Landsvirkjun

Landsvirkjun Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar. Gildi Landsvirkjunar eru framsækni, ráðdeild og traust

Hlutverk Landsvirkjunar er að hámarka verðmæti þeirra endurnýjanlegu orkulinda sem fyrirtækinu er trúað fyrir, með sjálfbærni og hagkvæmni að leiðarljósi.

10/06/2026

Landsvirkjun er einn af stofnaðilum og styrktaraðilum IEA Geothermal Gas Managament Task, fyrsta fjölþjóðlega samstarfshópsins innan alþjóða orkumálastofnunarinnar (IEA Geothermal).

Jónas Ketilsson, verkefnastjóri á deild þróunar og auðlinda jarðvarma, leiðir starfið en IEA Geothermal hefur það að meginmarkmiði að deila þekkingu, skapa tengsl og tengja saman jarðhitaþjóðir með sameiginlegt lokamarkmið.

Það lokamarkmið er að samræma hvernig við teljum fram þær gastegundir sem koma upp með hagnýtingu jarðvarma, hvernig við mælum losunina og hvernig hægt er að samræma losunarbókhald milli þjóða.

Hér má lesa nánar um starfið ⚡ https://www.iea-gia.org/

09/06/2026

Heimsþing jarðvarma stendur yfir þessa vikuna. Grænvangur, eða Green by Iceland, heldur utan um aðkomu Íslands og stýrir viðburðum á borð við Our Climate Future sem fór fram í gær.

Þar sat Bjarni, framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma, í pallborði ásamt Sævari Frey Þráinssyni, forstjóra Reykjavík Energy, Terra Rogers, forstöðumanni Super Hot Geothermal, Clean Air Task Force, og Randal Wichuk, forstjóra Tevera.

Fundarstjóri var Dr. Juliet Newson, framkvæmdastjóri Orkuskólans við Háskóla Reykjavíkur.

Bjarni segir frá viðburðinum ⚡

09/06/2026

Svæðið við Vaðöldu hentar vel til vindorkunýtingar, en þar rís nú fyrsta vindorkuver landsins. ⚡️

Í ársskýrslu Landsvirkjunar segir Elín Hallgrímsdóttir, verkefnisstjóri í nýframkvæmdum, frá framkvæmdum og stöðu mála við Vaðölduver.

🔗Sjá meira: https://www.landsvirkjun.is/arsskyrslur/2025/vidtol/elin-hallgrimsdottir

Hér er notalegt innlit í fortíðina með fyrsta kaffibolla ☕ Þátturinn Gamla kortérið kafar í safnakosti Ríkisútvarpsins o...
07/06/2026

Hér er notalegt innlit í fortíðina með fyrsta kaffibolla ☕

Þátturinn Gamla kortérið kafar í safnakosti Ríkisútvarpsins og þar má finna allskonar perlur.

Í ágúst 1937 var í fyrsta sinn sendur út í Ríkisútvarpinu þáttur sem tekinn hafði verið upp utandyra. Vilhjálmur Þ. Gíslason heimsótti byggingasvæði Ljósafossvirkjunar við Sogið, tók upp sprengingar og glaðan söng verkamanna en einnig heyrðist í ýmsum verkfræðingum sem stýrðu framkvæmdum, hinum danska Langved, Svíunum Belfrant og Valkan, Árna Daníelssyni og annaðhvort Steingrími Jónssyni eða Sigurði Ólafssyni.

Í ágúst 1937 var í fyrsta sinn sendur út í Ríkisútvarpinu þáttur sem tekinn hafði verið upp utandyra. Vilhjálmur Þ. Gíslason fór þá í heimsókn á byggingasvæði Ljósafossvirkjunar við Sogið, tók upp sprengingar og glaðan söng verkamanna en einnig heyrðist í ýmsum verkfr...

Framkvæmdum í Vaðöldveri, fyrsta vindorkuveri landsins, miðar vel! Tvær vindmyllur hafa risið á tæplega tveimur vikum. ⚡...
05/06/2026

Framkvæmdum í Vaðöldveri, fyrsta vindorkuveri landsins, miðar vel! Tvær vindmyllur hafa risið á tæplega tveimur vikum. ⚡️

Framkvæmdum í Vaðöldveri, fyrsta vindorkuveri landsins, miðar vel, segir yfirverkefnastjóri. Tvær vindmyllur hafa risið á tæplega tveimur vikum.

03/06/2026

Samsetningu fyrstu heilu vindmyllunnar í Vaðölduveri lauk þann 1. júní 2026 og þar með náðist mikilvægur áfangi í uppbyggingu vindorkuversins!

Stór stund í Vaðölduveri í gær! 🥳 Fyrsta heila vindmyllan er nú komin á sinn stað og verður uppsetningu hinna 27 fram ha...
02/06/2026

Stór stund í Vaðölduveri í gær! 🥳 Fyrsta heila vindmyllan er nú komin á sinn stað og verður uppsetningu hinna 27 fram haldið í áföngum. Stefnt er að því að uppsetningu allra vindmyllna í Vaðölduveri ljúki fyrir lok árs 2027. 🔌

Samsetningu fyrstu heilu vindmyllunnar í Vaðölduveri er lokið.

Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á fyrsta ársfjórðungi nam 11 milljörðum króna og handbært fé frá rekstri 11 mill...
02/06/2026

Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á fyrsta ársfjórðungi nam 11 milljörðum króna og handbært fé frá rekstri 11 milljörðum.

Fjárhagsstaða fyrirtækisins er áfram sterk, eiginfjárhlutfall er 65% og skuldsetning er 1,7× rekstrarhagnaður fyrir afskriftir.

Tekjur af raforkusölu hækkuðu um 10% milli ára, en hækkunina má rekja til hærra raforkuverðs til stórnotenda vegna hækkunar álverðs.

Árshlutareikningur Landsvirkjunar frá janúar til mars 2026 er kominn út.

Árshlutareikningur Landsvirkjunar frá janúar til mars 2026 er kominn út.Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á fyrsta...
02/06/2026

Árshlutareikningur Landsvirkjunar frá janúar til mars 2026 er kominn út.

Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á fyrsta ársfjórðungi nam 11 milljörðum króna og handbært fé frá rekstri 11 milljörðum.

Lesa meira:

Árshlutareikningur Landsvirkjunar frá janúar til mars 2026 er kominn út.

02/06/2026

Hingað til hafa borist hlutar sem nema einni og hálfri vindmyllu í hverri skipaferð, en ENERCON E-Ship 1 er ekkert venjulegt flutningaskip. Það er sérstaklega hannað til að flytja stóra vindmylluhluta og getur því flutt fjórar í einu! ⚡️

Address

Katrínartún 2
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Landsvirkjun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Landsvirkjun:

Share

Category