VSÓ Ráðgjöf

VSÓ Ráðgjöf VSÓ veitir alhliða verkfræðiráðgjöf með áherslu á trausta og faglega þjónustu og hagkvæmar lausnir. VSÓ Ráðgjöf ehf.

var stofnuð árið 1958 og er fyrirtækið nú í eigu 15 aðila, sem allir eru starfsmenn fyrirtækisins. Hjá VSÓ Ráðgjöf starfa nú um 90 manns, þar af eru yfir 85% með háskóla- og tækniskólamenntun á sviði húsbygginga, mannvirkja, jarðtækni, vegagerð, gatnagerð, veitna, umhverfismála, rekstrarfræði og hagfræði. Um 40% starfsmanna hafa lokið framhaldsnámi á háskólastigi í ofantöldum faggreinum.

11/05/2026

Saman gerum við samfélagið betra! Laus eru til umsóknar fjölbreytt verkfræðistörf m.a. við gatna-, vega- og stígahönnun, hönnun veitukerfa, hönnun lagna- og loftræsikerfa, framkvæmdaeftirlit o.fl. Kynntu þér málið nánar á: https://www.vso.is/starfsumsokn/ og vertu með okkur í að móta framtíðina!
..
Myndband framleitt af Jóel Daði Ólafsson

Við leitum að öflugum sérfræðingi til starfa við hönnun lagna-, loftræsi-, vatnsveitu- og hitaveitukerfa. Um er að ræða ...
19/04/2026

Við leitum að öflugum sérfræðingi til starfa við hönnun lagna-, loftræsi-, vatnsveitu- og hitaveitukerfa. Um er að ræða kjörið tækifæri fyrir einstakling sem vill starfa í þverfaglegu og spennandi umhverfi. Kynntu þér málið nánar nánar á https://www.vso.is/starfsumsokn/ - og saman gerum við samfélagið betra! 😊

07/04/2026

Góður hópur kvenna úr samtökunum Konur í mannvirkjaiðnaði (KÍM) heimsótti okkur hjá VSÓ á dögunum í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi fyrirtækisins og efla tengsl kvenna í þessum geira. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi var stemmningin góð og gaman að fá þessar frábæru konur í heimsókn.

----
Myndband unnið af Jóel Daði Ólafsson

26/03/2026

Svansvottun bygginga snýst um að draga úr umhverfisáhrifum og skapa betra innra umhverfi. Gerðar eru auknar kröfur m.a. um hljóðvist, loftgæði og þéttleika, og valin eru umhverfisvænni byggingarefni. Með Svansvottun njóta allir ávinnings – notendur, eigendur, framkvæmdaaðilar og ekki síst umhverfið.
___
Myndband unnið af Jóel Daði Ólafsson

Starfsfólk VSÓ Ráðgjafar óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og heillaríks komandi árs, með kærri þökk fyrir samstarfið á ...
22/12/2025

Starfsfólk VSÓ Ráðgjafar óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og heillaríks komandi árs, með kærri þökk fyrir samstarfið á liðnu ári.

Í tilefni jólanna styrkjum við hjá VSÓ kaffistofu Samhjálpar með framlagi sem kemur án vafa í góðar þarfir. Á kaffistofu Samhjálpar fær utangarðsfólk og aðrir aðstöðulausir morgunkaffi, meðlæti og heita máltíð í hádeginu alla daga ársins og þar eru gefnar yfir 100 þúsund máltíðir á hverju ári.

Á milli jóla og nýárs verður skrifstofa VSÓ lokuð en við bendum á að hægt er að nálgast símanúmer og netföng starfsfólks á heimasíðu okkar www.vso.is. Skrifstofan opnar aftur mánudaginn 5. janúar kl. 9:00.

Jólakveðjur,
Starfsfólk VSÓ Ráðgjafar

05/11/2025

Að lífsferilsgreina mannvirki getur leitt til ákvarðanatöku sem gerir þau bæði umhverfisvænni og hagkvæmari í uppbyggingu og rekstri. Lífsferilsgreining dregur m.a. fram hvaða þættir það eru á lífsferli mannvirkis sem hafa mest áhrif á umhverfið og skapar þannig tækifæri til að ráðast í aðgerðir til að draga úr þeim áhrifum. Hafðu samband við okkur ef þig vantar aðstoð við lífsferilsgreiningu á þínu mannvirki og saman gerum við samfélagið betra! ..
Myndband framleitt af Jóel Daði Ólafsson
́lfbærni

Vilt þú stuðla að betri samgöngum? Uppbyggingu innviða?  Eða taka þátt í að skapa örugg og traust mannvirki?  Við leitum...
23/10/2025

Vilt þú stuðla að betri samgöngum? Uppbyggingu innviða? Eða taka þátt í að skapa örugg og traust mannvirki? Við leitum að áhugasömu og öflugu verkfræði- eða tæknifræðimenntuðu starfsfólki til starfa. Kynntu þér málið nánar á https://www.vso.is/starfsumsokn/ og sendu okkur umsókn! Saman gerum við samfélagið betra!

02/10/2025

Saman gerum við samfélagið betra – Fyrir öll! 🙂 Það þarf ekki endilega flóknar eða kostnaðarsamar breytingar til þess að gera mannvirki og nærumhverfi aðgengilegt öllum, óháð getu þeirra, aldri eða aðstæðum. Hér sýna þau Ásta Camilla Gylfadóttir landslagsarkitekt og Kristinn Alexandersson tæknifræðingur hjá VSÓ dæmi um vel heppnaðar úrbætur af þessu tagi...
Myndband framleitt af Jóel Daði Ólafsson

Haldið var í árlega haustgöngu VSÓ Ráðgjafar um síðastliðna helgi.  Að þessu sinni gekk 25 manna vaskur hópur starfsfólk...
12/09/2025

Haldið var í árlega haustgöngu VSÓ Ráðgjafar um síðastliðna helgi. Að þessu sinni gekk 25 manna vaskur hópur starfsfólks og fjölskyldna þeirra um 20 km leið eftir syðri brún Eldgjár, upp á Gjátind og svo niður eftir gjánni með viðkomu hjá Ófærufossi. Ferðin var einstaklega vel heppnuð og náttúran skartaði að sjálfsögðu sínu allra fegursta.

Teiknistofa Garðars Halldórssonar ehf. hefur um áratuga skeið verið starfrækt í sama húsi og VSÓ Ráðgjöf.  Núna hafa þei...
08/09/2025

Teiknistofa Garðars Halldórssonar ehf. hefur um áratuga skeið verið starfrækt í sama húsi og VSÓ Ráðgjöf. Núna hafa þeir Garðar og Rúnar á teiknistofunni ákveðið að setjast í helgan stein og snúa sér alfarið að því að njóta efri áranna. Við hjá VSÓ þökkum þeim Garðari og Rúnari kærlega fyrir góða samveru í Borgartúni 20 í gegnum tíðina og óskum þeim alls hins besta í framtíðinni! 🎉😊

Address

Borgartún 20
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:00
Tuesday 08:30 - 16:00
Wednesday 08:30 - 16:00
Thursday 08:30 - 16:00
Friday 08:30 - 15:30

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when VSÓ Ráðgjöf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to VSÓ Ráðgjöf:

Share