VERKVIST

Directions Website

VERKVIST VERKVIST verkfræðistofa: innivist, loftgæði, byggingatækni, rakaskemmdir og vistvottun bygginga

Sérfræðingar okkar hjá VERKVIST er leiðandi á sviði rakaástands bygginga, innivistar, rakaskemmda, loftgæða, sjálfbærni, vistvottana og heilnæmi bygginga. Teymið samanstendur af sérhæfðum ráðgjöfum úr húsasmíði, verkfræði, tæknifræði, líffræði og lýðheilsu.

30/10/2026
Byggingar fyrir fólk — og stöku draug, piparkökukall, gamalmenni, einhyrninga og fleiri 😁 🎃👻Hrekkjavökustemning hjá Verk...
30/10/2026

Byggingar fyrir fólk — og stöku draug, piparkökukall, gamalmenni, einhyrninga og fleiri 😁 🎃👻

Hrekkjavökustemning hjá Verkvist og hópurinn lét sitt ekki eftir liggja í búningamálum. Hugmyndaflug, gleði og hæfilega mikill hryllingur á skrifstofunni í dag 🧡

VERKVIST veitir sérfræðiráðgjöf varðandi dagsbirtu, lífsferilsgreiningar, Svansvottun, BREEAM, byggingareðlisfræði, innivist, vistvottun, orkunýtingu, loftgæði og rakaástand, rakaskemmdir og myglu.

Sambýlingar í Hallgerðargötu bera saman bækur varðandi notkun gervigreindar.
25/10/2026

Sambýlingar í Hallgerðargötu bera saman bækur varðandi notkun gervigreindar.

🩷 VERKVIST í bleiku!Í dag tókum við bleika litinn alla leið og sýnum samstöðu með konum sem greinst hafa með krabbamein ...
21/10/2026

🩷 VERKVIST í bleiku!

Í dag tókum við bleika litinn alla leið og sýnum samstöðu með konum sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra. 🩷

Bleiki dagurinn minnir okkur líka á mikilvægi þess að huga að eigin heilsu, þekkja einkennin og bregðast við.

Sjáðu þig – því lífið liggur við! 🩷

Alltaf gaman að mæta á verkstað!👷‍♀️Í síðasta mánuði fór VERKVIST í vettvangsferð að skoða nýja hjúkrunarheimilið í Hamr...
20/10/2026

Alltaf gaman að mæta á verkstað!

👷‍♀️Í síðasta mánuði fór VERKVIST í vettvangsferð að skoða nýja hjúkrunarheimilið í Hamranesi í Hafnafirði sem þar rís á næstu vikum. Byggingin er samansett úr 111 forsmíðuðum 30 tonna stáleiningum sem voru fluttar til landsins frá Póllandi.

🍀Frá frumhönnunarstigi höfum við verið BREEAM-matsaðili verkefnisins, en stefnt er að vottuninni „Very Good“. Við stýrum gagnasöfnun og forgangsröðun aðgerða svo umhverfismarkmið verkefnisins náist. Við sjáum einnig um orkuútreikninga byggingarinnar sem sýna að hönnunin dregur verulega úr orkunotkun og kolefnislosun í rekstri, samanborið við lágmarkskröfur byggingarreglugerðar.

👇Sjá frétt á síðunni okkar

Í síðasta mánuði fór starfsfólk VERKVISTAR í vettvangsferð í Hamranes í Hafnarfirði þar sem nýtt hjúkrunarheimili er að taka á sig mynd. Húsið er að mestu forsmíðað úr 111 stálhúseiningum sem eru fluttar sjóleiðis frá Póllandi til Hafnarfjarðar, hífðar á sinn stað ...

17/10/2026

Þessi er búinn að suða í vinnunni í heilt ár 😂 suðar yfir húsþökum og þakgluggum......

12/10/2026

Helga María Adólfsdóttir VERKVIST í hlaðvarpi Iðan fræðslusetur sem meðal annars fjallar um endurnýtingu, viðhald og vistvænar byggingar.
Hvernig tökum við betri ákvarðanir þegar kemur að efnisvali og kolefnisspori bygginga?

💧🌿 Blágrænar lausnir á VISTAR-fundi hjá VERKVIST!Á föstudaginn fengum við góðan gest til okkar á VISTAR-fund. Björn Jóha...
11/10/2026

💧🌿 Blágrænar lausnir á VISTAR-fundi hjá VERKVIST!

Á föstudaginn fengum við góðan gest til okkar á VISTAR-fund. Björn Jóhannsson, landslagsarkitekt hjá Urban Beat, fræddi okkur um blágrænar ofanvatnslausnir og hvernig náttúran getur hjálpað okkur að takast á við ofanvatn á sjálfbæran hátt.

Hjá VERKVIST finnst okkur mikilvægt að horfa á byggingar og umhverfi þeirra sem eina heild. Það er alltaf gaman að fá ný sjónarhorn og læra af fólki úr öðrum faggreinum. 🌱

Takk kærlega fyrir áhugaverða og fróðlega heimsókn, Björn! 💚

Address

Hallgerðargata 13 5. Hæð
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 14:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when VERKVIST posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Nearby engineering companies