult

Lestu meira um það sem við getum boðið uppá varðandi arkitektúr. Við getum einnig boðið uppá innanhúsarkitektúr og landslagsarkitektúr.

Áhugaverðar niðurstöður úr rannsóknum vegna mögulegra jarðganga til Vestmannaeyja.Norconsult Ísland vinnur, í samstarfi ...
16/10/2026

Áhugaverðar niðurstöður úr rannsóknum vegna mögulegra jarðganga til Vestmannaeyja.

Norconsult Ísland vinnur, í samstarfi við sérfræðinga Norconsult í Noregi, að óháðu tæknilegu mati og frumathugun vegna fyrirhugaðra Eyjaganga.

Í frétt Vísis er fjallað um mat norska jarðgangasérfræðingsins Eivind Grøv á borkjörnum úr rannsóknarholum á Heimaey og Landeyjarsandi, en niðurstöðurnar gefa tilefni til bjartsýni varðandi bergaðstæður á fyrirhugaðri gangaleið. [visir.is]

Spennandi verkefni sem við erum stolt af að koma að.
https://www.visir.is/g/20262948659d/borkjarnar-vegna-eyjaganga-gefa-tilefni-til-bjartsyni

Norskur jarðgangasérfræðingur sem lagði mat á borkjarna úr rannsóknarholum á Heimaey og á Landeyjarsandi í tengslum við möguleg jarðgöng til Vestmannaeyja segir kjarnana mun betri en hann hafi búist við.

🌉 Á meðan flestir sofa er unnið að nýrri brú yfir FossvogFossvogsbrú, sem hlotið hefur nafnið Alda, mun tengja Kársnes í...
13/10/2026

🌉 Á meðan flestir sofa er unnið að nýrri brú yfir Fossvog

Fossvogsbrú, sem hlotið hefur nafnið Alda, mun tengja Kársnes í Kópavogi við Reykjavík. Brúin er ætluð almenningssamgöngum, gangandi og hjólandi vegfarendum.

Vegna nálægðar við Reykjavíkurflugvöll fer stór hluti vinnunnar fram að næturlagi, þegar flugvöllurinn er lokaður og háir kranar trufla ekki flugumferð.

Norconsult sér um framkvæmdaeftirlit fyrir Betri samgöngur.

Brúin verður 270 metra löng og stefnt er að því að hún verði tekin í notkun sumarið 2028.
📸 Myndina tók Kolbeinn Björgvinsson, starfsmaður Norconsult, á næturvakt í ágúst.

Hér má lesa meira um verkefnið 👇
https://norconsult.is/verkefni/fossvogsbru/

Við hjá Norconsult erum stolt af því að taka þátt í þessu verkefni.  Göng til eyja gætu orðið mikið hagsmunamál og myndu...
21/08/2026

Við hjá Norconsult erum stolt af því að taka þátt í þessu verkefni. Göng til eyja gætu orðið mikið hagsmunamál og myndu draga úr mikið af þeirri áhættu sem er nú til staðar með nánast eingöngu sjóleiðinni.

Eyjagöng ehf. hafa gengið frá samningi við norska ráðgjafafyrirtækið Norconsult um að vinna heildstætt kostnaðar- og fýsileikamat á gerð neðansjávarganga milli lands og Eyja.

Address

Dalvegur 30a
Kópavogur
201

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Norconsult Iceland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Norconsult Iceland:

Shortcuts

Share

Nearby engineering companies


Other Engineering Services in Kópavogur

Show All