04/09/2026
Það var litríkt um að litast hjá Hnit Artelia í dag þegar fjölmargir starfsmenn mættu til vinnu í uppáhaldstreyjunni sinni í tilefni af Treyjudeginum.
Með þátttökunni sýnum við samstöðu með börnum sem glíma við krabbamein og fjölskyldum þeirra. Til að styðja þetta mikilvæga málefni hefur Hnit Artelia ákveðið að styrkja Börn með krabbamein um 2.000 krónur fyrir hvern starfsmann sem mætti í treyju. Á myndina vantar nokkra starfsmenn sem voru fjarverandi vegna vinnu.
Við erum stolt af góðri þátttöku starfsfólksins og því að geta lagt málefninu lið. Á Treyjudeginum erum við öll í sama liði – fyrir börn með krabbamein.